<$BlogRSDUrl$>

mercoledì, aprile 28, 2004

Sól og sumar og stressandi dagar. 

Já, sólin lék við okkur menntskælingana í MH í dag. Hádegisfrímínúturnar voru teknar í sólböð og að lesa um hana Tippi og félaga. Svo var skellt sér í smá snúsnú og svo var okkur gefið pepsi og svo híjuðum við á krakkana inni sem voru að læra stærðfræði ;) Svo þegar við Dísa og Sindri vorum búin að tala um munnlegaprófið okkar í dönsku var haldið heima og æft sig eins og brjálaðingur á píanóið. Svo var píanótími. gekk alveg allt í lagi þar sem ég er búin að vera mjög dugleg að æfa mig. samt gekk ekki eins vel og ég get spilað þetta á píanóið mitt. er þetta bara ég eða gengur illa að spila á önnur píanó, og þá sérstaklega flýgla? og ég vil fá svör helst, athuga hvort þetta sé þá bara enn ein staðreyndin um meiningu Kristjáns um að ég sé skrýtn eða hvort þetta sé algengt. En svo var sungið í sjónvarpinu, gekk bara vel og ég ætla að vona að þið hafið öll (ekki) séð það!!! svo var generalprufa óperunnar. þeim maju og sigurborgu varð ekki að óskum sínum um að okkur gengi illa (samkvæmt þeim þá á að ganga illa á generalprufu til þess að frumsýningin verði góð) en löggan er bara ekki að standa sig. ég meina það. kórinn kann allur hlutverkið hans en ekki hann sjálfur :/ Frumsýningin er sem sagt á morgun og þið ætlið öll að koma, er þaggi? ;)

Morgundagurinn er svipaður, ég kemst EKKERT heim til mín fyrr en svona hálf 10, jafnvel seinna ef það verður frumsýningarpartý eða ég fer að ná í mömmu á flugvöllinn. úff.. föstudagurinn er eins. er bara í síðastatíma og svo munnlegudönskuprófi klukkan hálf 10. ég þarf að hafa bæði klarinettið mitt og kórbúningin meðferðis. meira úff... :/ svo er komin helgi. jeij! þá tekur við stífur frönskulærdómur. svo er önnur sýning á mánudagskvöld, kvöldið fyrir frönskuna.. úff...

nóg af úffum. er farin að úffa mér í svefninn..
góða nótt :*

domenica, aprile 25, 2004

Hvar er Dísa??? 


Hvar er D 


sabato, aprile 24, 2004

Alþjóðleg Edda 

Af vafri um netið komst ég að því að Edda er til sem þýskt nafn, eða þá að mjög margar íslanskar Eddur hafa yfirtekið þýskalandið;) Mér finnst þetta soldið skrýtið þar sem ég hélt að nafnið væri bara til á íslandi enda mjög fornt íslenskt nafn, en ætli snorra-eddan hafi þá ekki haft þau áhrif að það sé til í fleiri löndum :)

Merkilegir viðburðir í næstu viku sem þið megið (ekki) missa af !! ;) 

Fim. 29. maí. kl. 20:00: Frumsýning á Amelía fer á ball eftir Gian Carlo Menotti. Aðgangur ókeypis!!
Þetta er gamanópera sem er sett upp af söngdeild Tónlistarskólans í Kópavogi.


Fös. 30. maí. kl. 17:00: Håb eftir John Höjbie. Einsöngvari: Eivör Pálsdóttir Kór: Gradualekór Langholtskirkju
Þetta er danskt jazzpáskaverk sem verður tekið upp og sýnt á Íslandi, Færeyjum og Danmörku auk þess sem tónleikarnir verða gefnir út á DVD disk.

Mán 3. maí. kl. 20:00: Seinni sýning óperunar Amelía fer á ball. Aðgangur ókeypis

venerdì, aprile 23, 2004

Litla svefnpurkan Edda Ósk vaknaði klukkan hálf sjö og fór bara og æfði sig á píanóið og æfði til hálf átta. Hún bara gAt ekki sofnað aftur. var líka búin að vera sí vaknandi alla nóttina. úff...

