sabato, gennaio 31, 2004
venerdì, gennaio 30, 2004
Nú er þessu einmannalega-tölvunörda-gati mínu lokið og nú ætla ég að halda á vit efnafræðinnar! :)
giovedì, gennaio 29, 2004
mercoledì, gennaio 28, 2004
Ég var svo glöð, ég hoppaði af kæti! Ég var meira að segja meira glöð en ég var þegar ég fékk bréfið frá MH um það að ég mætti fara að kalla mig MH-ing! Eða það held ég.. það er svoldið langt síðan ég fékk það bréf.... En allavega þá er ég að fara næsta sumar og verð í heilt ár!!! Ég er ekki búin að ákveða til hvaða lands, en mig langar soldið til Suður-Ameríku... Yfirvaldið á heimilinu verður samt að samþykkja það og ef ég á að sannfæra hana móður mína um að mig langi að fara til Suður-Ameríku og það sé allt í lagi að fara þangað þá er eins gott að byrja í dag svo ég nái því fyrir daginn sem ég á að skila framhaldsumsókninni inn... En í þeirri umsókn er allveg fullt, fullt, fullt, fullt af útfyllingarblöðum...
sabato, gennaio 24, 2004
Í gær var fyrsta Gettur Betur keppnin. MH gjörsamlega rúllaði yfir vestmanneyingana og enduðu leikar 36-12! og þeir fengu 1 stig fyrir gleði sína.. Næsta keppni er á föstudaginn á móti Verzló og litlu snobbuðu verzlingarnir verða teknir í karphúsið þá! ;) En það kemur samt eitt babb í bátinn ( hver fattaði eila upp á þessu? babb í bátinn og karphúsið? reyndar kunni ég einu sinni úrskýringuna á karphúsinu.. en það var bara einu sinni). Ég er nefnilega að fara á árshátíð hjá gröllurunum (= Gradualekór Langholtskirkju). En ég verð samt að mæta á Gettu Betur! Hvað skal gera?!? Já talandi um litla verzlinga, þá vorum ég og Dísa í Smáralindinni í dag og í einni búðinni heyrðum við smá bút úr samtali tveggja verzló stelpna.
verzlóstelpa 1: "Já, við alveg rústuðum þeim í gettu betur!"
verzlóstelpa 2: "geðveikt"
verzlóstelpa 1: "við keppum næst við MH. Þeir fengu reyndar fleiri stig en mr. en við bara völtum yfir þá á föstudaginn"
verzlóstelpa 2: "já við gerum það"
Ég get nú ekki ábyrgst að þetta hafi verið nákvæmlega svona, en það var allavega í þessa áttina ;) En við Dísa litum á hvor aðra með glotti. "svo þær halda það" ;)
Eftir Gettu betur var haldið niðrí bæ ásamt Mörtu og Dísu. Áætlunun var sett á kaffihús. Eftir að hafa eytt löngum tíma í að leita að bílastæði héldum við í áttina að Kaffi París. Þegar við löbbuðum inn tókum við eftir skilti sem stóð á: 18 ára aldurstakmark eftir 20:00! Við fórum samt inn!! En það var ekkert laust svo við héldum út aftur :( Svo var ráðist á Laugarveginn en þegar við komum að Kofa Tómasar Frænda var nú bara 21 árs takmark inn! Við lögðum ekki einu sinni í það að opna dyrnar, þar sem hvorki ég né Dísa erum orðnar 18 ára! Dísa verður það samt eftir nokkra daga, en ég er rétt búin að vera 17 í 2 mánuði! Sem þýðir að ég verð ekki 18 fyrr en eftir 10 mánuði!!!! Ég þoli ekki að eiga ammæli seint!! Sérstaklega þar sem ég á vini sem eru ári eldri en ég, og nú get ég bara látið mig dreyma um að fara eitthvað út á lífið með þeim næstu 10 mánuðina!! Nema að einhver geti reddað mér skilríkjum? *hint* * hint* Eftir þetta héldum við upp skólavörðustíginn og inn á kaffihúsið Mokka. Þar fengum við okkur smá heitt í kroppinn og hittum meðal annars skúringarkonurnar í MH. Þær spurðu okkur hvort að við værum allar í MH (ég var í MH peysunni minni). Þær sögðu okkur að það væri alltaf hægt að sjá hvort þessir og hinir væru MH-ingar því það væri svo frjálslegur klæðarburðurinn á þeim! Ég var t.d. í grænu pilsi og röndóttum sokkabuxum... Ég hef líka tekið eftir því að þegar ég er á kóræfingum með Snæló kórnum þá eiga mr-ingar tveir þar og verzló stelpur nokkrar það til að líta fötin mín hornauga... og ég verð að segja að mér finnst það bara gaman þegar þær gera það! ;) Ég mundi aldrei nokkurntímann vilja verá í öðrum skóla en MH, og mér finnst klæðaburður MH-inga bara mjög flottur!! :) Hnefann á loft!!
