<$BlogRSDUrl$>

lunedì, maggio 31, 2004

Hlutavelta! 

Ef einhver langar í gefnis kosningabæklinga frá Vinstri Grænum þá á ég svoleiðis!
Annað sem ég á og þarf að losna við:

Stærðfræði 300 - stæ 103 í flestum framhaldsskólum
Det forsömte for1ar - dan 303 í MH
Andrea elsker mig - dan 103 í MH
7.A - dan 103 í MH
Stjörnurnar í Konstantínópel - (var) kennd í ísl 103 í MH
Íslensk Málsaga - ísl 203
Snorra Edda - ísl 203

held það sé ekki mikill tilgangur í að auglýsa þetta, pósta þetta bara aftur í haust. ég ætla að reyna að koma þessu öllu út svo ég þurfi ekki að selja þær í bókabúð af því ég mun lítið að gera með inneignarnótu frá þeim.. Ég er sem sagt að byrja að fara í gegn um ALLT draslið mitt ef foreldrar mínir skildu flytja á meðan ég er úti. Búin að pakka klarinettinu og nótnastatífinu og fara í gegn um eitthvað af nótunum sem ég er búin að safna síðan ég var í Skólahljómsveit Kópavogs sem var fyrir 200 árum eða eitthvað.. En þetta þýðir að ég muni ekki getað spilað neitt í sumar.. :/ ég læt þá bara píanóið duga.. en það er vinna á morgun.. úff hvað ég nenni ekki í vinnuna á morgun, en ég mun fá símanúmerið hjá Honum Mímí kannski sem ég á samt örugglega ekki eftir að fara að tala við vegna lítillar heimsóknar á kaffihúsið hans í gær, þið vitið hvað ég á við sem voruð meðferðis ;)

En annars er þessi helgi bara búin að vera frábær, eða allavega mjög skemmtileg. Á föstudaginn voru úrslit í American Idol, á laugardaginn var snilldar partý hjá Agli og á sunnudagskvöldið fór ég ásamt nokkrum krökkum niðrí bæ og át nammi. það var nú bara gaman. ég og marta ákváðum þá að fara einhvern tíman í alþingishúsið. bærinn var labbaður í tætlur og svo var bara farið heim, en þetta var gaman samt :) vona að komandi helgar eiga upp að bjóða á það sama. næsta helgi verður skemmtileg vonandi, þá er AFS námskeið og er að fara í leikhús! á föstudaginn verð ég frá 7 til 10 og allan laugar- og sunnudaginn :) á laugardaginn er svo leikhúsið. auður tjáði mér að hún yrði á námskeiðinu að fara að skipa mér fyrir ;) svo er Elín þar líka sem er með mér í söng og var með mér í grunnskóla og allavega þrír EmmHáIngar í viðbót svo ég viti og svo er þetta haldið í Snælandsskóla sem er náttla mikil snilld því ég var þar í grunnskóla, efast að ég muni rata mikið samt þar sem það er búið að breyta MJÖG milku síðan ég var þar. en ég held ég láti þetta nægja, ætla að fara að sofa bráðum bara. góða nótt

EDDA - tambóla til styrktar Rauða Krossinum (sem mun renna beint í bílprófssjóðs Eddu Óskar)

domenica, maggio 30, 2004

í gær fór ég í afmælispartý hjá Agli, sem varð 19 ára (til hamingju með það Egill!). Ég held ég hafi aldrei farið í eins ja, hvaða orð skal nota, furðulegt? já, ég held það bara, furðulegt partý. Það fyrsta sem fór að segja til um furðulegheitin var að við bökuðum BLEIKAR vöfflur, já við stelpurnar sáum uppskrift af vöfflum og ákváðum að baka! eftir baksturinn er ég viss um að við rötum betur en Egill um eldhúsið hans ;) Svo var horft á Ungfrú Ísland, spilað á hljóðfæri, hoppað fram af svölunum, farið í fótbolta, þar sem ég og Marta rústuðum strákunum ! ;) í byrjum hafði svo verið grillaðir hamborgarar sem ég reyndar missti af :( hvað fleira gerðist. já olbogarnir voru sleiktir, legið í klessu í rúminu hans Egils og bók lesin sem hann fékk í ammælisgjöf, farið í eltingarleik yfir bjór og svo margt margt fleira. niðurstaðan var samt bara mjög skemmtilegt og vonandi verða fleiri partý haldin í sumar, ég sjálf ætla að reyna að halda pottapartý þegar hann karl faðir minn hefur drattast til þess að setja vatn í pottinn!!

