venerdì, ottobre 31, 2003
Fótboltamót í kvöld, er að spá í hvort ég eigi að fara eður ei.. Ef ég fer má ég vera í liðinu Vambi ef það vantar, svona varamaður eila... Það er annað hvort að skella sér eða að horfa á Idolið ;) Er að spá í að gera kannski bara bæði.. Ég nenni ekki alveg að fara strax klukkan 10. Ég er að fara ða vinna núna og verð til sjö.
Í táknmáli fórum við í að fela hlut, það var mjög gaman, en það var samt soldið kvikindislegt af Dísu að fela hlutinn (sem var blað krumpað í kúlu) á stað sem ég náði ekki til ;p
Ég held að það lesi enginn þetta blogg lengur, nema Sísa og Anna, allavega tjáir sig enginn í kommentunum :( Ég hafði búist við allavega fleiri kommentum um Bush pistilinn minn... Já, í dag tókum ég og Hjalti þá ákvörðun að reyna að friða borðið okkar.. Það er allt að verða vitlaust yfir feministum og samræmdumprófum og fleiru sem fólk finnur sér til að rífast um.. Ég skrifaði á blöð "Öll dýrin á borðinu eiga að vera vinir" sem kom frá Hjalta, en fólkið gat nátla kvartað yfir því..
"Við erum ekki dýr" og að þetta væri stolið og svona.. Svo skrifaði Salóme "Fighting for peace is like fucking for virginity" og við ætlum að hengja þetta allt saman upp eftir helgi kannski, þ.e. ef húsvörðurinn fjarlægir þetta ekki :/ Ég skrifaði bréf til hans um að gera það ekki og að við elskuðum hann öll (*hóst*)... :D
mercoledì, ottobre 29, 2003
Manneskjan er heimsk, Bush er heimskur þvi hann telst vera maður þo hann ætti bara að vera kallaður villidyr, maðurinn fer i strið og strið eru heimsk!!! Hvað viljum við? Frið i Irak! Frið i heiminum allmennt!!!!!!!!!!! En siðan hvenær var hlustað a okkur?
Það getur vel verið að þu sem ert að lesa þetta botnar ekkert i þessu en eg er öskureið yfir þessu og þurfti að fa utras og roa mig sma niður fyror ökutimann!
Bless!!
lunedì, ottobre 27, 2003
Eg er að fara að byrja i nyjum kor. Veit ekki hvað a að kalla hann eila. I rauninni ma segja að eg se að byrja aftur i gömlum kor.. Eg er sem sagt að fara að hitta einhverja ur gamla kornum minum (Kor Snælandsskola i Kopavogi) a miðvikudaginn (held eg..) Heiðrun (korstjorinn) hringdi aðan og var að segja mer fra þessu og kannski eg skelli mer bara til Italiu a næsta ari með þeim, þvi mig hefur alltaf langað að fara til Italiu :) Þannig að þa mun eg hafa farið 3 ar i röð með kor til utlanda.. sniðugt :)
I taknmali i dag bjuggum við til skutlur og svo skipaði kennarinn okkur að kasta þeim i strakana tvo (Matta og Sturlu) sem var mjög gaman.. :P I löngum frönskutima horfðum við a einhverja ogeðslega mynd sem gekk ut a (held eg alla vega) að eta folk :S OJ bara.. Þetta var samt skarra en að sitja og læra Passe Compose :P
I dag for eg i fyrsta sinn a operuæfingu i tvær vikur.. Það var bara gaman, reyndar var eg soldið tind a köflum, en sem betur fer er eg ekki ein i rödd :o/ Svo var eg lika sett i Töfraflautuna i dag. Söng 3. Dömu og svo a eg lika að vera 3. knapi, en a að læra dömuhlutverkið lika af þvi að eg hef gott af þvi segir söngkennarinn.. Það er reyndar mikið skemtilegra að syngja Töfraflautuna en hina operuna sem eg komst að hvað heitir i dag, þ.e. Amila goes to the Ball (minnir mig allavega ;P)Nuna ætla eg að fara að læra.. bæbæbæs.. :)
domenica, ottobre 26, 2003
Mamma min a ammæli i dag! Hun er orðin 50 ara!! Til hamingju með það mamma :)
I gær var eg i ammæli hja Sölva eftir að eg söng a tonleikum til styrktar nyjum gluggum i kirkjunni :) Það var bara gaman i ammælinu eg for heim um half 3 leytið en eg var half sofandi, eftir að við hættum að nenna að spila Party og Co. (sem var nu reyndar bara mjög fint spil), svona siðasta halftiman i sofanum :) Tonleikarnir gengu lika mjög vel bara. Eg heyrði i fyrsta sinn i Graduale Nobili kornum (fyrir utan að eg sa hann einu sinni i sjonvarpinu) og VA hvað hann er goður og VAQ hvað mig langar i hann! Sigrun og Asa frænka min eru i honum nuna, voru baðar að byrja :) Eftir hle þa forum eg, Disa, Maja og Laufey að hlusta og þegar við heyrðu Kor Langholtskirkju syngja Halelujakorinn ur Messiasi akvaðum við a stundini að fara a tonleikana sem eru 20. nov :)
I dag verður eikkað sma ammæi svo það er berst að eg fari og byrji að læra þvi það er voða mikið að læra hja mer fyrir morgundaginn :o/
A morgun fæ eg liklega æfingaleyfið!! Ökukennarinn minn er fyrir norðan og a morgun a eg að fara i tima með annað hvort mömmu eða pabba og honum og svo ma eg byrja að keyra :) Eg verð að segja að eg hlakka ekkert sma til að fa bilprof! Þa getur maður farið i heimsokn svona seint a kvöldin til sumra ;) og getur keyrt heim ur ammælum eða af böllum og þarf ekki alltaf vera að vesenast i leigubil alltaf hreint!! Mer er ekkert vel við leigubila sko...