Eftir skóla var óperuæfing. efnafræðikennarinn var ekkert alveg að sætta sig við það að ég þyrfti að fara en til þess að milda hana reiknaði ég dæmin sem átti að reikna ;) svo endaði þetta bara á því að hún hleypti öllum út á sama tíma og ég var að fara. mórall. en reyni að hugsa það þannig að ég missti þó allavega ekki af neinum mikilvægum glósum:) óperuæfingin gekk svo ágætlega. löggan kann ekki alveg hlutverkið sitt og kennarinn er mjög pirruð. og líka út í sumar í kórinum þar sem þær kunna hlutverkið sitt ekki nógu vel eða leika ekki nóg. hún er samt ekkert pirruð út í mig. að hennar sögn er ég sú eina sem kann hlutverkið utanbókar (sem er reyndar ekki alveg rétt því ég er ekki nógu viss um suma staði, en ég kann hlutverkið betur en þær sem eru með mér í rödd). hún er líka mjög ánægð með það hvað ég leik mikið, ætli leiklistarnámskeiðinu sém ég var á sé ekki það að þakka ;) það skrýtna var samt að þó að ég kæmi svona 15 mín og seint skammaði hún mig ekki neitt, ég meira að segja sagði henni ekki að hafði verið að koma beint úr skólanum en hún skammaði aðrar tvær mjög mikið sem komu svona 3-5 mín. seinna enn ég og hafði víst skammað þær í símann líka. svo sagði hún að við mættum ekki koma of seint á mánudaginn en ég tjáði henni að ég væri enn í skólanum og kæmi nú ekki á mínútunni og það var bara í besta lagi hjá henni :P En þið skuluð ekki halda að hún sé bara alltaf pirruð. í síðasta söngtíma var hún að tala við mig um ítalíu (landið sem ég mun fara til eftir 133 daga btw) og hún sagði að hún þekkti konu þar sem væri mjög góður söngvari og hafði sungið með einhverjum gaur sem er örugglega frægur en ég hafði aldrei heyrt minnst á og að hún ætti heima í Róm. hún er víst alveg besta manneskja og mikið yndi. hún er nú ekki mikið að kenna núna en hún gæti örugglega fundið söngkennara handa mér og ég gæti örugglega talað við hana ef það bjátaði eitthvað á :) í síðasta tíma fékk ég líka sirka dagsetninguna á grunnstigsprófið (1.-3. stif fyrir þá sem skilja ekki þessa nýju námskrá) og verður það sirka 24. maí sem er frekar seint miðaða við að stelpurnar í kórnum eru að taka sín núna á næstu vikum held ég, en þá hef ég meiri tíma til að læra alla þessa texta. ég held ég fari bara og æfi mig.
bæbæ

giovedì, aprile 22, 2004

Gleðilegt sumar !! 

Í dag er sumardagurinn fyrsti og fimmtudagur sem þýðir að það er föstudagur á morgun og þá er komið aftur frí !! Í tilefni dagsins tók ég til í herberginu mínu sem var orðið löngu tímabært. Skólabóka og pappírsflóð var á gólfinu og inn á milli fann ég svo afganginn af páskaegginu mínu og kláraði það í tilefni dagsins líka. Svo skúraði ég og þurfaði af, en nennti sko ekki að koma röð á geisladiskaflóðið, því þeir eru ekkert fyrir mér þarna í hillunum. Ég er ekki búin að vera dugleg að læra samt. Gerði eina blaðsíðu þó í ritgerðinni og núna eftir þetta ætla ég að æfa mig eins lengi og ég mögulega get pínt mig á píanóið. Ég reyndi að æfa mikið í gær en var alltí einu bara farin að "bulla" eitthvað lag upp úr sjálfri mér og spila hljóma undir, það leiddi svo til þess að ég æfði mig fyrir sönginn, sem var náttla gott mál. En það bitnaði á pianóinu, því ég er sko ekkert að standa mig vel þar og kennarinn á eftir að skamma mig á morgun fyrir að æfa mig ekki nógu mikið. mér bara finnst þetta ekkert svo skemmtilegt. söngurinn er mikið skemmtilegri og líka klarinettið, enda væri ég alveg til í að skipta píanóinu út fyrir klarinettið. Svo stend ég mig líka mikið betur í söngnum :P Kennarinn var allavega mjög ánægð með mig í síðasta tíma og held hún hafi aldrei hrósað mér eins mikið og fæ ég oft hrós frá henni.

En út í annað. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. á miðvikudaginn voru svona skólatónleikar fyrir nemendurnar og það var náttla bara gott því þá þurfti ég ekki að vera í leiðinlegum íslenskutíma. en allavega. það kom mér mjög á óvart hvað sópraninn hjá þeim er lélegur. eða, það eru ekki nógu margir í sópran. ég taldi og þær voru 25 og 24 í alt. það vantar mikið fleiri til þess að þær hljómi betur og svona. ég og dísa ætlum að bæta úr því ;) en nú er kominn matur. grill matur. jálesendur góðir. sumarið er komið !!

mercoledì, aprile 21, 2004


skemmtileg próf ;) 

How would you do on American Idol? by geela
Name
Age
Simon saysYou don't have what it takes
Paula saysI could listen all day
Randy saysThe show WILL be about talent
Success levelYou make the top three
Created with the ORIGINAL MemeGen!


haha :P kannski ég ætti að taka þátt í Idolinu ;)


What do the LOTR men think of you? by ladyearwentari
Name (LJ or Real)
Viggo said yourcool
Orlando says the sex wasdamn good
Elijah imaginedyou in a red and black corset with a whip
Sean B could notfigure out your weirdness
Karl freaked out whenhe saw your big boobs
Dom thinks you lookcute
Billy noticedyou have a big ass
Created with the ORIGINAL MemeGen!


hmmm... :/

Rukkanir og pirrandi símtöl 

ég fékk smá sjokk áðan. fékk bréf frá AFS og ég hugsaði "vá, ekki getur verið að ég sé búin að fá fjölskyldu" það gat samt ekki verið því ég er ekki einu sinni búin að vera "í boði" í viku. Þá var þetta bara rukkun (réttara sagt var verið að minna mig á að það þarf að borga seinni helming þátttökugjaldsins). já..