og þá er skólaáróðnum lokið!
Þegar við vorum svo búnar að svala þorsta okkar á heitum drykkjum (er ekki soldil þversögn í því að segja svala ... á heitum drykkjum?) þá héldum við af stað í áttina að bílnum. Þegar við vorum svo komnar að kaffi reykjavík hittum við þá ekki fulla norðmenn! Einn þeirra byrjaði á því að grípa í mig og spurja hvert þeir áttu að fara. Svo spjölluðu þeir við okkur og þeir buðu okkur að hafa mök við einn þeirra sem var 21 árs! Hinir voru allir um fertugt!! Þessi 21 árs var nú samt sætur ;) En eftir smá spjall þá héldu þeir af stað á vit djammsins í reykjavík og við heim :)
En nú er ég búin að fá mikla útrás á allri þessari tjáningu, ég held að sumir sem ég var að tala við á MSN voru orðnir þreyttir á því hvað ég talaði mikið ;) Þannig að nú er ég farin..
Vá hvað ég dýrka inniskóna sem ég fékk í jólagjöf sem gelta þegar ýtt er á magann á hundunum sem eru ofan á þeim. Fyrir utan það að þeir eru geðveikt sætir og krúttlegir þá eru þeir mjúkir og heitir :) Bara svo þið vitið ;)
venerdì, gennaio 23, 2004
Marta er frábær manneskja og gleður mig með komu sinni á hverjum degi! (hún var sem sagt að að koma úr sögu og sagði mér að skrifa þetta ;)
Ég hef nú barasta ekkert að segja. Marta segir mér að halda áfram að tala um það hve frábær manneskja hún er, því hún fær ekki tækifæri á hverjum degi til að njóta sín á annarra manna bloggi ;) Hún tjáði mér það líka að það væru 66 skóladagar eftir af skólaárinu! Það er nú gott að vita, finnst ykkur ekki? ;) Svo er árshátið eftir mánuð og 3 daga..
Jæja.. Marta hélt á vit menntunarinnar og fór í sögutíma aftur, hjá Vamba ;) og ég er að spá í að gera slíkt hið sama og fara og hefta fallegu efnafræði skýrsluna mína og prjóna smá í treflinum mínum sem krakkarnir segja að muni taka mig TVÖ ár, en ég stefni á að ljúka við hann í páskafríinu ;)
lunedì, gennaio 19, 2004
Mér er kalt...
