<$BlogRSDUrl$>

mercoledì, marzo 31, 2004

Hvað varð um Boston Public??

Hvort segir maður á Ítalíu eða í Ítalíu?

sabato, marzo 27, 2004

Rosalega er gott að vera ein heima. ég get still tónlistana eins hátt og ég vil. gert það sem ég vil. horft á það sem ég vil í sjónvarpinu (þó að það sé drullu lélegt). Foreldrar mínir héldu nefnilega til Danmerkur í morgun og koma ekki fyrr en á þriðjudaginn svo að ég hef húsið alveg fyrir mig :) eftir nokkrar rökfærslanir fékk ég nefnilega að vera EIN heim. mamma var búin að koma mér fyrir í "pössun" en ég sagði henni að ég ætlaði nú bara að vera heima hjá mér! en ég þarf samt að heimsækja ömmu og systir hennar mömmu eitthvað aðeins.

Ég HATA sprautur! ég þurfti að fara í eina á fimmtudaginn fyrir stóra ferðalagið mitt og það var VONT. mér er búið að vera illt í hendinni síðan. þegar ég tjáði mömmu minni að þetta hafði verið vont þá sagði hún bara að ekki væri hún að biðja mig um að fara í burtu! það er allt notað gegn manni. sökum þessarar sprautu var ég svo lasin á föstudaginn og fór heim og missti af efnafræðiprófi. það á eftir að verða vesen með það. en meira að segja Anna Sóley sagði að það sé ekki endalust hægt að pína sig áfram og sagði mér að fara heim. þegar ég á við meira að segja anna sóley þá meina ég að sko þegar manni er sagt að það sé ekki hægt að pína sig endalust áfram af manneskju sem æfir sig minnst 6 tíma á dag á fiðluna sína (á virkum dögum) þá verður maður að hlíða. þessi föstudagur var sem sagt frekar skrýtinn. byrjaði í dönskutíma og horfði á bíómynd. var í 20 mínútur að ákveða hvort ég ætti að fara á synfóníutónleika og ákvað að slá til. mér var farið að líða frekar ill á tónleikunum en tónlistin var mjög góð og píanóeinleikarinn frábær og ég hafði gott útsýni! ;) þegar ég kom heim af tónleikunum, eða í mh þá prentaði ég íslenskuritgerðina út sem pabbi hafði sent mér því hann las hana yfir í morgun og sagði bara að hún væri nokkuð góð! :) um það leyti var ég að drepast úr illa líðingum (eitthvað í þá áttina). ég ákvað að fara heim og klukkan var oðrin 1 þegar ég kom heim og ég var svona "tæknilega séð" búin klukkan korter í níu. ég vona bara að efnafræðikennarinn verði góður við mig...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ AUÐUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :* íslensku- og frönskufélagi! (og ítölsku kennari ;)

venerdì, marzo 26, 2004

Ég er búin!! JESS!!
Ég sé rúmið mitt í hyllingum..........
klukkan er 3..
nighty night...
Til hamingju með afmælið Bryndís! (eða það var tæknilega séð í gær) já og sólveg líka...
illar
váá.. ég sit hér klukkan korter yfir 2 og er að skrifa íslenskuritgerð.... Ég er skrítin. Eins og er er ég með ritstíflu því ég er að reyna að pæla í því hvernig tilfinningar og ljóð ort undir rómantískum* áhrifum. um 12 leytið fannst mér þetta orðið mjög gaman, en núna um 2 eða hálf 3 er þetta ekki eins skemmtó anny longer... (ekki viet ég hvaðan þetta kom) en allavega þá vona ég að ég fái nú samt hærra en fyrir síðustu ritgerð.. svo er bara að skrifa eina góða ritgerð í páskafríinu og þá er ég komin með svona ja... allavega 7 úr ritgerða þættinum, fer eftir hvað ég fæ fyrir þessa, sem er þó nokkuð góð miðað við aðstæður þótt ég segji sjálf frá... Eða það koma svona kaflar sem ég er alveg að "meika sens" og svona inn á milli er smá bull svona til að fylla upp í eyðurnar.. Ég fæ kannski svona 8 :) hugsa að það sé raunsætt, þ.e. úr ölluym ritgerðunum.. Svo er ég líka að verða veik... mér er mjög illt í hausnum og smá í hálsinum og áðan þegar ég mældi mig var ég með smá hita, en ég kem pottþétt að skila þessari ljótu/yndislegu ritgerð og ætli ég neyðist þá ekki til að horfa á babettes gæstebud í dönsku í 1. tíma svo dísu leiðist ekki ;)