Mér er illa við svona auglýsingar um hitt og þetta, og þá sérstaklega þegar fólk hringir heim þegar það er verið að borða og bíður manni ferðahandbók um eitthvað land sem maður hefur aldrei heyrt um eða land sem manni langar ekkert að fara til og það eru engar líkur á því að fara þangað, asnalegar matreiðslumækur og svo fleira og fleira...

Á morgun er sumardagurinn fyrsti og ég ætla að vona að það verði gott veður :) annars veit ég ekkert hvort ég ætli að gera eitthvað svona skemmtilegt, fyrir utan að klára ritgerð og æfa mig á pianóið eins og brjálaðingur. Svo kemur helgi og þá byrjar síðasta vika skólans. og á föstudaginn er minn formlegi síðasti skóladagur í MH þar til í ágúst 2005. það er skrýtin hugsun. :(

jæja.. farin að læra.
bæbæ :)

martedì, aprile 20, 2004

litla fólkið er farið að blogga.. 

ein litla frænka mín sem er í 2 eða 3 bekk er komin með bloggsíðu, eða fólk síðu. váá.. nú eru 7 og 8 ára gamlir krakkar farnir að blogga. :-/ andrea önnur litla frænka mín sem er í 6. bekk á líka síðu að það var nógu fyndið þegar ég frétti það.

ítalskt blogg !! :D 

þar sem ég er að fara til ítalíu ætla ég að reyna að læra dagana og mánuðina með því að hafa bloggið á ítölsku!! :D

fyrirmyndabloggari 

ég er búin að vera mikill fyrirmyndabloggari í dag og þessi og hinn og þá sérstaklega þessi hérna ættu að taka mig til fyrirmyndar ;)


lunedì, aprile 19, 2004

sól sól skín á mig! :) 

já.. þar sem ég skil ekkert í eðlisfræði verkefninu mínu og heftið sem við fengum með því er bara um jarðolíu ætla ég að blogga að eins meira í dag :)

já.. ég held að það sé bara komið sumar! jahá! sumardagurinn 1. er ekki á morgun, ekki hinn, heldur hinn (sem sagt á fimmtudaginn)!! jeij! en sem vísbendingu um þetta er það að alskonar sumarleikir hafa verið teknir upp innan veggja emmhá. já. við fórum í hið eina sanna snú-snú í dag og í þokkabót inni! já INNI í snú-snú. það var samt baaaaara gaman ;P húsvörðurinn hefði örugglega látið reka okkur úr skólanum hefði hann séð þetta!! einn kennari sem átti leið hjá ætlaði að hoppa hjá okkur samt :P váá.. það er að koma sumar!! pæliðíði! það eru ekki nema 11 dagar eftir af apríl og svo er komin maí! váá.. ég ætla njóta sumarins eins vel og ég get! mér var t.d. tjáð það í dönsku tíma í morgun að ég er kannski að fara að hjóla heim til dísu, sko heim, heim til dísu! við kórstelpurnar ætlum sem sagt að gera þetta. þó að ég þoli alls ekki að hjóla (en á samt voða fínt hjól) þá verð ég bara að láta undan því þetta mun vera svona síðasta skiptið sem ég verð með þeim eitthvað af viti :( já. því ég er að fara til ítalíu og svo erum við á síðasta ári í graduale :( sorglegt. en þetta á eftir að verða ein heljarinnar útilega og gott að hafa skáta með í för ;) vá, þegar ég hugsa til þess þá eru ekki nema innan við 5 mánuðir eða 4 og hálfur þangað til ég fer út !! váá.. og kem ekki heim fyrr en í júlí :-/ mig hlakkar samt ekkert smá til !! ég var í fermingarveislu í gær og það kom svona ein frænka til mín og spurði hvað væri að frétta af mér. ég tjáði henni mjög stolt að ég væri að fara sem skiptinemi til ítalíu. hún var alveg voða "happy". O, en gaman! O, þú átt svo gott! o.fl. í þeim dúr. svo kom hver ættinginn á fætur öðrum til að tala við mig um þetta. amma mín edda er svo "jollí" yfir þessu. hún edda litla er bara að fara til ítalíu! gerði allt sjálf! litla barnið er að fara út í stóra heiminn. ég tek það fram að ég er þriðja elsta barnabarnið hennar af 9. já, fyrir þau ykkar sem ekki hafa áttað sig á því það er amma mín þessi soldið skrýtin. já. öll föðurættin bara í heild ;) samt segir fólk að ég sé meira lík þeirri fjölskyldu, ég samt reyni að halda því fram að ég sé meira lík mömmu fjölsk. en þar sem mig skortir alla svona yfirnáttúrulega hæfileika og er ekkert lík neinum í henni útlitslega séð (amma mín siddý vill þó segja að ég sé eins og hún þegar hún var ung). samt var maður sem sagði að ég og bróðir minn værum mjög lík í danmörku í sumar. ekki hef ég hugmynd hvernig hann gat séð það, en þau sem hafa hitt hann sigga sæta, bróðir minn, þá erum við eins ólík í útliti og perónuleika og hægt er. ég hlít einfaldlega að vera ættleidd. ég mundi allavega halda því fram ef ég ætti ekki albúm þar sem eru myndir af mér og mömmu a sjúkrahúsinu.
ég held ég fari bara að sofa núna. ég er allavega orðin þreytt og þarf að fara í söngtíma á morgun og þarf að vera útkvíld svo ég geispi ekki allan tíman :P