Fotboltamotið er næstu helgi og ætli maður skelli ser ekki a það.. Það er orðið soldið mikið langt siðan eg gerði eitthvað með krökkunum a 3. ari.. Eg bist við þvi að engin a borðinu minu fari (Kristrun ju ef hun er i bænum) svo eg get notað tækifærið og verið með hinum krökkunum :)
En nuna þarf eg að fara og laga aðeins til i her berginu minu aður en að einhverjum dettur i hug að koma við og heimsækja hana mömmu mina i tilefni dagsins :)
venerdì, ottobre 24, 2003
Í dag fæ ég líklega æfingaleyfið mitt á bíl!! Pabbi er í fríi og ætlar að fara í tryggingarnar og til sýslumannsins þ.e.a.s. ef hann man eftir því ;)
Anna Sóley var að segja mér að skrítni gaurinn heitir Oddur! Ég vissi að það var eitthvað með O að gera! ;Þ
Manneskja bloggsins í dag er Trausti táknmálskennari því hann er veikur og þá féll niður tími hjá mér... :)
giovedì, ottobre 23, 2003
Hann Sölvi á ammæli í dag!!!!! Til hamingju með það! Orðin gamall maður, þ.e. 17 ára! hehe :P Ég bakaði köku handa honum og gerði kort frá öllu borðinu og það tókst vel að fela þetta fyrir honum, en það var tæpt um morguninn... Hjalti kom með kók og nammi og úr þessu varð hin fínasta ammælisveisla :) Ég og Jói gáfum honum líka ammælispakka sem í var einhver viðbót við einhvern tölvuleik sem ég hef ekkert vit á.. :P Svo ætlar hann að halda upp á ammælið sitt á laugardaginn og við eigum að koma með hatta og bangsa með okkur og veitt verða verðlaun fyrir frumlegasta/flottasta hattinn og bangsan... Svo eiga Sólrún og Ari líka hálfsárs ammæli í dag! Til hamingju með það :) Það er soldið mikið finnst mér.. Ég og Jói erum búin að vera saman í 4 og hálfan mánuð og það er mikið finnst mér...
Já sem sagt... Ég þarf að drífa mig að blogga því Anna er að koma til mín og við erum að fara að æfa okkur.. Við eigum að syngja í 50. ammæli foreldra minna og ég er strax byrjuð að kvíða því, því ég þarf að syngja svona í míkrafón ein fyrir framan alla familíuna og gamla kórstjórann minn :S HJÁLP!! Ég er nebla soldið mikið fiemin, og sérstaklega þegar ég á að syngja.. en vonandi mun söngnámið venja mig af því...
Já.. Í vetrarfríinu gerði ég ekki neitt af viti.. Tók MJÖG vel til í herberginu mínu og bakaði með mömmu
og hitti svo krakkana. Við fórum í keilu og það leit út fyrir að Hjalti mundi vinna okkur öll en Jói náði að komast yfir á endanum.. En hann varð samt í 2. sæti og vann okkur hin og við komum með þá kenningu að hann væri bara að þykjast að vera blindur! Í seinni umferðinni leit út fyrir að ég mundi vinna en síðan tók Jói fram úr mér (og ég sem var búin að setja mér það markmið að vinna hann!) og Anna fékk 3 fellur í röð svo hún lenti í 1. Jói í 2. og ég í 3. sæti :)
Ég bara verð að kvarta yfir einum stráknum sem er með mér í sögu!!! Ég ætla ekki að segja hvað hann heitir ef svo ólík-lega vildi til að hann pommsar inn á þessa síðu (maður veit aldrei hvað gæti gerst, hér á Íslandi þekkja allir alla) þá vil ég ekki búa til sár á sálina hans því hann á örugglega eitthvað bátt greyið!! En Anna Sóley (sem ég held að viti ekki einu sinni að ég eigi svona blogg því við erum alltaf að tala illa um tölvur í sögutímum) veit hver þetta er.
