domenica, novembre 30, 2003
Jæja já.. Þá er ég búin að eyða öllu laugardagskveldinu í að setja inn myndirnar sem ég tók í skólanum í gær :) Þið getið skoðað þær hér til hliðar.. (ég er allavega fljótari en sumir að setja inn myndir ;).... )
# posted by edda ósk @ 12:45 AM
venerdì, novembre 28, 2003
Nú er ég að blogga í síðasta sinn á þessu ári í skólanum... Það er síðasti skóladagurinn í dag. Í hádeginu voru piparkökur og smákökur og jólalög og allt.. Gegt gaman.. Ég var í þrem tímum í dag og í öllum þeim var próf!! Ég meina það, á síðasta skóladegi! Lokapróf í táknmáli, lokaritgerð í ensku og einhver könnun í íslensku sem var bara til gamans reyndar. Við sáum Villtu vinna milljón á dönsku og sænsku og hlustuðum svo á einhverja frétttir á þeim tungumálum. Mér gekk ekkert svo vel í danska hlutanum miðað við það að ég bý með aðra löppina í Danörku en sænski hlutinn var bara fyndinn sko.. Ég gat þó eitthvað í honum en ekki mikið. Svo fengum við einnkunn úr íslenskufyrirlestrinum okkar, fengum alveg 9 en ekki 9+ eins og síðast. En ég er samt sko ánægð með 9 :) Ég fékk líka 9 fyrir rúnaritgerðina mína:)
Ég þoli ekki enskukennarann minn! Ég er alveg skíthrædd við hann líka! Hann er algjör perrri, með þreumur errum, og hálfviti og hann gerir svo upp á milli nemenda sinna.. Algjör fáviti!! En allavega ætla ég ekki að láta hann eyðileggja jólaskapið mitt :)
Í gær var ég að læra fyrir táknmálspróf og fór með stelpunum á Kaffi Rvk. og hitti þar nokkra heyrnalausa krakka. Einn strákurinn sem er í MH var svo mikið krútt! Þið getið ekki ýmindað ykkur það! Ég væri svo til í að hafa hann sem kennara. Þá væri ég allavega með sætan kennara! Trausti er krútt líka en þessi er miklu meira krútt! :)
Ég gleymdi að minnast á það að ég fékk kort frá öllum á borðinu mínu og kort frá Auði frönskufélaga á ammælisdaginn minn :) Takk krakkar :)
Hafiði það nú gott þangað til við sjáumst aftur, í prófum eða á staðfestingardag :)
Veit einhver hvenær jólaballið er???????
# posted by edda ósk @ 2:52 PM
mercoledì, novembre 26, 2003
Jæja.. Nún hef ég nógan tíma til að blogga.. Í fyrsta lagi þá á ég afmæli í dag!!! JEIJ!! Ég fékk veislu í skólanum í dag og alles í hádegishléinu, en mátti ekkert vera að því að vera í henni því ég þurfti að undirbúa fyrirlestur í íslenskutíma sem var tíminn eftir hlé.. Það var sungið fyrir mig í frönsku á frönsku og svo þegar stofan opnaðist voru fullt af krökkum sem stóðu fyrir utan og sungu á meðan ég var að setja í töskuna! :) Það er svo gaman að eiga ammæli og þegar einhver á ammæli :) Ég fékk ammælisgjöf frá Kristrúnu (hálsmen og svona öskju eða þannig), Lóu (hjartabangsa mjög krúttlegan), og eitthvað snyrtidót frá Dísu og Sísu því ég týndi mínu öllu í Finnlandi (þar sem ég var einmitt með þeim).. Svo var kaka sem Hjalti bakaði, nammi, snakk, kók og blöðrur. Talandi um blöðrur. Fyrirlesturinn gekk bara ágætlega ég var ekkert svo stressuð og gat alveg blaðrað mig út úr þessu.. Svo var leikþáttur úr Tristramssögu og ég lék prinsessuna Ísönd og vonda kallinn! Það var mjög gaman ap leik lesa þetta, mér tókst reyndar að týna línunni minni tvisvar en það var allt í lagi :p Svo notaði ég eina blöðruna mína sem ég fékk, sem höfuðið af drekanum sem ræðismaðurinn sagðist hafa drepið :p... þetta var bara gaman :) Svo í stoðtíma í frönsku sagði Bryndís Jakops. sem er með mér í íslensku og ensku að þetta hefði verið frábær fyrirlestur.. Fólk var líka meira og minna að springa úr hlátri þegar ég leit upp af blaðinu :p... Hehe.. En núna ætla ég að fara að læra svo ég geti farið út að borða í kvöld :)