Góða nótt :*

p.s. ég vil óska nýju turtildúfunum til hamingju með árangurinn ;) og jóhannesi með afmælið (sem minnir mig á að ég á eftir að skrifa diskinn sem ég lofaði að skrifa handa honum þarna í den þegar við vorum saman. tilvalin afmælisgjöf. mun bara ekki komast til skila fyrr en á miðvikudag. ég á víst líka eftir að gefa önnu sóley afmælisgjöf og hún átti afmæli 3. mars.. hmm.. ætli það verði þá ekki tvær gjafir á miðvikudaginn :D

Guð?? 


stjórnmál 

ég hef verið að pæla svoldið í þeim núna undanfarið. mig er farið að langa að ganga í þannig hreyfingu. ég er ekki viss hvaða flokk en er með einn í huga. það er bara svo ótrúlega margt sem mig langar að berjast fyrir og það er svo margt sem þarf að breyta í heiminum að mínu mati. ég veit að ég mun aldrei verða stjórnmálamaður, en ég held samt að það sé alveg fínt að vera í svona flokk. þetta er góð pæling sem ég mun halda áfram að pæla í og sé svo til hvað ég geri...

Pils og fleira.. 

Pils er sniðug flík. Í orðabókinni eru pils útskýrt sem kvenflík, neðri hluti kjóls eða flík, sem svarar til hans. Persónulega finnast mér pils sniðug og gaman að klæðast en það er samt ekki mjög sniðugt þegar það er vindur ;) En hver fattaði upp á pilsum? og afhverju klæðast konur bara pilsum? skoskir kallar klæðast pilsum og ég veit um strák sem langar mjög í pils. þegar ég var minni þoldi ég ekki pils. þá var ég á svona mótþróaskeiði, gekk BARA um í íþróttafötum og æfði líka fótbolta. þegar ég var lítil var ég líka svona soldil stráka-stelpa. ég átti nánast enga stelpuvini á leikskóla. í grunnskóla voru mjög fáir strákar en ein bekkjarsystir mín sagði að tveir bekkjarbræður okkar hafi alltaf verið að koma og spurja eftir mér og trufla okkur í póný leik, ég man ekkert eftir þessu sjálf, og spurning hvort það hafi átt að túlka einhvern veginn öðruvísi. núna undanfarið hefur mig alltaf langað að vera í pilsi og langað í fleiri. samt er það ekki sniðugt að vera í víðum pilsum eins og því doppótta sem ég á. það er eiginlega of vítt, allavega svona fyrir rokrassgatið ísland. ég á líks stutt pils og það er heldur ekki sniðugt að vera í því þegar það er rok. ALLS EKKI. það er líka miklu víðara en ég geri mér grein fyrir þar sem það er svona skotapils. svo er fleira það fleira. afhverju mála stelpur sig en ekki strákar? (hmm allavega flestir strákar ;) þau viðmið virðast ganga að við gerum þetta fyrir strákana en mér hefur verið sagt af strák að honum finnist þetta ekki vera satt. svo hafa strákavinir mínir sagt mér að þeim finnist stelpur sætari ómálaðar. mér finnst mjög leiðinlegt að mála mig og mundi aldrei nenna að vakna 5-10 mínútum fyrr tils að mála mig. það er samt gaman stundum og ég er ekki sú eina sem kannast við það að vera að mála sig þegar það á að læra... ;) ég fatta sérstaklega ekki stelpur sem mála sig ÓTRÚLEGA mikið og á hverjum degi. það sést bara ekki framan í þær fyrir augnskugga, varalit, meiki, kinnalit, nefndu það bara.. ég þoli sérstaklega ekki þegar ég svona 13 ára stelpur sem sést ekki í. svona barbídúkkur.