Mánudagar eiga það oft til að vera leiðinlegir, en þessi var það ekki. Ég var bara alveg í prógrammi frá korter í níu til níu um kvöldið. Ég byrjaði á leiðinlegum dönsku tíma hins vegar og það var rétt hjá mér að smásagan var leiðinleg. Svo fór ég í leiðinlegan sundtíma, sem var reyndar bara ágætur. Svo var íslenska og ég ætla að lýsa því yfir hér og með að ég ÞOLI kennarann ekki. Þú átt að taka Sjálfstætt Fólk fram yfir allt annað sem þú tekur þér fyrir höndum! Ertu að fara í partý á laugardaginn? Nei þú ferð ekki fet, verður heima að lest 100ogeitthvað blaðsíður um fólk sem er svo heimskt að taka kindina, eitt heimskasta húsdýrið, í guðatölu! Ég er sko búin að elta nógu margar rollur á minni ævi, sem er nú ekki nema rúm 17 ár, til að kynnast þessu dýri og ég mundi ALDREI taka kindina fram yfir mat handa fjölskyldunni minni. Kellingin brjálaðist yfir þessu og kallaði fólk tossa og sagðist ekki ætla að skipta sér neitt af því.. Ég gæti alveg trúað henni til að gefa fólki slæmar einkunnir því það var ekki búið að lesa á réttum tíma. En þessi dagur var mjög skemmtilegur samt sko. morguninn var bara erfiður, eins og allir mánudagsmorgnar! Eftir íslensku tók ég smá kast (í hádegishléinu). Skyrið mitt var vont og ég reyndi að troða því upp á alls konar fólk og enginn vildi það!! Langi tíminn var svo franska og það er alltaf gaman þar! Franskan er nú ekki mjög heillandi (ég skil ekkert það sem er verið að kenna okkur í augnablikinu) en ég bara með svo skemmtilegu fólki! ;) Sigríður Anna hótaði mér í tímanum að ég þyrfti að tala frönsku við hana þegar tíminn var búinn (ég átti nefnilega smá erindi við hana) en ég mátti samt tala íslensku :) Hún hefur kennt mér 3 annir í röð! Sem betur fer er hún svona skemmtilegur kennari og ég held að hún sé svona "nemenda kennari" eins og ég orðaði það um daginn, reyndar um Ásgrím..
Þegar skólinn var búinn fór ég í bankann og endurnýjaði kortið mitt og fór svo smá heim. Var mætt í tónlistarskólann klukkan 5 á óperuæfingu og hún var bara skemmtileg :) Svo fór ég í viðtal sem ég svaf ekkert fyrir í nótt og það gekk hreint út sagt vel :) Brosið hvarf ekki allan tíman og stelpurnar sem tóku viðtalið við mig voru gegt "næs" og skemmtilegar. Þegar ég kom svo út í bíl til mömmu var mér illt í bros vöðvunum.. Kannski brosi ég of mikið... hmmm... æj, ég segi nú bara brostu og hafðu gaman af :)
En allavega svo var LEIKLIST! JEIJ! Það var gaman.. :) Ég dýrka þetta námskeið og ætla pottþétt á fleiri leiklistarnámskeið segji ég nú bara.. :) Svo fékk ég 3 lög í söngnum, virka öll mjög skemmtileg og fín :) Ég kann meira að segja næstum textann úr einu þeirra.. Var að æfa mig áðan.. :)
En nú er ég farin að lúlla! Góða nótt :)
domenica, gennaio 18, 2004
Hej, hej alle sammen.. ;)
Ég var að syngja á tónleikum um helgina með færeyskum drengjakór! Frábært dettur ykkur kannski í hug, en síður en svo. Maður gerði sért smá vonir um að þetta væri kannski svona þroskaður kór, en nei, nei.. Þeir voru svona 6 til 12 ára!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :-/ Það átti svo að vera svona kvöldmatur og smá skemmtun þar sem við áttum að dansa færeyska dansa, en þar sem Dísa var fyrir austan og bæði Iðunn og Maja voru að fara og Sigurborg mætti ekki ákvað ég bara að láta mig hverfa! Ætlaði sko ekki að vera þarna með einhverjum smástrákum og dansa. Ákvað frekar að fara heim og lesa Sjálfstætt Fólk, áleot að það væri svona svipað gaman (og þá er mikið sagt því þessi bók er hreint út sagt drepliðinleg!!) Ég kláraði að lesa um svona 11 leitið og tók prófið um hálf 12 leitið og fékk alveg 100% í því samt! Skrítið hvað ég