en ég er allavega farin að klára þessa rómantísku grein**

*Með rómantískum meina ég bókmenntastefnuna, ég var sem sagt ekki að fá neitt rómantískt ljóð frá leindum aðdáanda og er að reyna að finna hver það sé, ef þið vittleysingarnir héldu það.... (því miður þ.e.a.s. :(.... )

**Með rómantískri grein á ég ekki við að ég sé að skrifa rómantískt ástarbréf til ákveðins einstalkings ;) (mundi aldrei þora því og í dag er meira inn að senda bara í-meil, og lýsa klæðaburði *flíspeysum* ;) ;) það sem ég Á við er að ég er að skrifa grein um bókmenntastefnuna.... :P vitleysingarnir ykkar... ;)

btw.. ég tek enga ábyrgð á því ef þessi póstur er steiktur.. klukkan er hálf 3 og ég svaf 4 eða 5 tíma í gær, það stefnir í aðra svoleiðis nótt og ég er að drepast úr þreytu....

Góða Nótt rúsínurnar mínar!! :*

martedì, marzo 23, 2004

mér er búið að leiðast svo mikið að ég er búin að "búa til" 2 ný blogg! eitt af þeim ætla ég svo að nota í Ítalíu.
Jæja.. kjósiðið nú!!!!!!!!

Jæja...
á að nota
þetta blogg?
eða þetta?
eða kannski bara þetta gamla góða?
Tékkið á þessu!!

btw.... ég sendi AFS e-mail og á að fá svar á næstu 10 dögum, tvem vikum!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! JÚHÚ!! :D

mercoledì, marzo 17, 2004

en nr. 1500???????? :) Hann fær snúð !!

domenica, marzo 14, 2004

Ég bara einfaldlega verð að kvarta smá... Það er bara allt of mikið að gera á næstunni! Það eru 4 ritgerðir, einni á að skila á morgun (en það er frestur til föstudags, svo ég mun væntalega skila henni þá eða á fimmtudag), svo er ein næsta föstudag þar á eftir og svo eru 2 í 1. vikunni í apríl og báðar gilda einhver 20% 1. apríl er félagsfræðiritgerð og 2. apríl er íslenskuritgerðIN... Og ekki nóg með það þá er sýningin í leiklistinni að fara að bresta á og ég kann ekki textann í laginu mínu enn þá, svo er allt að verða brjálað í þessari óperu! Ég á að fara að læra röddina mína utan að og ég veit ekki hvernig ég á að fara að því þar sem henni er breytt á hverri æfingu og 1. leikæfingin er á morgun! SJITT! Svo þarf ég líka að vera dugleg fyrir sönginn því ég er að fara að taka þetta grunnnámspróf í vor og ég er ekki búin að æfa mig mikið síðan eftir jól! Og svo eru þessir vanalegu hlutir, píanóið, kórinn (sem ég er alvarlega að spá í að fá frí í þangað til eftir jól, við erum hvort eð er ekkert að æfa nema Håb sem við lærðum í fyrra og það er hundleiðinlegt að æfa það sem maður kann!!), tónheyrn og svo allt hitt í skólanum!! Æjji, ég vildi að allt svona lagað dreyfðist jafnara yfir allar vikurnar, það var t.d. ekki mikið að gera í febrúar og ég er alltaf svona manneskja sem fattar ekki að vinna fram í tímann, eða svona LANGT fram í tíman, einfaldlega nenni því ekki... SVo ætla ég líka að hvarta yfir því að ég sé ekki búin að svar frá AFS í Ítalíu og mig langar í það núna STRAX!!! og helst bara í fjölskyldu í GÆR! En hún kemur víst ekki fyrr en í sumar bíst ég við... Mg langar líka alveg voðalega að fara til útlanda eitthvað.. Bara hvert sem er! Svo þarf ég líka að ákveða hvort ég eigi að fara til Ítalíu með "gamla kórnum" mínum....
Rosalega getur lífið verið erfitt stundum... :-/