Mikið rosalega er þessi Sigmundur í maður á mann á skjá einum leiðinlegur !! Hann bara rífur fólk í sig og bara spyr asnalegra spurninga og kemur með fáránlegar staðhæfingar...

domenica, aprile 18, 2004

hver verður númer 2000??? Láttu vita í kommentunum!!!!!!!!!!!

sabato, aprile 17, 2004

jæja.. nú er ég búin að breyta "linka" listanum.. tveir nýjir komnir, Marta og Sölvi, þið finnið þau á listanum :)

venerdì, aprile 16, 2004

mig langar heim.... ég sit hér í skólanum klukkan að verða 6 á föstudagskvöldi og ekki nóg með það þá er ég með hausverk og þó að kórsöngur sé fagur þá bætir hann ekkert og mér leiðist... :(
Af kórum og kórstarfi

Ég er hætt við að fara í MH- kórinn. Í fyrsta lagið hita þau aldrei upp, fara bara í hókípókí eða hlaupa um salinn, í öðrulegi þá eru þau alltaf að labba um um syngja og það er aldrei neitt skipulag og svo í þriðja lagi er kórstjórinn skrýtinn!!
Kannski er ég bara oðrin vön þessum hefbundnu kórum, en ég það mynstur er að brjótast upp því við erum að læra dansa með Håb, danska verkinu sem við erum að fara að flytja innan skamms og á að gefa út á DVD disk og sýna á Íslandi, Færeyjum og Danmörku... jámm... við erum sko MJÖG fræg!! ;) Svo fór ég líka á heilt kóramót þar sem við dönsuðum og sungum á tónleikum. Það var gaman. ég er þá ekki að aðhyllast þá kenningu að ég sé bara svo vön hefbundnu kórstarfi. ég verð samt að viðurkenna að gradualekórinn er frábær!! hefði sko ALLS ekki viljað sleppa þessum tvem árum. fyrir utan að vera í kringum aðal fólkið í tónlistinni þá er þetta svo skemtilegt starf. ég er þeirrar skoðunar að kórstarf bætir manneskjuna. finnland var ógleymanleg ferð og þrælskemtileg og örugglega besta kórferið mín :) svo er líka skemmtilegt fólk í kórnum, það er þegar það er búið að mínusa frá allar gelgjurnar.. þá er svona innan við 10 manns eftir.. ;)


giovedì, aprile 15, 2004

bloggið mitt á 7 mánaða ammæli í dag! til hamingju blogg :)

Bloggið hennar Eddu það á afmæli, það á afmæli í dag!
Til hamingju með afmælið, til hamingju,
Til hamingju með afmælið, til hamingjuuuu!
Það lengi lifi,
Húrra, húrra, húrra, húrra, húrra, húrra, húrra, húrra, húrra! (9x húrra)

Þar sem ég missti af afmælissöngnum sem var sunginn á æfingu í dag þá varð ég að taka það út núna.. :) Held að það hafi meira að segja verið fyrir Sigurborgu! :0 en ég söng afmælissöngin fyrir hana á afmælisdaginn og það tvisvar eða oftar... man það ekki aaalveg ;)

Góða nótt :*
ætti ég að breyta slóðinni í edda-púki.blogspot.com?

ég verð að viðurkenna að það er fallið á geislabauginn.. eða.. hann er kannski bara fallinn ?!?!!.. :0 ;)

Þann 3. september er ég að fara sem skiptinemi til Ítalíu á vegum AFS og verð þar í ár :)

mercoledì, aprile 14, 2004

Fróðleikur dagsins 14. apríl:

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 þjóðlöndum í öllum heimsálfum. Íslenska heiti félagsins er Alþjóðleg fræðsla og samskipti.

AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliðasamtök, óháð stjórnvöldum, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Samtökin gefa fólki tækifæri til að læra um ólíka menningarheima í þeim tilgangi að aðstoða það við að þróa þá þekkingu, hæfileika og skilning sem þarf til þess að skapa réttlátari og friðsælli heim.

Það voru bandarískir sjálfboðaliðar sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Frakklands í fyrri heimsstyrjöldinni sem stofnuðu samtökin AFS eða American Field Service. Þeir töldu að aukin kynni og skilningur milli þjóða gætu dregið úr líkum á að hörmungar stríðsins endurtækju sig og að nemendaskipti væru leið til að ná þessu markmiði.

AFS félögin um allan heim eru að mestu leyti byggð upp af sjálfboðaliðum. Auk þess hefur hvert félag sína skrifstofu með fastráðnu starfsfólki. AFS hóf starfsemi sína á Íslandi árið 1957 en þá héldu átta fyrstu íslensku skiptinemarnir til Bandaríkjanna.Síðan hefur starfið vaxið og nú sendir AFS á Íslandi árlega milli 100-120 skiptinema til dvalar á erlendri grund og tekur á móti 35-40 erlendum nemum ár hvert.

(tekið af síðu afs)


Þetta og fleira um AFS getið þið fundið á heimasíðu þeirra.

Hér getiði fengið umsókn um að gerast skiptinemi
Hér getiði lesið um fyrirbærið fósturfjölskyldur
Hér getiði séð þau lönd sem eru í boði að fara til.
Hér er svo fjallað um sumardvöl á vegum AFS.

Njótið :)
Hér er komið svarið við þessu öllu saman...