# posted by edda ósk @ 4:56 PM
martedì, novembre 25, 2003
Umm.. ég ætlaði að bloggast eitthvað núna og segja ýmislegt um það sem ég hef gert síðan á föstudaginn og vandræðalegu atviki í skólanum í dag og skemmtilegu laugardagskvöldi, en klukkan er svo margt að ég nenni ekki að skrifa svona langa ritgerð um það, en hún
Dísa fær hrós fyrir að blogga mikið í dag :) Ég sem sagt ætla bara að fara að sofa.. góða nótt, svo á ég líka ammæli á morgun :D
Já svo er kominn nýr bloggari, það er hún
Sigurborg sem er með mér í kór.. Svo er bara að sjá hvort að hún muni standa sig í heimi bloggaranna :)
Og svo er ég búin að breyta Krissi í Kristján þannig að núna getur hann lesið bloggið mitt líka ;)
# posted by edda ósk @ 11:37 PM
venerdì, novembre 21, 2003
Hver verður númer 200?????????? ;)
# posted by edda ósk @ 6:10 PM
Já, ég ætla minna fólk á kommentin.. Þau eru ENN til!!! ;)
Endilega skrifið líka í gestabókina... :þ
# posted by edda ósk @ 10:49 AM
Ég var á tónleikum í gær og VÁ hvað þetta var flott, og mjög gaman líka. :) Tilraun okkar til að hittast allar út að borða mistókst soldið... Ég, Sísa og Dísa mættum, Sigurborg missti af strætó en kom svo, Iðunn var á æfingu í tónó skilst mér og það var ekki náð í Laufey.. Maja kom svo og náði í mig,Dísu og Sigurborgu en Sigrún fór í Kringuna. Ég, Maja og Dísa fórum svo á tónleikana og skemtum okkur vel! :) Sumir kaflarnir voru frekar langir og ég var mjög þreytt og það lá við að ég sofnaði stundum, en um leið og eitthvað flott kom kipptist ég við og vaknaði.. Kórinn var mjög góður og einsöngvararnir líka.. En Halelújakórinn var lang flottastur... :P En núna er ég að spá í að fara að hætta að tölvunördast í skólanum og gera eitthvað að viti (það er hins vegar ekkert hægt að gera að viti hérna)Ég á bara einn tíma eftir, ensku, leiðinlegasti áfanginn, sökum Dimmisjón í 3, tíma sem þýðir að ég missi af íslensku og þá hef ég ekki farið í íslensku í viku, sem er mjög sorglegt því það er einn skemmtilegasti áfanginn... :(
# posted by edda ósk @ 10:48 AM
mercoledì, novembre 19, 2003
Ég hitti gamla bekkjarsystur mína núna áðan á bókasafninu,
Kristínu, hún var að læra sálfræði.. Gaman hjá henni. Hún hefur frekar mikið breyst, hún var alltaf "trúðurinn" í bekknum mínum en núna var hún bara mjög róleg og yfirveguð, en talar samt mikið enn þá :) En hún segist ekkert segja í tímum og svona og sé feimnasta stelpan í skólanum.. Ég á soldið erfitt með að trúa því en hún er samt feimin inn við beinið, við vorum nefnilega góðar vinkonur einu sinni. Svo sagðist hún hafa frétt það að ég væri með strák.. Ég fékk samt ekki út úr henni hvernig hún vissi það. Skrítið hvernig þetta flýgur um hverfið. Þetta hverfi er svona kjaftasöguhverfi. Maður fréttir oft eitthvað um fólkið úr næstu götu, með hverjum hver er og svona. Þetta er svo sem allt í lagi ef þeir nánustu fá að vita þetta á undan.. :P EN nóg um það.. ég verð að fara að lesa, þarf að lesa hundraðogeitthvað blaðsíður fyrir morgundaginn... :s
# posted by edda ósk @ 5:40 PM
martedì, novembre 18, 2003
Jæja, nú er ég að vera dugleg og blogga svo
Dísa verði nú ánægð ;) Ég er að horfa á
Idol extra á
Popp Tíví.