Semsagt. Þetta er lítill busi en hann fær ekki að vera lítill sætur busi því hann er skki baun sætur og hundleiðilegur í þokka bót! Hann situr mjög oft fyrir framan okkur Önnu og þykist vera svo góður með sig. Hann heldur að allir séu gegt hrifnir af honum og að hann sé mjög kúl! Hann þykist líka vera mjög klár á tölvur (ok hann er það kannski, en Haukur kann örugglega mikið meira og hann er líka skemmtilegri en þessi auli) og svo þegar hann var að hjálpa mér, önnu og hildi með tölvuna þegar við vorum að gera fyrirlestur gerði hann ekki neitt heldur reddaði Haukur þessu öllu saman fyrir okkur. Þá byrjaði businn að spurja okkur hver þessi gaur væri og eitthvað og ég sendi honum svona augnaráð sem segir að hann, businn, sé fáviti (reyndar sendi ég honum þetta augnaráð alltaf þegar hann segir eitthvað við mig eða Önnu). Svo stóð hann bara þarna og þóttist vera kúl á meðan Haukur hjálpaði okkur. Svo er hann alltaf að gera grín af öðrum, og hann og skrítni gaurinn (sem ég man ekki hvað heitir, Óttar eða Ómar eða eitthvað Ó held ég (það er allt í lagi að skrifa nafnið hans því ég er alveg viss um að hann kunni ekki mikið á tölvur þar sem hann var að borða ís á meðan hann hélt fyrirlesturinn sinn í sögu) ) eiga í einhverju stríði, voru að henda blýant í hvorn annan í tíma í dag. Reyndar er mjög gamam að hlæja af busanum. Um daginn fórum við Anna Sóley í hláturskast í tíma út af einhverju sem hann gerði og svo fór hann að hlæja með okkur og þá hlóum við enn meira. Svo spurði hann okkur hvort að við værum að hlæja að honum og ég sagði nei og þá sprungum við alveg! Ég hef samt grun um að Haukur hafi haldið að við værum að hlæja að honum þannig að ef svo vildi til að þú sért að lesa þetta (maður veit aldrei hverjir detta hér inn) þá vorum við ekki að hlæja af þér! :) Reyndar hlæjum við mikið í sögutímum.. Samt bara af leiðinlega gaurnum og skrítna gaurnum. Hann var rauðsokki um daginn (sá skrítni) þ.e. hann var í rauðum sokkum, og við hlóum af þvi nátla líka...
Nú eru Sedda og Sísa búnar að skrifa í gestabókina líka :)
Og núna ætla ég ekki að skrifa meira því Anna er komin og ég er búin a' skrifa það helsta sem hefur drifið á daga mína síðan þann 15. okt. og það er bara heil ritgerð og þið sem lásuð þetta allt getið verið stolt af ykkur :)
Bless, bless....
(vonandi líður ekki jafn langt á milli blogga hjá mér núna...)
p.s. Hérna er mynd af Önnu Guðrúnu sem þið skuluð skoða!!! :)
mercoledì, ottobre 15, 2003
Ísl 403 - kjarna áfangi
Stæ 303 - verð að taka hann ef tilraun mín til að taka nát. og fél.braut á að ganga upp...