er alltaf svona gáfuð á kvöldin... Ég var ekki alveg viss hvort að það ætti að loka klukkan 12:00 þessu Angel dæmi svo ég c&p-aði ritgerðarefnin. Kennarinn okkar sagði að það mundi loka á Sunnudegi ekkert klukkan hvað eða neitt, svo loka aðrir kennarar á mánudegi og þriðjudegi.. Ekki sniðugt finnst mér.. En allavega ég fékk 10 og get verið ánægð með það og er líka búin að lesa það sem á að vera búið með. En ég nenni sko ekki að lesa það sem á að lesa fyrir morgundaginn svo ég verð bara að þola augnaráð frá einum íslenskufélaga mínum aðra viku. Ég held að þessi íslenskufélagi minn standi í þeirri trú um að ég sé vitlaus eða eitthvað í þá áttina, en þessi manneskja er svo snobbuð að mér er slétt sama, svo er hún (manneskjan) í MIKLU færri einingum en ég og er ekki að læra söng, setja upp óperu, vera í kór, læra á píanó, á söng og leiklistarnámskeiði og tónheyrn og hefur pottþétt meiri tíma en ég til að læra!! Ég er að verða brjáluð yfir hve lítinn tíma ég hef í skólann, ég ætti að taka upp "Lóu-aðferðina" og vera sífellt að læra í skólanum, en hver nennir því? allavega ekki ég, kannski er ég bara löt.. Ég vildi allavega að það væru svona 36 tímar í sólarhringnum ef ekki meira! Það er svo erfitt að velja á milli hluta. Ef ég gæti væri ég í miklu meiri tómstundum en það er ekki hægt að gera allt! Ég vildi samt að það væri svo.. Ég held að þessi póstur sé farinn að breytast í einhverja vitleysu... En mér er alveg sama. Æj, hjálp! Mánudagur er á morgun og mig kvíður fyrir því þegar klukkan verður 6 þá! AHHH... En ég get huggað mig við það að það er leiklist svo stuttu seinna :) Æjj.. hvaða hlut á ég að fara með...?? Ég á að koma með eeinhvern hlut og ljúga einhverja sögu um hann.. Einhverjar uppástungur??
æj ég nenni þessu ekki lengur...
martedì, gennaio 13, 2004
Já og Anna er lifnuð við!
Og ég gleymdi að minnast á það að Dísa sagði að ég hafði fengið far eftir stílabókina á nefið, þegar ég var að hvíla augun í dönsku tímanum ;)
Ég, Edda Ósk Óskarsdóttir sofnaði í Dönsku í dag! (ég veit samt ekki alveg hvort ég sofnaði, ég heyrði allavega fullt af því sem kennarinn sagði.. ) Ég semsagt var MJÖG þeytt! Ég gat ekki hladið augunum opnum og hausinn var farinn að detta til hliðar og allt, ég reyndi að teikna á blaðið mitt til að reyna að halda mér vakandi en ekkert virkaði. Svo ég lagðist fram á borðið og hlustaði á kennarann og svo var potaði í mig og ég hrökk upp. Ég náði samt að halda mér vakandi í þessar 10 mínútur sem voru eftir, vonandi var bara ekkert mikilvægt sem ég missti af... :-/
Þið sem segið að ég sé með fullkomnunaráráttu skuluð hlusta á þetta, eða öllu heldur lesa þetta.. Í stærðfræði í dag (sem var reyndar bara mjög skemmtileg því ég skildi allt og gat reiknað allt! :D.. ) sat ég við hliðina á einhverrri stelpu sem ég held að sé busi, allavega hef ég aldrei séð hana áður og ég man svona yfirleitt eftir andlitum. Þessi stelpa notaði reglustiku í ALLT! Hún notaði hana í að reikna hnitakerfi, sem ég reyndar skil alveg, en hún notaði hana líka í að teikna þarna dótið sem tekur kvarðvartrótina (sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu). Hún semsagt notaði reglustriku í það! Og hún var með rúðustrikaðabók!!! Ég varð ALVEG sannfærð um að ég væri ekki með fullkomnunaráráttu þegar ég leit svo á mína stílabók. Allt mjög stórt skrifað og í algjörri klessu sem ég ein skil, því ég er ekki enn búin að koma skipulagi á stærðfræðiglósurnar mínar. Þesssi stelpa varð svo að sjá glósurnar mínar því hún var svo lengi að skrifa því hún notaði reglustriku í allt!! Ég bara spyr, til hvers eru stærðfræðibækurnar rúðustrikaðar??????