Helgi komst áfram!! Jeij!! Ég meira að segja ákvað að kjósa hann (hef ekki kosið í þessu áður...) Maður verður nú að halda með sínu fólki,
MH-ingum.. En hann er ekkert smá mikið krútt! Og þá meina ég svona í sér. Söng lagið hans og kærustunar sinnar, mér finnst það mjög sætt :) Svo er hann líka krútt útlitslega reyndar... Ég vona að hann eða sjóarinn vinni, allavega ekki Anna Katrín, mér líkar ekkert vel við hana... :/
Ég var að syngja áðan, við sungum japanskt lag, og í einum hlutanum er svona talað á japönsku og það er talað svona lengst upp í rassgati og stokkið út um allt. Það er reyndar mjög gaman, en textinn er mjög erfiður :s Svo er frí á æfingu á fimmtudaginn því það eru Messías tónleikar um kvöldið og þangað ætla ég og einnig
Dísa,
Sísa,
Maja,
Iðunn,
Sigurborg og
Laufey að mæta og við sem vorum í Finnlandi (allar nema Laufey, hún var heima að læra (var að byrja í MR)) ætlum að hittast á kaffihúsi eða eitthvers staðar á undan.. Þetta er ekki alveg ákveðið en það verður líklega vonandi eitthvað úr þessu. Nú ætla ég að fara að sofa, ég er að sálast úr þreytu... Nicht sher gut... (hef enga hugmynd hvernig þetta er skrifað eða hvort þetta sé rétt mín þýsku kunnátta er engin)
God nat og sov södt :)
# posted by edda ósk @ 11:50 PM
lunedì, novembre 17, 2003
Já.. þá er ég komin heim.. Nú man ég ekkert hvað ég ætlaði að segja.. æjæj.. Já, gaman að því.. nú er komið spjall á
nfmh síðuna, líka gaman að því... Ég fékk svar frá pennavinum mínum í Andorra í dag. Frekar fyndið verð ég nú að segja, þ.e. enskan þeirra, en þau hlægja líklega að frönskunni minni svo það er best að vera ekki að segja mikið... Ég komst að því að skriflegaprófið í frönsku gildir bara 50%! Mjög svo gaman að því.. Sérstaklega þar sem ég hef frekar góða vinnueinkun, hún liggur einhverstaðar á milli 8 og 9 þannig að það lítur út fyrir að mér muni bara ganga vel í frönsku :) Já... Á morgun er ég að fara í þjóðmenningarhúsið.. gaman að því :o/.. Ég uppgötvaði núna nýlega að ég get skrifað á lyklaborðið án þess að horfa niður, þ.e. ég get horft á skjáinn og skrifað! Gaman að því, eða gaman að geta það.. Ætli ég geti ekki þakkað MSNinu fyrir það....