sabato, marzo 13, 2004

Jámm.. Komin helgi! :) Ég var á morfís áðan og það var heljarinnar stuð!! Umræðu efnið var Verzló og MH á móti! Þetta var sttröng og erfið keppni og góð í alla kannta og liðin bæði mjög góð! Ræðumaður kvöldsins var Atli Bollason og MH vann með 62 stigum og dómarar voru ekki sammála um vinningsliðið, en MH vann og keppir á móti verzló í úrslitum!

En í annað.. Aldur. Aldur er skrítið fyrirbæri. Það stendur fyrir tímann, því eldri sem þú ert því meiri tíma hwfur þú lifað á jörðinni. Aldur er líka tákn. Stöðutákn. Þegar þú ert orðin 20 máttu kaupa vín, þegar þú verður 17 máttu taka bílpróf og þegar þú ert 18 máttu fara inn á skemmtistaði. Aldur kemur samt mismunandi fram á fólki. Sumt fólk lítur úr fyrir að vera eldra en það er og sumt yngra en það er, eins og ég t.d. Ég lenti síðast í því í dag að það var haldið að ég væri yngri en ég er. Ég var að tala við einhvern kall í símanum sem var að reyna að ná í pabba. Hann spurði mig hvort ég gæti skrifað miður númerið hans og nafn, en svo sagði hann. Eða geturu það, hvað ertu gömul? Ég varð náttla stór móðguð og tjáði honum að ég væri að verða 18 ára bráðum! (ég veit það er ekki fyrr en eftir rúma 10 mánuði en samt..) Þá fót hann bara að hlægja og sagði að ég hljómaði svo ung í símanum.. Ég veit ég er með barnalega rödd, en gætuði trúað því að ég væri 5 eða 7 ára?? Í fyrsta sinn sem Dísa sá mig var hún sannfærð um að ég væri 1 ári á undan í skóla ef ekki bara 2. Það var þá eins gott að ég fór ekki á undan í skóla segji ég nú bara... Það er mikill mórall að vera svona barnalegur þegar maður er á þessum "djamm árum" ég kæmist örugglega ekki inn á fölsuðum skilríkjum og það verður örugglega eitthvað vesen eftir að ég verð svo 18 ára! En svo kemur það upp á móti að þegar ég verð eldri mun ég vera unglegri því allir vilja vera sem unglegastir á efri árum okkar eins og samfélagið er í dag. Dæmi um það er fyrrverandi píanókennarinn minn sem gekk um í dragt, með ælæner og maskara á augunum og þykkt lag af meiki á andlitinu, gekk um í dragt og háum stígvélum með hæl og tók strætó. Söngkennarinn minn kallar mig líka Eddu litlu. Mér fannst það reyndar soldið fyndið þegar ég hafði ekki mætt á 2 óperuæfingar í röð svo ég var soldið "lost" í þessum sleikjópinnum sem eru ekki sleikipinnar heldur nótur og þá sagði hún: "það verður einhver að hjálpa henni Eddu litlu". Kannski er ég kölluð Edda litla því ég er lágvaxin.. Hver veit. En það er pottþétt COOL að vera lítill :)