En hvað um það ég var áðan í fyrsta sönglistartímanum mínum!!! :D Það var alveg FRÁBÆRT! :D Sem sagt það var mjög gaman (rosalega nota ég "sem sagt" oft.. ekki mikill orðaforði á ferð hér.. ;). Við byrjuðum í klukkutíma í leiklist og það var mjög gaman. Það var ungur strákur að kenna okkur og þorði varla að koma við okkur til að við mundum ekki kæra hann fyrir kynferðislega áreittni ;) Nei, nei.. hann var bara að grínast með þetta held ég nú :) En við fórum allavega í fullt af leikjum, eins og zip, zap, bójíng, síldartorfu (sem ég var nú ekki alveg að fatta) og að telja saman upp á 10, og það var ekki eins auðvelt eins og það sýnist. Við sáum ekki framan í hina og einn átti að segja eina tölu og engir 2 máttu segja sömu töluna á saman tíma því þá þurfti að byrja aftur á einum. Soldið ruglingslega útskýrt hjá mér, en þið vitið hvaða leikur þetta er bíst ég við. Við fórum í þennan leik í Finnlandi og við Dísa litum á hvor aðra með smá glotti ;) Þegar þessum öskrum og hlaupum á ærslum var lokið og adrenalínið alveg flæddi um mann héldum við inn í söngtíma. Þar sátum við fyrst alveg "upptjúnnaðar" eftir ærslin og svo kom söngkennarinn. Við lögðumst á gólfið og æfðum okkur í því að anda. Mér gekk bara vel, fékk 10 ;) og hún sagði mér allavega ekki að æfa mig, en ég geri það nú samt.. Svo þegar ég er búin að skrifa þetta mun ég líklega leggjast á gólfið og æfa mig í að anda.. (er það bara ég eða hljómar þetta soldið svona... ja, skríngilega?) Svo þegar við vorum allar búnar að anda fyrir kennarann fengum við að reyna að finna eitt lag sem við kunnum, í alveg ógrynni af alskonar geisladiskum. Frá Siggu Beinteins til Spice Girls og aftur til Latabæjar. Á endanum fundum við hver og ein eitt lag og þá var það sem flestir kvíddu fyrir: Syngja fyrir framan aðra. Ég verð bara að segja að stelpurnar stóðu sig bara mjög vel :) (ég ætla samt ekkert að segja um sjálfa mig þar sem ég get lítið dæmt um það.. ) Ég er strax farin að hlakka til næsta mánudags og ég skil ekkert í mér að hafa ekki prófað leiklistina áður, kannski að ég skelli mér bara í leikfélagið á næstu önninni minni! Hver vill koma með? ;)
Nú ætla ég hins vegar að lesa þessa smásögu í dönsku sem ég átti að lesa. Það á nú ekki mikið eftir að síjast inn þar sem ég er dauðþreytt eftir langan mánudag, en ég verð að riifja þessa dönsku upp, ég var búin að gleyma hvernig maður segir fullt af orðum sem ég ætti sko alveg að kunna!!! Góða nótt :)
sabato, gennaio 10, 2004
Íslenska 403: Eini 403 áfanginn minn af einhverjum ástæðum.. Hópurinn virkar mjög skemmtilegur eins og ég var búin að segja. Nokkuð margir sem ég þekki eru með mér. Salóme, Auður, Sólrún og fleiri eru með mér þannig að þetta á eftir að verða gaman :) Svo má maður sleppa lokaprófinu með því að skrifa einhverjar ritgerðir.