Ég var að komast að því að blogg er mjög sniðugt. Maður getur skammast út í allt og alla. Í rauninni ætti maður að hafa svona síkrit blogg sem enginn veit um þannig að maður getur skammast út í alla sem maður vill og þarf ekki að hafa áhyggjur að því að þeir lesi það og að maður særi aumar sálir.. Þetta er reyndar soldið illa gert.. (og svo þið farið ekki að halda að ég sé að skrifa illa um ykkur þá á ég ekkert svona blogg!) En samt... sniðugt... ;) Gaman að því.. En samt, blogg auka tjáningarþörfina, maður getur skrifað hvað sem er, hugsanir, hvað á dagana hefur drifið og solleiðis... Mig hefur alltaf langað að verða rithöfundur.. eða allavega langaði mig það einu sinni.. Ég hugsa samt að það sé bara gaman... Mig langar mjög í ísl 363 en veit ekki alveg hvort ég eigi að þora.. Maður þarf víst að lesa það sem maður skrifar fyrir framan allan bekkinn (ég þjáist sko af feimni á háu stigi, og er alltaf mjög taugaóstyrk þegar ég á að halda fyrirlestur fyrir framan alla) og svo kennir Ragnhildur Richter hann, og hún er víst annsi skrautleg miðað við sögur sem maður hefur heyrt frá Dísu og Mörtu (Var það ekki annars hún sem var að tala um tíðarhringinn í íslensku tíma??) En allaveg þá þarf ég að fara að lesa Catcher now, because I have essay on Thursday... Ég ætla ekki að fara að tjá ykkur mína litlu enskukunnáttu svo að ég held mig bara við íslenskuna.. æj, þarf að fara að borða..
# posted by edda ósk @ 7:07 PM
Jæja, já!! Þá er helgin liðin. Gerði nákvæmlega EKKERT um helgina... Eða, reyndar þá var ég að gera ritgerð í íslensku um rúnir og svo kíkti ég í barnaammæli í fjölskyldunni sem var hérna neðar í götunni, bara út af því að ég var í sykurþörf eftir að hafa hangið fyrir framan tölvuna allan liðlangan daginn... Og svo á sunnudaginn fór ég á ball!!!! Jibbí! Ég fór á myrkramessuna í MK. Það var bara ágætt :) Ég var reyndar soldið hnuggin snemma kvölds því þetta var ballið sem Jói ætlaði að fara með mér á (við höfum sem sagt aldrei farið á ball saman :(.... ) Sísa ætlaði að reyna að hella einhverju í mig til að ég færi og gerði eitthvað af mér á ballinu, en það tókst ekki hjá henni.. ;P Ég hitti alveg slatta af fólki sem ég þekkti, misjafnlega vel samt.. Æj, æj... ég er að fara á óperuæfingu... Klára þetta seinna...
# posted by edda ósk @ 4:42 PM
lunedì, novembre 10, 2003
Ekki sniðugt, ég varð sjálf númer 105.. :P En hver verður þá´númer 110? Sá hinn sami má láta mig vita í kommentinu :P Ég var að koma af æfingu. Það var svo sem ágætt. Hitti
Önnu Guðrúnu og kjaftaði fullt við hana á milli þess sem ég söng eitthvað. Ég var samt ekkert að nenna þessu eila. Þetta er svona soldið skref aftur á bak miðaða við Graduale. Það fer allavega soldið í taugarnar á mér að geta ekki fengið að lesa áfram, fá bara að gera eina línu í einu. Þetta lag var reyndar soldið erfitt. En það var ekki eins og ég væri að einbeita mér eitthvað, þannig að ég hugsa að það sé nóg að æfa það nokkur skipti heima og þá er ég komin með þetta :) EN allavega, ég þarf að fara að lesa. Góða nótt. Æjj.. það er að koma nótt, ég ætla að vona að ég sofi betur núna en í gær. Kemur það einhvern tíman fyrir ykkur að þig getið ekki sofnað því þið eruð að hugsa alveg rosalega mikið og velta ykkur upp úr einhverju. Ég er allavega alltaf að því. Svo er eins og mig dreymi um fólk þegar ég ógeðslega pirruð út í það eða reið eða sár. Og allavega síðustu tvö skipti var það eitthvað gott um manneskjuna... Já.. Stundum held ég reyndar að ég hugsa of mikið.. Og það er allt eintóm steypa, ekkert af viti. Já.. Mér finnst líka alltaf skrítið hvernig maður getur hatað einhvern en samt þykir manni alveg ótrúlega vænt um hann eða hana. Manni er illa við mannekjuna en vill samt ekkert frekar en að hún komi til manns og segji eitthvað. ÞAð er t.d. ein manneskja sem forðast mig þessa dagana, og ég er mjög leið yfir því og reið og pirruð út í manneskjuna, en samt vil ég ekkert annað en að hún komi og tali við mig.. :( Já.. en hvað sem því líður þá er ég farin að lesa núna!