Doctor Unheimlich has diagnosed me with
Edda Ósk's Lurgy
Cause:overconsumption of chicken
Symptoms:vague insomnia, pacing, paralysis, arm pain
Cure:Kryptonite
Enter your name, for your own diagnosis:

lunedì, aprile 12, 2004

jámm.. nú eru páskarnir bara að klárast... ég er hálfnuð með páskaeggið mitt :) Þetta er búið að vera yndælt frí. En á morgun þarf ég að gera mikið. Klára eina ritgerð og byrja á annarri, fara á skrifstofu Vinstri grænna niðri í bæ og kaupa afmælis/jóla/páskagjöf handa fjölskyldunni minni í Frakklandi. Já, ég á eina fjölskyldu þar. Ég bjó hjá þeim í 2 vikur þegar ég var í 9. bekk í svona skólaferðalagi. það var gaman. mig langar aftur til frakklands. kannski ég nái að plata fólkið sem fer með mér til danmerkur (það á að neyða mig með) að fara til frakklands, helst til parísar því ég hef aldrei verið þar neitt af viti, bara einhverja tíma, og svo skreppa kannski til belgíu, lúxemborgar og hollands. það væri yndislegt...

En já. ég fékk að drekka rauðvín með páskamatnum :) pabbi sagði að ég þyrfti að æfa mig fyrir ítalíu og vínið var meira að segja ítalskt :) ég verð samt að viðurkenna að rauðvín er ekkert svo gott.. ég veit ekki um neitt áfengi (af því littla sem ég hef smakkað ;) sem mér finnst eitthvað gott... ég held að mér hafi þó fundist hvítvínið sem ég fékk í brúðkaupinu hjá systir hennar mömmu gott þegar ég var 5 ára brúðarmær þar ;) en man það samt ekki. man bara að ég kunni ekki að skála, drakk allt sem var í glasinu :P
jámm.. nú eru páskarnir bara að klárast... ég er hálfnuð með páskaeggið mitt :) Þetta er búið að vera yndælt frí. En á morgun þarf ég að gera mikið. Klára eina ritgerð og byrja á annarri, fara á skrifstofu Vinstri grænna niðri í bæ og kaupa afmælis/jóla/páskagjöf handa fjölskyldunni minni í Frakklandi. Já, ég á eina fjölskyldu þar. Ég bjó hjá þeim í 2 vikur þegar ég var í 9. bekk í svona skólaferðalagi. það var gaman. mig langar aftur til frakklands. kannski ég nái að plata fólkið sem fer með mér til danmerkur (það á að neyða mig með) að fara til frakklands, helst til parísar því ég hef aldrei verið þar neitt af viti, bara einhverja tíma, og svo skreppa kannski til belgíu, lúxemborgar og hollands. það væri yndislegt...

En já. ég fékk að drekka rauðvín með páskamatnum :) pabbi sagði að ég þyrfti að æfa mig fyrir ítalíu og vínið var meira að segja ítalskt :) ég verð samt að viðurkenna að rauðvín er ekkert svo gott.. ég veit ekki um neitt áfengi (af því littla sem ég hef smakkað ;) sem mér finnst eitthvað gott... ég held að mér hafi þó fundist hvítvínið sem ég fékk í brúðkaupinu hjá systir hennar mömmu gott þegar ég var 5 ára brúðarmær þar ;) en man það samt ekki. man bara að ég kunni ekki að skála, drakk allt sem var í glasinu :P

domenica, aprile 11, 2004

Trausti táknmálskennari er að flytja táknmálsfréttirnar í sjónvarpinu núna :)
hann er að tala um einhverja 3 eitthvað og svo gerir hann svona eins og þegar maður er að biðja... hmmm.. vinna... nú er hann held ég að tala um stríð !ohh.. ég er svo klár ;)
Hann talar reyndar frekar hratt. ég var að horfa á einhvern táknmálstúlkinn í mh og ég skildi bara megnið af því sem hún sagði, frekar stolt :)

Gleðilega Páska elsku lesendur mínir :* Ekki borða of mikið af nammi og súkkulaði svo þið fáið ekki magapínu ;)

og hann sagði bæbæ :)
hvað eruði að bulla? það voru ekki bara Hjalti og Sölvi sem sáust í sjónvarpinu! Við sáumst öll flest!! Fáið ykkur gleraugu! ;)