Fra 303 - því miður verð ég að læra eitthvað 3. tungumál
Nát 123 - ef ég ætla að taka nát.braut líka verð ég að fara í 123, ekki 133
Ták 203 - læra betur táknmálið
Sag 203 - kjarnaáfangi
og líkasmrækt
(skrítið, ég er að fara á 4. önn og er bara með einn 403 áfanga og ég hef aldrei fallið í neinu :| )
í varaval verður líklega sál 203 (kjörsviðið mitt), Dan 303 (det er så sjovt at lære dansk) og Fél 103 (kjarnaáfangi).. En er ekki alveg búin að ákveða :)
Ég vil óska Krissu til hamingju með að vera 2. manneskjan til að skrifa í Gestabókina mína! Þið hin megið alveg skrif' í 'ana líka :)
ég held ég láti þetta bara gott heita í kvöld :) Góða nótt :*
lunedì, ottobre 13, 2003
Ég er að horfa á kastljósið núna á umræðu um styttingu framhaldsskólans, skemmtilegt, veit ekki hvort maður á að vera með eða á móti í þessu, þetta mun hvort eð er ekki hafa áhrif á mig þannig að mér er nokk sama :P En ég er samt hlynnt því að maður eigi ekki að vera að flýta sér neitt í menntó því það er svo gaman :)
Í dag var ég að flytja fyrirlestur í sögu, gekk bara ágætlega fyrir utan að talvan tók 40 mínútur að koma sér í nothæft ástand. Við (ég, Anna Sóley og Hildur) vorum orðnar mjög pirraðar en sem betur fer hjálpaði hann Haukur okkur :) (og reyndar skrítni strákurinn, sem ég veit ekki hvað heitir en er gegt pirrandi, reyndi að hjálpa okkur líka, hann lítur út fyrir að vera algjör tölvunörd:P) Svo þegar við komumst loksins inn í tölvuna þá gekk þetta bara vel :) Kennarinn sagði allavega að þetta hafði verið góður fyrirlestur þegar hann komst í loftið :) Ég ætla nú að fara að horfa á sjónvarpið og hætta þessu bulli...
BæBæs :)
domenica, ottobre 12, 2003
Já.. ég er búin að skrifa soldið mikið núna, vona að þér hafi ekki leiðst, þú sem ert að lesa þetta.. :P En allavega, ég held að þetta sé nóg í dag. Ég ætla bara að fara að lúlla mér bráðum eða eitthvað :)
Góða nótt, krúttin mín :)
giovedì, ottobre 02, 2003
Enskukennarinn:
Enskukennarinn minn er STÓR skrítinn.. Þegart einhver nemandi spyr hann að hvað eitthvað orð þýðir byrjar hann að blaðra (og BARA á ensku, talar aldrei íslensku í tíma) og blaðrar mjög mikið um orðið og svo leikur hann orðin einnig. Eins og í dag þá hlammaði hann sér upp á borðið hjá Nínu þegar hann var að skíra fyrir okkur eitthvað orð sem þýðir að troða sér upp á einhvern. Þegar hann er með þessar útskýringar segir hann aldrei hvað orðið þýðir á íslensku heldur útskýrir það á ensku og allavega næ ég mjög oft ekki hvað orðið sem hann eypir 5 mínútum í að útskýra þýðir. Í dag lék hann líka fyrir okkur muninn á því hvernig Japanir og Ameríkanar koma inn í herbergi. Ég og Birna sem er með mér í ensku lítum mjög oft á hvor aðra með svona augnaráði "hann er klikkaður". Hann er líka einkar fyndinn kall, bæði hvernig hann lítur út og líkamsbyggingin :P Svo bætir ekki úr skák hvernig hann talar. Hann talar svona mjög breska ensku en ekki með breskum hreim, frekar skrítið :S En samt er hann alveg ágætur kall :)
Stærðfræðikennarinn:
Stærðfræðikennarinn er mjög fínn. Hann reynir að gera stærðfræðina skemmtilega og tekst það með ágætum :) Í tíma í þessari viku var einn nemandinn sofandi fram á borðinu og kennarinn var búinn að vera að kalla á hann, en hann svaraði ekki og hélt áfram að sofa. Þá labbaði hann að vasknum í stofunni og ætlaði að skvetta á nemandann, en það annar samnemandi öskraði á hann og hann hrökk upp.
Íslenskukennarinn:
Íslenskukennarinn minn er víst svona kennari sem stelpur verða ástfangnar af. Allt í lagi, hann er mjög ungur og mjög góður og þannig, en mér finnst það frekar svona skrítið að verða hrifinn af kennaranum sínum :S Um daginn varð hann brjálaður út í einn nemandann af því að hann spurði að einhverju sem ég ég heyrði ekki en hann varð voða fúll :S En annarrs er hann alltaf svo glaður og ánægður og bara mjög fínn :) Allavega MIKLU betri en kennarinn sem ég var með í 2034 :S
Sögukennarinn:
Í fyrsta tím byrjaði hann á svona ræðu sem um það að maður mætti ekki vera með síma í tíma annarrs yrði manni hennt út og svo ti skólastjórans ef það gerðist aftur, að það ætti að ríkja þögn í tímum og að það þyrfti að spurja hvort maður mætti fara á klósettið. En núna er þetta svona kennari sem blaðrar bara um námsefnið og er svona góða kennara týpan. Hún allavega gerði ekkert í tíma í dag þegar ég og Anna Sóley fórum í þvílíkt hláturskast :P (Sölvar;).. )
Ég ætla að láta þetta duga í dag, en ég klára þetta líklega á morgun, en ég hef margt að segja um þessa kennara sem ég er með á þessari önn, því þeir eru allir mjög skraurlegir... :P