# posted by edda ósk @ 10:47 PM
Vá hvað það hafa margir komið í heimsókn síðan ég var hér síðast.. ÞAð voru 85 búnir að koma held ég.. Hver var númer 100?? hver verður númer 105? Jámm.. ég ætlaði að segja eitthvað, en ég man ekki hvað það var..
Ég var í stærðfræðiprófi í dag, og gekk bara ágætlega, allavega betur en í hinum prófunum, en ég lærði samt ekkert eila fyrir það. Í gatinu var mjög gaman. Anna Sóley var með svona tarot (kann ekki að skrifa þetta) spil og lagði nafnið mitt. ÞAð var bara gaman, en það var ótrúlegt hvað þetta passaði allt við mig og mitt líf. Veit samt ekki alveg hvort ég eigi að taka mark á þessu, en mig langar það alveg rosalega því þetta var frekar gott :) Hún gaf mér líka remedíu sem á að laga þetta þunglyndi mitt sem lagðist yfir síðasta sunnudag, sumum að kenna. Í dag er 10. nóv.. :'( :'( Ég hugsa að sumir hafi enga hugmynd um hvað ég er að tala en aðrir vita það.. Ég held að ég sé að fara á æfingu á eftir, þarf að hringja í Heiðrúnu, best að gera það núna svo ég gleymi því ekki. :)
# posted by edda ósk @ 6:42 PM
domenica, novembre 09, 2003
Hæ, hæ!
Nú er liðið langt síðan ég bloggaði síðast! alveg vika! Ég hef reyndar alveg fullt af ástæðum fyrir að hafa ekki bloggað. Það er allt í einhverju rugli. Ég skrópaði í ensku á föstudaginn bara út af því að ég var eitthvað svo skrítin og leið illa (reyndar var svo víst próf í bók sem ég er ekki byrjuð að lesa, og það lítur út fyrir að ég sé að fara að falla í ensku! Ég er meira að segja næstum alveg 100% viss um að ég muni falla!) Já.. Ég var að koma úr bíó. Það var bara gaman :) Í gær ætlaði ég í bíó með Önnu Sóley á Kill Bill í Regnboganum, en kellingin (reyndar var hún á sama aldri og ég, kannski 2 árum eldri) vildi ekki hleypa okkur inn því Anna Sóley var ekki með skilríki!! Ég meina, síðan hvenær þurfti maður skilríki til að komast inn á einhverja mynd?!?!? Svo gat hún ekki einu sinni litið í augun á Önnu þegar hún sagði að hún væri 16 ára! Við fórum úr röðinni en ákváðum að fara aftur í hana til að rífast eitthvað í kellunni. Þá birtist KK og stillti sér í röðina fyrir aftan okkur við vorum að tala um þetta, hvort hún gæti flett upp í þjóðskrá eða hvort að einhver fullorðinn sem væri að fara á sömu mynd gæti ábyrgst það að hún væri 16. Við ákváðum svo að fara úr röðinni og skella okkur bara á Óðrík, sem við ætluðum upphaflega að gera. En þá spurði KK afhverju við værum farnar úr röðinni, og við útskýrðum það og hann var mjög leiður yfir þessu fyrir okkar hönd, og sagðist gjarnan vilja hjálpa okkur, en hann gat það ekki, hann var ekki að fara á Kill Bill, svo við gátum ekki notfært okkur hann :P