Edda - koddaslagur rúllar!

giovedì, maggio 27, 2004

BloggaBlogg 

já, mér tókst að sólbrenna í vinnunni og ég er að fá freknur !!! :D vúhú! mig hefur alltaf langað í freknur :) ég sólbrann sem sagt á nefinu og kinnunum :) ég vona að það verði mikil sól í sumar og engin rigning svo maður verður nú sætur og brúnn! ég er búin að komast að einum (ó)kosti við það að vera lítill, já, þá er auðveldara að troða sér á milli tjánna til að ná arfanum ;) híhí :P

ég er voða lítið búin að segja hvað á daga mína hefur drifið núna upp á síðkastið á blogginu svo hér kemur smá.

*partý hjá sigrúnu vegna prófaloka var haldið, það var gaman og fólk var annað hvort dauðadrukkið eða ekkert drukkið

*hitti hjalta og sölva og við fengum okkur kjúkling

*búin að vera í vinnunni, annsa kom og heimsókti mig og sagði mér allt um króatíu, hún fór líka til feneyja og ég var að skoða myndir þaðan áðan og það var SVO flott!! ætla pottþétt þangað þegar ég fer til ítalíu!!

*fer að verzla og í afmælispartý hjá agli á laugardaginn :) gaman, gaman...

*fer ekki með graduale í vestfjarðarferð um þarnæstu helgi

*undirbúningsnámskeið alla þarnæstu helgi hjá AFS fyrir Ítalíuferð

*leikhús á Síkakó með mömmu og önnsu sömu helgi

*fer á Feim með önnu 25 júní

*2.- 16. júlí, Danmörk með mömmu, systir hennar og yngsta syni (þórir róbert) og Andreu Rakel frænku minni. þetta verður massa ferð þar sem nú er hægt að GERA eitthvað þarf ekkert að bíða eftir að gamlingjarnir komist á lappir, svo mun ég líka fá fyrirlestur frá bróður mínum um að ítalskir strákar séu hommatittar og manndjöflar... (þið sem þekkið bróður minn skiljið það vel :P )

lunedì, maggio 24, 2004

SUMARFRÍ 

ÉG ER BÚIN Í ÖLLUM PRÓFUM !!! JEIJ!!!!! ÉG ER KOMIN Í SUMARFRÍ !! JEIJ.. 8 TÍMA VINNA Á MORGUN !! JEIJ !!

ég er samt í fínum hóp. helling af emmháingum. bara stelpur, held það séu allir hópar eila kynskiptir. í mínum hóp eru ég, heiður (stelpa sem æfði með mér fótbolta), halldóra (kannast við hana úr tónó), maría (sem var með mér í frönsku 203 og 303 og skólahljómsveitinni á sínum tíma...), Sif (sem var með mér í frönsku 203 og er systir flokkstjórans) og ein stelpa úr mk sem ég er alveg búin að gleyma hvað heitir :| svo er víst ein stelpa í viðbót sem heitir held ég Guðrún, veit ekki hvort hún sé í emmhá :/ flokkstjórinn heitir Sigga og er mjög fín. hún er með svona útþrá eins og ég :P þegar ég var að vinna í hlíðargarðinum með henni og öðrum flokkstjóra sem heitir eva, töluðum við um afríku !! það var gaman !! víííííí... :D
jæja, ég ætla að fara að vera útlendingur aftur (fyrir þau sem skilja ekki bendi ég á færsluna edda útlendingur hér fyrir neðan)

edda

domenica, maggio 23, 2004

misnotkun !!!! 

eitt af verkefnunum áður en ég fer út er að finna íslenska fjölskyldu sem gæti verið góð fósturfjölskylda fyrir skiptnema hér á íslandi. ég ætla því að misnota stöðu mín hér og auglýsa eftir fjölskyldu sem hefur áhuga á því að taka að sér skiptinema í 5 eða 10 mánuði.
Fjölskyldan þarf ekki að vera kjarnafjölskylda sem býr í stóru húsi
heldur þarf hún fyrst og fremst að vera hjartahlý, sveigjanleg og með áhuga á að opna heimili sitt fyrir skiptinema og leyfa honum að taka þátt í lífi og starfi fjölskyldunnar.