Danska 303: Ætlaði ekkert í þennan áfanga á þessari önn, ætlaði í dan 413 en hópurinn var fullur.. :( En Dísa er með mér svo þetta á eftir að verða ágætt. Svo á maður líka að tala soldið meira í þessum áfanga heldur en í 103 og 203 þannig að það er fínt :) Ekkert lokapróf, bara munnlegt próf!
Félagsfræði 103: Var í varavali, en táknmál var ekki kennt svo ég fékk félagsfræðina inn. Hljómar ágætlega. Ekkert lokapróf bara próf yfir önnina. Þannig að það lítur út fyrir að ég fari bara í 3 lokapróf! :D:D
Náttúrufræði 123: efnafræði. Virkar ágætt. Kennarinn er mjög ung, nýbúin með masterinn og mjög skemmtileg. Við erum 3 stelpur og svo mest megnis busastrákar og allir gegt klárir í þessu.. :-/
Stærðfræði 303: Ég er ekki enn búin að gera upp við mig hvort ég eigi að taka náttúrufræðibraut líka.. Þess vegna er í stærðfræði. Ég komst í gegn um 203 án þess að læra heima (samt ekkert með glæsibrag) og þetta virðist vera svipað. Ég er samt alltaf búin að læra heima núna og ætla að halda því áfram! ;) Bæði Salóme og Hjalti eru með mér, en við erum einmitt þau einu í stæ 303 á borðinu og lenntum öll saman! Halla er svo líka með okkur, þannig að ég sé ekki fram á 3. einmannalega stærðfræði áfangann :)
Franska 303: Það urðu 2 hópar í frönsku og svo vildi til að allir sem ég þekki vel lentu í sama hóp, ég, Anna, Auður og Kristrún. En hins vegar eru mest megnis af skemmtilegu krökkunum sem voru í 203 í hinum hópnum. Eða allavega svona 60% af þeim.. :)
Líkamsrækt: Það sama og venjulega.. Anna Sóley, Arna, Auja og Jói eru með mér svo ég viti, en ég á eftir að fara í þennan tíma, hann er á mánudaginn. Við erum mjög mikið í Kópavoginum. Fyrst í sundi svo í sporthúsinu og svo í Hlíðarskóla..
Lífsleikni 111: Einhver áfangi sem einhver fann upp. Farið í eina ferð og gert verkefni, svo skilar maður því inn og fær annaðhvort S eða F. Vonandi eru bara einhverjir skemmtilegir með mér í þessu :-/..
Þetta er sem sagt önnin mín. Virkar bara skemmtileg :) Þarf að fara í 3-4 lokapróf (í próftöflu) og er það frábært miðað við að ég hef verið í 5-6 prófum á önn og nú er ég með fleiri einingar en þá, sem sagt 20!! :)
giovedì, gennaio 08, 2004
Nú man ég ekkert hvort ég var búin að tjá mig um áramótin því ég get ekki séð póstana mína í þessari tölvu, en þau voru svo sem ágæt minnir mig.. Skaupið sökkaði samt!
Eins og þið flest vitið þá er skólinn byrjaður aftur. Ég er ekki enn búin að venja mig við það að vakna klukkan 7 og sínir það að ég sofnaði yfir Sjálfstæðu Fólki (aftur Sjálfstæðisflokkurinn), reyndar var það held ég líka að bókin var ekkert mjög spennandi, mér finnst leiðinlegt þegar bækur byrja svona með frásögnum af stðanum, ég vil bara komast í söguþráðin, sem sínir hvað ég er eitthvað ekki mikil bókmenntamanneskja, samt verð ég kannski að vinna á bókasafninu hjá pabba ef ég má :)
Ætti ég að hlada áfram með Harry Potter og taka áhættuna að sofna ekki yfir henni? hmm.. Jájá, sú bók er mikið skemmtilegri.. ;)
Listi yfir nokkra hluti:
1. Ekki tala við sjálfa mig á blogginu mínu.
2. Hætta að hugsa um Sjálfstæðisflokkinn og aðra (álíka) vitlausa pólitíkusa
3. Reyna að skrifa minni steypu á þetta blogg svo þið dettið nú ekki alveg niður dauð
4. Fletta nokkrum orðum upp á stafsetningu (er y eða i í stey/ipa? Aldrei verið neitt klár í stafetningu :/..)
5. Það er nú ekki hægt að hætta á 4. er það? ;)
venerdì, gennaio 02, 2004

Playful Orlando
What Orlando Bloom are You?