Þá lá leið okkar í MH. Þar borguðum við 500 kall (spöruðum alveg 300 kall á þessu) inn og skemmtum okkur vel og vandlega :) Við lágum í hláturskasti reyndar mest allan tíman og fólk var farið að líta okkur með stórum augum :P Slöngustrákurinn var að spila í einu laginu og við það gjörsamlega sprungum við! og það var þögn þegar það gerðist :P Sólrún, Auja, Hjalti og Jói vildu fá að vita afhverju við vorum að hlægja, en við gátum varla náð að segja þeim það fyrir hlátri. En ég held að ég hafi náð að koma einhverju út við Jóa sem sat við hliðina á mér.. Talandi um hann. Ég held af einhverjum ástæðum að hann sé að forðast mig, veit samt ekki afhverju.. Ég held að hann lesi þetta ekki svo það ætti að vera í lagi að segja eikkað.. En ég var að tala um slöngustrákinn.. Þegar lagið var byrjað labbaði hann út í horn og settist niður og spilaði sitjandi einhverstaðar út í horni! Hann var að spila á bassa.. Já. Fyrirgefiði hvað ég æði úr einu í annað, en fyrir utan að vera skrítin er ég líka þreytt, en ég er að spá í að læra smá núna og fara svo að sofa.. Ég þarf að gera eitthvað í þessari vinnubók í sögu. Ég hef eila eingan tíma til þess á morgun því ég þarf að læra fyrir stærðfræðipróf!!!!! :'( ÉG er líka að fara að falla í stærðfræði.. :/ og svo þarf ég að klára mon alter ego í frönsku og lesa þessa he** bók í ensku! eN nnú er ég farin.. bæbæbæbæ og góða nótt..
# posted by edda ósk @ 1:01 AM
sabato, novembre 01, 2003
Þá er maður komin enn og aftur fyrir framan tölvuna að bloggast. Í gær var fótboltamót í skólanum, MH, og ég skellti mér þangað. + Keyrði sjálf niðreftir í Fífuna og svo þegar við vorum að koma inn var sagt við Önnu "ég veit að þú ert í skólanum" en svo var ég spurð hvað ég héti! Ég tek það fram að Anna er í MK, en ekki MH! Reynar vorum við búin að ákveða að hún ætti að heita Auður Olga Skúladóttir en hún þurfti ekki einu sinni að segja til nafns.! Svo þegar ég og Anna vorum búnar að finna krakkana voru þau að keppa á móti liði og þau voru tvem færri svo ég og Sísa skelltum okkur inn á, en staðan var orðin 1-0 fyrir okkar liði, Vamba (don't ask), við bættum svo við einu marki til viðbótar og unnum því 2-0! Gott og gaman. Verð samt að segja að mér fannst mjög fyndið að sjá gáfuðu busastelpurnar sem eru með mér í stærðfræði vera að spila þarna blidfullar! Hjalti var í marki og varði tvö mörk!! Gegt duglegur! :D Margt og mikið gerðist þarna, eins og að áfenginu þeirra Sísu og Krissa var stolið af gæsluvörðunum og það kom sjúkrabíll og fleira.. Þegar mótið var búið átti að hlada í Grafarvoginn heim til Sylvíu, en það er svo langt og ég þurfti að koma snemma heim til að geta hjálpað við ammælið svo að ég og Anna löbbuðum heim. Í kvöld er sem sagt ammælið hjá foreldrum mínum og ég þarf eila að fara að skipta um föt, svo bless, bless.. =)
# posted by edda ósk @ 5:51 PM