Til að lesa meira klikkið hér !

ÉG ÆTLA AÐ BIÐJA YKKUR UM AÐ HUGSA ALVARLEGA UM ÞETTA OG HAFA SVO SAMBAND VIÐ MIG :)

edda - verðandi skiptinemi í leit að íslenskri fjölskyldu

edda útlendingur 

á eftir er ég að fara í göngutúr um hverfið mitt og þykjast að vera útlendingur og á morgun ætla ég að vera útlendingur allan daginn. ég hlakka til þess :)


en annars eru alveg bara 103 dagar þangað til ég fer út, eða um 3 mánuðir og 2 vikur! ég er orðin veik sko. ég var að skoða fullt af skiptinemabloggum, bæði hjá þeim sem eru í ítalíu og öðrum löndum og var að skoða myndir og alles (ég veit ég á mér ekki líf)!! ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til!! það verður svo gaman að yfirgefa eyjuna í ár og fara annað! ég vona bara að ég lendi hjá fjölskyldu sem ferðast mikið því ég er með svo mikla útþrá!! anna er í króatíu og ég öfunda hana mjög! ég er að fara til danmerkur í 20asta skiptið eða eitthvað!!! ég er verð bráðum bara farin að líta á dani sem mína aðra þjóð!!!


eitt annað. Ítalskir stráka? allt sem maður heyrir um þá, er það satt? mér var sagt tvisvar sama daginn að ég þyrfti að passa mig á þeim.. ég meina, eru þetta ekki bara einhverjar steríótýpur eins og að íslenskir strákar eiga að vera svín og íslenskar stelpur druslur? ég meina þeir "hátta mann ekki með augunum" á staðnum eða eitthvað.. farin að hafa smá áhyggjur kannski.. er ekki alveg til ljóshært fólk í ítalíu? :/ hmm...


Edda - skrýtni útlendingurinn!!

venerdì, maggio 21, 2004

Draumasaga 

jámm.. í fyrri nótt dreymdi mig að ég ásamt furðulega saman settu fólki af vinum mínum og fólki sem var með mér í tímum en þekki ekkert neitt ætluðum að fara til afríku. Ég ákvað að skrifa sögu um hann. Sagan er byggð á draumnum en það er fullt bætt við og nöfnum breytt og auk þess eru engin smáatriði eða ákveðin samtöl í henni þannig að hún er örugglega ekki svo skemmtileg lesning, en glætan að þið munduð nenna að lesa söguna ef hún væri 20 blaðsíður, kannski ef ég gæfi út bók, enallavega ekki á þessu bloggi hérna. Hér kemur sagan:

Nú var dagurinn loksins runninn upp. tímarnir fram að kvöldinu voru hræðilega lengi að líða.. ég ákvað að fara í göngutúr til að stytta tíman og sá að ég var ekki ein um það að samferðarmönnum mínum. Kvöldið nálgaðist og ég rétt náði að pína ofsoðinn fiskinn ofaní mig. á meðan foreldrarnir þrösuðu um fjölmiðlafrumvarpið og hvort pabbi ætlaði að fara í afmæli hjá Davíð Oddsyni lét ég hugan reika um fjarlæg lönd í öðrum heimsálfum. áætlunin var að fara um miðja nótt svo að foreldrarnir vissu ekki af okkur. við byrjuðum á því að fara að "sofa" og bíða eftir að foreldrarnir sofnuðu. ég faldi mig undir sænginni og beið þess að hrotur heyrðust úr næsta herbergi. ekki leið á löngu þar til drunurnar hófust svo ég stökk undan sænginni og klæddi mig úr náttbolnum og í peysu en ég hafði ekki farið í náttbuxurnar þar sem að ég yrði fljótari út. eftir að hafa komið fullt af koddum og tuskudýrum fyrir í rúminu eins og ég væri þar liggjandi læddist ég niður tröppurnar eins hljóðlega og ég gat og bað þess heitt að ég mundi ekki hrasa. mér tókst að komast út en þegar ég var búin að loka hurðinni rann það upp fyrir mér að ég var ekki með farangurinn minn. hann var enn í herberginu mínu og ég ekki með lykil. hvað nú? jú, svalirnar, þar er opið svo ég þurfti bara að klifra upp á svalir og svo opna þær og þá var ég komin inn í herbergið mitt. eftir að hafa stúderað svalirnar í nokkra stund hóst klirfrið. það var nú hægara sagt en gert. eftir nokkra mínútna bröllt komst ég upp á þær og gat opnað svalirnar og kippti bakpokanum út úr herberginu og lokaði svo svölunum eins hljóðlega og ég gat og stökk niður í garðinn og fáraðist yfir tímanum sem ég hafði eytt í þessa vitleysu. ég hljóp svo af stað og leið mín lá niðrí höfnina. Á leiðinni hitti ég fleiri samferðamenn þau Katrínu, Ásu og Stefán. Þegar í höfnina var komið voru Andri og Gunnar þegar þar. Eftir smá skammir frá þeim um það að við höfðum verið of sein og þeir hafi þurft að ná í flekann einir fórum við í það að koma flekanum niður á sjóinn. Flekann höfðum við gert í bílskúrnum hjá Gunnari í vetur eftir langa frönskutíma á mánudögum og komið svo fyrir á vel földum stað í höfninni daginn áður en lagt var af stað. Flekinn okkar saman stóð af mörgum greinum, bambus, grasi og fleiru sem okkur datt í hug að væri nothæft við flekagerð. Þið sem hafið áhyggjur yfir því að flekinn sé ekki nógu sterkur og haldi ekki sex manns þá get ég glatt ykkur með því að við gengum úr skugga um það að hann virkaði á Þingvallarvatni í vor. Þegar okkur var búið að takast að koma flekanum niður á vatnið var farangrinum hennt niður og svo fikruðum við okkur niður hvert á eftir öðru. Ég leit í kringum mig og sá hvernig spennan ljómaði í augum hinna, ég vissi að öll vorum við að hugsa að sama “loksins erum við að fara”. Sléttur Afríku þeystu framhjá í augunum og ef vel var gáð var hægt að greina ljón og gírafa bregða fyrir. Andri og Gunnar sáu um róðurinn á meðan við hin sátum þegjandi enn með morgunhrollinn í okkur. Katrín dróg upp teppi og við komum okkur fyrir undir þeim og hjúfruðum okkur þétt saman. Ekki leið á löngu þar til við komum að