Ég er sko að tala um söngkeppni FF :P

martedì, aprile 06, 2004

Leiksýningin er í kvöld!! Jeij!! :D

En allavega. Dagurinn í dag er búinn að vera fínn :) Átti að fara að syngja með Graduale en sleppti því þar sem ég hafði ekkert far og var að fara á óperuæfingu stuttu eftir og hafði enga hugmynd um hve þetta var lengi. En ég fór svo á óperuæfingu heima hjá söngkennaranum mínum og húsið hennar er eitthvað svo mikið hún :P Það er svona laxableikt og rautt að utan. Húsið var líka mjög flott (hún á heima í Garðabæ ;). Stór garður og þegar ég, Björney og Elín komu voru krakkarnir bara að horfa á Síbiskit (hvernig sem það er skrifað á ensku). Svo tóku æfingar við og við vorum búin upp úr 2. Þá tóku við ættrakningar og fleira. Ein stelpan (eða konana) er að fara að gifta sig og hún bara talar sssvo mikið um það, en það er bara sætt! :) Allavega hlakkar mig til að gifta mig :) Heiðrún gerði nokkrar tilraunir til að fá mig til þess að koma með til Ítalíu með kórnum, mig langar voða að fara, en pabbi vill það ekki og það kostar líka svo mikinn pening og ég á eftir að taka bílprófið og ég er að fara út ú haust :( Óþolandi að geta ekki gert allt :( Heiðrún er sko mamma hennar Björneyjar og er fyrverandi kórstjórinn minn fyrir þá sem ekki vita það... En allavega þá fór ég svo með Björneyju og Elínu í Smáralind eftir það.. Skrýtið hvað mestu gelgjur bekkjarins geta breyst í fínar stelpur.. Reyndar er ein sem fór í hverfisskólann meiri gelgja ef eitthvað er, en allavega eru þessir tveir MRingar fínir :) Ætli MR sé bara ekki fínn skóli, allavega mundi ég frekar fara í hann heldur en Verzló ;)

Ég ræð ekki við mig, það koma alltaf margir langir póstar... ég ætla að láta þetta duga bæbæ

Minnisatriði fyrir næstu blogg:
Spákona
ónáttúrulegarverur/hlutir
endurholgun
dauði

sabato, aprile 03, 2004

Ég veit að síðasti póstur var frekar langur, en lesið hann samt! Ég skal lofa að skrifa ekki fleiri svona... :P
Fjör fyrir Föstudaga

Já.. Gærdagurinn var eitt stórt rugl. En samt rosalega skemmtilegur :D
Ég var bara í tvem tímum fyrsta og síðasta og í þessu þrefaldagati mínu kláraði ég ritgerðina fyrir íslensku. Eftir það fór ég og kaus (sem í rauninni var enginn tilgangur í fyrir mig...) og svo fór ég í efnafræðitíma. Þórunn er ekkert búin að mæta í efnafræði alla þessa viku og mér er búið að leiðast soldið verð ég að segja. En það er samt alveg gaman fyrir því. Merkilegt hvað svona fag getur verið skemmtilegt, það er að segja þegar kennarinn sýnir okkur svona áhugaverðar tilraunir, ekki þegar við erum að læra um mól eða eitthvað álíkaleiðinlegt. Eftir smá tilraun með svona stjörnum sem lýsa í myrkri setti hún part úr lifur ofan í H2O2 (sem er eitthvað efni sem ég man ekki hvað heitir) og það sem gerðist var voða fyndið og skrítið, og þar sem ég hef svo margt annað að segja ætla ég ekki að lýsa því, þið skuluð bara fara í efnafræði 103.

Eftir tímann prentaði ég svo ritgerðina út og skilaði. Svo var haldið niðrí bæ og verslað smá og meðal annars svona kína skó því hélt að ég væri búin að tína mínum því ég hef ekki fundið þá í mánuð og þarf að nota þá í leikritið á þriðjudaginn og óperuæfingu á mánudaginn. Svo þegar ég var að fara á kosningavökuna fann mamma mín þá ekki skóna! Og ég var búin að eyða pening í nýja!! En samt. Þessir nýju eru aðeins flottari, með svona útsaumuðum blómum, sem passar líka mjög vel við karakterinn minn í leikritinu! ;) Já... svo var kosningarvakan. Hún var skemmtileg fyrir utan það að Dísa sagði mér að hún ætti að byrja klukkan 7 en ég held að þetta hafi ekki byrjað fyrr en svona hálf 9 fyrir alvöru. Sem betur fer voru þó Þórunn og vinkonur hennar sem voru að bjóða sig fram í skemmtiráð (sem þið ÖLL áttuð að kjósa! Ekki fólkið í partý genginu). Síðan komu Dísa, Marta og Jói. Ég verð nú að segja að það hefði verið mikið skemmtilegra að hafa svona alvöru talningu í kosningunum, svona tölvukosning er ekki eins mikil stemmning og svona ótölvuvæddkosning. En allavega þá voru tölur birtar í 3 hollum svo að spennan var nátla í háum mæli. Á milli fór fólk í karókí upp á sviði og það kom misvel út hjá fólki verð ég að segja ;) Jóhannes fór fyrstur manna að skrá sig og það var.. alveg... fínt... eða.. jújú.. er í kórnum og segist vera einn af þeim bestu í bassanum, en ef svo er þá ætla ég ekki í þennan kór... En allavega. Ég og Dísa ákváðum svo á endanum að skella okkur þó að ég væri ekki að þora þessu, en einu sinni er allt fyrst. Ég hef nefnilega aldrei tekið þátt í svona karókí keppnum eða þess háttar. Þetta var svo mjög gaman og hjartað hamaðist bara á meðan ég var að labba upp á svið.. Við sungum Spice Girls lagið STOP og með hreyfingum og allt... Myndbandið við lagið var frekar fyndið og á einum stað fór textinn í eitthvað rugl en við komum allavega heilar út úr þessu og ef ekki bara betri ;) Já.. Svo var farið að leita að skilríkjum handa mér til að komast inn á Ópus.. Það er svo fúllt að vera yngri en allir vinir sínir.. En allavega þá var ég soldið lík myndinni af Dísu þegar ég var með gleraugun hennar Mörtu, en þá hefði hvorug okkar gengið beint inn svo það var kannski ekki svo sniðugt. Eftir að hafa spurt fullt af fólki fundum við Elínu Björk, sem er vinkona hennar Maju sem er með mér í kór, og hún lánaði mér skilríkin sín. Við fórum svo út rétt áður en síðustu tölur voru birtar. Þegar í bílinn var komið fórum við niður í bæ til að sækja pabba hennar Dísu. Við keyrðum um bæinn og reyndum að finna Ópus. Dísa var með tvo afturísætis bílstjóra en þetta gekk á endanum.