Maturinn fór eitthvað illa í mig, hlít að hafa borðað og hratt... :/

domenica, marzo 07, 2004

Hver verður nr. 1400????????????????????????????????????????????????????????????


create your own visited country map
or write about it on the open travel guide


Hér er kort yfir þau lönd sem ég hef komið til :) Og senn mun Ítalía bætast við og kannski eitthvað fleira ;) öll löndin sem ég hef komið til hef ég farið til 2var eða oftar nema til Finnlands og Noregs.. En takmarkið fyrir framtíðina er að reyna að fylla kortið rautt (allavega reyna er þaggi?) Allavega langar mig að fara til S-Ameríku í svona sjálfboðastarf og koma til flestra landana þar..
Svo hver vill koma með mér? :)

lunedì, marzo 01, 2004

Árshátíð MH: Já, nú loks var komið að hinni lángþráðu árshátíð okkar í MH, stærsta balli ársins og hugmyndaríka fólkinu í skemmtiráðinu datt í hug að hafa hana á Selfossi! :) Sniðugt? Eða ekki sniðugt? Allavega það sniðugt að margur maðurinn hætti við að leggja á sig að ferðast með rútu um miðja nótt :) En ekki voru það allir sem beiluðu svo að við nokkur saman skelltum okkur bara í matinn líka :) Þegar við vorum loksins orðnar tilbúnar, ég, Anna og Steinunn, komnar í okkra fínasta púss og málaðar upp fyrir haus var farið niðrur í MH og beðið eftir rútunni með viðkomu í Nóatúni að kaupa batterí í myndavélina. Í rútunni var eingin sérstök stemning en fólkið fyrir framan okkur var á fullu að drekka og vera góð á því :) Maturinn var hrein snilld og ég jafn matvönd og ég er borðaði hann allan, alveg frá reykta laxinum til kúrbítinns en ég var samt alltaf síðust að klára matinn minn.. (afhverju ætli það hafi verið??) Þannig að það er pottþétt málið að fara í matinn aftur á næstu árshátíð sem verður 2006 ;) Kynnir kvöldsins var samt mjög lélegur á því en þar sem ég hafði gott útsýni á annað þá var það allt í fína. Árshátíðarmyndin var fín, þó ég hefði ekki heyrt sumt sem fólið var að segja og að það var hringt í mig á meðan á myndinni stóð ;) Þegar við fórum svo út út matnum hittum við Dísu, Kristrúnu og Bryndísi og þeirra gaura. Næsti partur var soldið slappur en þegar Gaur byrjaði að spila var stuð komið í mannskapinn en ekki allir fíluðu sig jafn mikið við tónlist þessa Gaura en í 2. tilraun kom mesta stuðið! :) Margt gerðist nú á ballinu eins og það að tyggjói var klínt í hárið á mér og bolinn hennar Kristrúnar, Sölvi lærði að dansa ;), ég hitti Soffíu efnafræðikennara á klósettinu og Einar Busi dansaði smá við mig og Dísu. En fyrir þá sem vita ekki hver Einar er þá var hann með mér og Sísu í tónfræði og hljómfræði og hann þoldi okkur ekki!! Þegar við Sísa vorum niðursokknar í djúpar samræður um eitthvað annað en hljómagang þá átti hann til að senda okkur svona ILL augnaráð.. :P En hann er samt mjög fínn strákur örugglega, góður leikari og fleira ;) thíhí.. Um 2 leytið, eftir tyggjó uppákomurnar, þá var stuðið í Selfoss genginu búið og það hélt heim, eftir það var bara leiðinlegt.. Jámm.. Svo við fórum rétt fyrir hálf 3 og í rútunni var bara sofið ofaná hvort öðru ;)

Ég tók svo myndir, ekki allar komnar inn, þær er að finna undir Myndir - Árshátíð 2004 :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?