brought to you by Quizilla
Varð nú bara að taka þessa því ég fékk Orlando Bloom svo oft :P
En allvega þá fór talvan í fýlu og vildi ekki leyfa mér að opna netið, en nú er hún loksins komin úr fýlunni sinni greyið ;)
Jólin voru ágæt :) Ég fékk fullt af einhverju dóti, en bara eina bók :( En það var Harry Potter, og VÁ hvað hún er illa þýdd! Það voru tveir sem þýddu hana og greinilegt að nýja manneskjan þýddi fyrri helmingin.. :/ Ég er bara glöð að ég hafi lesið hana fyrst á ensku :) Talandi um ensku þá var ég að ná í stundartöfluna mína áðan og er í engri ensku! JEIJ!!! :D Ég fékk hins vegar vitalusan dönsku áfanga, en ætla að redda því :) Táknmál virðist ekki vera kennt því hvorki ég né Sigrún fengum það inn.. :( Ég ver bara að segja að mig hlakki soldið til að byrja aftur í skólanum þó að það hafi verið mjög gaman að liggja svona í leti! Ég ætla að reyna að rétta sólarhringinn við aftur núna um helgina því mér tókst að snúa honum við nátla :P En sem sagt þá ætla ég að fara að lesa þessa illu þyddu Harry Potter bók, svo veriði sæl að sinni! :)

You are naturally born with a gift, whether it be
poetry, writing or song. You love beauty and
creativity, and usually are highly intelligent.
Others view you as mysterious and dreamy, yet
also bold since you hold firm in your beliefs.
What Type of Soul Do You Have ?
brought to you by Quizilla
A GIRLY-GIRL. You dont have a lot of self-esteem
and people are always bringing you down for
being sad. What do they know, anyway? You feel
like youre too mature for your age and are
frustrated by the trend-followers who refuse to
accept you because youre not like them.
Your virtues: Intelligence, understanding nature,
modesty.
Your flaws: Lack of social life, inferiority
complex, timidity..
Ever wanted your picture taken with your favourite
celebrity? Well why not fake it and fool all
your friends for fun! Click [LINK REMOVED]
What kind of girl are you?
brought to you by Quizilla

You are going to Marry orlando Bloom. He will
always treat you right and is very romantic. He
will do anything for you. He is very polite and
has deep brown eyes and is very good looking
(which is another plus!). He can make anythind
cheesy look really good (like sliding down
stairs on a shield shooting arrows or wearing
pointy ears for example). Congrats!!
Which male celebrity are you going to marry? (10 results that have pics!)
brought to you by Quizilla
JEIJ! :D

Legolas
Please rate my quiz I worked hard on it thanks
Which Lord of the Rings person do you want? (many out comes for anyone plus pics to)
brought to you by Quizilla
aftur :P

You're the loving smile,the one that is entirely
devoted to others,especially that one
person.You really can't get them out of your
head,but then,you don't really want to.
What Kind of Smile are You?
brought to you by Quizilla
:)

Orlando Bloom is perfect for you. You love the
REALLY hot, REALLY sensitive guys. You like
the incredibly sweet guys that care about how
you're feeling and one that would be great to
kiss. You don't mind the occasional jealous
looks from the other girls either you know
he'll stay with you anyways ;)
What celebrity are you most compatible with? (16 outcomes w/pics)
brought to you by Quizilla
Vá.. þetta er í 3. sinn :/ :D Hann er nú soldið sætur ;)
You're a hippy chick! Cool, you have you're own
style, we like that! Go You! Plz r8 my quiz!
What's your clothes style?(Girls only)
brought to you by Quizilla
áhugarvert.. :P