litlu eyjunni sem við kölluðum Litlu-Afríku því þar var frelsið okkar til Afríku. Nei, við vorum sko ekki að fara á heimatilbúnum fleka þangað heldur litlum mótorbát. Okkur var orðið verulega kalt svo við ákváðum að fá okkur heitt kakó til að hita kroppinn. Eftir kakódrykkju hélt ferðin áfram. Eftir marga daga og nætur komum við til Frakklands. Mismunandi sleip vorum við í frönskunni þar sem margir höfðu eytt tíma í að hugsa um flekagerðina í löngufrönskutímunum. Okkur tókst þó að fá bensín og tjaldstæði. Þótt mið sumar væri var okkur mjög kalt í tjaldinu svo tekið var upp á því að renna öllum svefnpokunum saman og koma öllum teppunum ofaní þessa stóru sæng. Við þetta hlínaði okkur verulega en um morguninn vorum við að stikkna úr hita og lágum í einu svitabaði svo við tókum upp á því að stökkva ofaní ískalda sundlaugina á tjaldstæðinu í náttfötunum okkar. Þegar það fór að síga á brottför okkar frá Frakklandi tóku strákarnir upp á því að skvetta vatni á okkur stelpurnar þegar við vorum í sólbaði svo brottförin lengdist þar sem við þurftum að hefna okkar á þeim og úr þarð stærðarinnar vatnsslagur. Að lokum tókst strákunum að henda okkur þrem ofaní sundlaugina. Þegar okkur hafði tekist að þurka okkur og ganga frá öllu dótinu fór Stefán með allan farangurinn út í bátinn þar sem við fengum það í skaðabætur fyrir að hafa verið hennt út í sundlaugina. Á meðan fórum við og keyptum ís. Yndislegan, frábæran ís. Nú var aftur haldið af stað og nú var Afríka næsti viðkomu staður. Sjórinn var úrillur á leiðinni sem komstaði mikla sjáveiki og uppköst. Eina nóttina þegar allir voru í fasta svefni heyrðust óp frá Andra sem hafði verið stýrimaður þessa nóttina. “við erum hér!! Krakkar, vakniði, ég sé land!” svefnpokunum var rennt niður í flýti og allir hlupu út á þilfarið. Andri hafði rétt fyrir sér. Það sást í land og við mundum ná þangað fyrir kvöldmat! Við vorum svo ánægð að slegið var upp til veislu á þilfarinu og afrískir söngvar sungnir og afrískir dansar dansaðir. Allan daginn sátum við svo á þilfarinu og sleiktum sólina og sáum landið dragast nær og nær. Loftið titraði af spenningi og það hefði verið næstum hægt að koma við hann. Loksins vorum við komin í höfnina. Við höfðum lent í einhverju smáþorpi. Við festum bátinn okkar og lögðum af stað upp í þorpið. Enginn sagði neitt því við vorum of upptekin af því að hugsa um sléttur Afríku og allt það sem er að fara að renna fyrir sjónir okkar. Ljón, fílar, gíraffar, sebrahestar, öll dýrin í Afríku, öll menningin öðruvísi í hverju þorpi. Þegar lengra dróg að þorpinu greindum við tónlist. Þetta var latino tónlist. Frekar undarlegt, en menningin er mjög fjölbreytt svo þetta var bara þorp sem innihélt latínó íbúa. Þegar við koum inn í þorpið og fundum upptök tónlistarinnar horfði fólkið undarlegum augum á okkur og benti og hló og hvíslaði. Þá sagði Gunnar: “Þetta er ekki afríska, þetta er spænska” Þetta útskýrði fall hans í frönsku þar sem hann hafði greinilega verið að læra spænsku en ekki frönsku. Nú var ég ekki lengi að leggja saman tvo og tvo og sagði við hina. “við erum ekki í Afríku. Við erum í Suður-Ameríku!”