Svo var keyrt langt í burtu til að finna stað til að hringja í pabba hennar Dísu og svo var haldið að ná í hann. En þegar við vorum að beygja hjá Kaffi Reykjavík þá drap bílinn á sér og það var ekki hægt að koma honum í gang aftur. Jámm.. Ég held að heill klukkutími hafi farið í einhvet bílavesen en á endanum fórum ég, Marta og Hjalti bara inn á Ópus. Ég var búin að vera í ströngu að læra kennitöluna hennar Elínar utan af en svo var ekki einu sinni spurt um hana. Hjúkk... ég var frekar stressuð, enda í fyrsta sinn sem ég svindla mér inn á svona skemmtistaði. Ég var svo saklaus busi eitthvað... Ég vissi ekki heldur hver dóttir hún var svo að ég fékk smá kvíða fyrir því að dyravörðurinn mundi spurja hvað ég héti.. :-/ Þegar inn var svo komið var þá Egill ekki fyrsta manneskjan sem við sjáum! Ég hitti hann mjög sjaldan því hann er í Kvennó, síðaszt var það... hmm.. 16. nóvember í fyrirpartýinu heima hjá Kristján fyrir myrkramessuna í MK. En það var allavega gaman að hitta hann. Mig minnti líka að hann væri stærri en ég, en þó að ég hafi verið í algjörlega flatbotna skóm þá var ég smá stærri!! :D Alltaf gaman að vera stærri en einhver, sérstaklega ef þeir eru eldri en maður sjálfur ;) En já.. stemningin var ekkert sérstök þarna svo Marta fór heim, en ég varð að bíða eftir Elínu til að láta hana fá skilríkin. Smátt og smátt varð skemmtilegra og svo var líka fullt af góðum “Útsýnum” þó að “alvöru Útsýnin” okkar Dísu hafi ekki birst ;) Áttum líka enga von á því... En vá hvað það var mikið reykt þarna!! Ég var sí hnerrandi og er komin á þá skoðun að ég sé pottþétt með ofnæmi fyrir reykingum! Svo var bara djammað og svo kom fleira fólk. Sigurborg og Robbi komu og ég og Dísa sungum afmælissöngin fyrir hana bæði á Graduale hátt með 9x húrrainu og svo þennan venjulega ásamt Ingu. Svo þegar við vorum að fara hitti ég Björneyju og Elínu MR-inga og fyrrverandi bekkjasystur og óperumeðleikara og talaði smá við þær. Þær voru á L.A. Café og þar hafði öllum verið hennt út. Svo var farið heim og á leiðinni heim í leigubílnum stoppaði fullur bíll af strákum við hliðina á okkur á ljósum og fóru að vinka okkur á fullu og fleira.. Einmitt þegar við vorum að tala um stráka.. Svo var farið að sofa og sofið vært þar til ég heyrði pabba öskra niðri í kjallara (og ég sem á efstu hæðinni) því þá hafði Man. U. Skorað á móti Arsenal í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Þeir geta þá allavega unnið bikarinn þó að meistaratiltillinn sé innan seilingar hjá Arsenal. Þeir hefðu ekki átt að selja Beckham! Í dag er svo ekki búið að gera neitt.. Bara hanga. Andrea, litla frænka mín, er í pössun og hef ég verið að sjá ofan fyrir henni að einhverju leyti. Bjó til nýtt ímeil handa henni og svo lagaði ég það gamla fyrir hana.. ég er að breytast í tölvunörd.. Svo er bara kannski málið að skreppa á söngvakeppnina.. hún er reyndar sínd í teleinu, en samt er meiri fílingur í því að fara og vera á staðnum. En allavega þá ætla ég að koma mér úr tölvunni...
Gleðilegt Páskafrí!!! :D



Markmið í framtíðinni: Að ná fram lögum um það að öll aldurstakmörk eigi við árið sem þú verður þessi tiltekinn aldur sem til þarf. Þannig að ef þú verður 18 á árinu þá kemstu inn á bjórkvöld!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?