LA FIN!

Edda afríska !

martedì, maggio 18, 2004

einkunarafhending á morgun. ég á ekki eftir að sofa mikið í nótt!! :'( afhverju þurfa að vera einkunnir? :(

Edda kvíðna...

lunedì, maggio 17, 2004

Kraftwerk og finnland 

já.. nú sit ég hér og síðustu stundir sumarfrís míns eru að líða.. vinna klukkan átta á morgun.. :/ hmm.. eiginlega sit ég ekki heldur ligg upp í rúmi og niðurhleð ýmsum lögum, eins og disney, kraftwerk og fleira.. eins og er er the Model með kraftwerk í gangi sem er bara mjög kúl lag.. asnalegt að uppgötva góðar hljómsveitir þegar þær eru nýbúnar að halda tónleika.. :( ég uppgötvaði sem sagt dc++ið mitt aftur í dag. ég er voða léleg í svona löguðu eitthvað..

í dag var ég í smáralind. þar var afs með svona kynningarborð hjá hagkaup og mig langaði að fara að skoða en var skikkuð til að fara með í hoppukastalann, en fékk að fara reyndar þegar krakkinn sem var í pössun fór í hann í 10 mín. ég fór rakleitt niður og birjaði að skoða plagat um taíland. svo fikraði ég mig áfram og þá kemur stelpa sem er hér sem skiptinemi frá finnlandi. ég get svarið það að við töluðum saman í svona 15-20 mín. hún sýndi mér hvar hún átti heima í finnlandi og ég sýndi henni hvar ég hafði komið og svona. þetta var bara mjög fín stelpa. hún sagði að hana langaði svo að vera í mh. hún hefði líkað passað þar inn, var í doppóttu pilsi (eins og ég) og skóm, mjög emmháleg allavega. henni finnst mjög gaman hér og er búin að breytast svo mikið, allt til batnaðar, og talar mjög góða íslensku, allavega betri en ítalski strákurinn, hann var aðalega bara með svo mikinn hreim að ég átti erfitt með að skilja hann. hann hélt að ég væri "systir" stelpunnar eða vinkona því við töluðum svo mikið saman :P fyndinn gaur með stórt bros :D en svo var hringt í mig og beðin um að koma upp aftur og á burger king.. :( hefði sko alveg viljað vera að tala við hana Láru lengur :( hún gaf mér svo nokkur ráð þegar ég var að fara. nú er ég farin að hlakka svo mikið til að fara... ég er búin að fylla baðherbergið með gulum post-it miðum með ítölskum orðum. nokkrir miðar eru komnir í mitt herbbergi en það ætla ég að klára á morgun, en svo verður það eldhúsið næst ;)

buona notte

EDDA - 109 dagar í ítalíu

p.s. pabbi laumaði því að mér í dag að ég fæ að fara til eyja!!!!!!!! :D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D VÚHÚ!!! :D:D:D:D:D:D

giovedì, maggio 13, 2004

Fíkn 

ég ætla hér með að viðurkenna fíkn mína fyrir skóm. ég var að skoða skó heimasíðu og ég varð veik.. vá hvað mig langar í marga þarna.. áætlunin á morgun er að kaupa bleikar gúmmítúttur með blómum :)

Ja, nú er það orðið slæmt... 

.. þegar maður er farin að sofa hjá frönskum sögnum og efnafræðibókum.


Nú fer að styttast í próflok. þrjú próf eftir :) eitt á morgun, eitt á miðvikudaginn og eitt á mánudaginn þar á eftir :) en mh prófum mínum líkur á morgun (föstudaginn 14. maí)samt með efnafræðinni, sem er bara orðin mjög skemmtileg þegar ég fer virkilega að skilja hana. ég hélt að ég kynni nákvæmlega ekkert í henni en svo komst ég að því að ég kunni alla fyrstu þrjá kaflana mjög vel en fjórði kaflinn er soldið snúnari þegar það er farið að tala um oxun-afoxun, sýru- og basahvörf og fellingu úr lausn, ef þið vildð vita ;) híhí.. en það er alveg ótrúlegt hvað maður getur lifað á súkkulaðikeksi og kóki, ég er búin að gera það síðan 9 í morgun og er ekki orðin svöng enn ;) hehe.. það er alveg ótrúlegt hvað maður borðar mikið af nammi í prófunum :P nú er ég að fara á kóræfingu eða kórskólatónleika svo það er best að fara að ganga frá efnafræðiglósum sem ég er búin að dreifa út um allt þarna í lesstofunni á bókasafninu ;)

EDDA - verðandi stúdent í efnafræði og náttúrufræðigreinum :)

mercoledì, maggio 12, 2004

efnafræðisöngur 

ég er að læra efnafræði og til þess að læra forskeytin utanað ákvað ég að búa til söng til að auðvelda það aðeins. Lagið er do, re, mí úr sound of music.

món er nammi frá mónu gott,
dí er dísa glettin mær,
trí er trítla trítilfætt,
tetr er tetrix leikurinn,
pent er pentagon í dag.
hexa er norn í andrés önd,
nú er' forskeytin búin
við byrjum aftur svo á mó ó ó ón..

món er nammi frá mónu gott,
dí er dísa glettin mær,
trí er trítla trítilfætt.
tetr er tetrix leikurinn,
pent er pentagon í dag,
hexa er norn í andrés önd,
nú er' forskeytin búin.
við byrjum aftur svo á món.
món, dí, trí, tetr, pent a, hex a!

jeij!!! gaman :) þótt þetta sé nú ekkert lag sem mundi meika topp 10 listan þá hjálpar þetta mikið við lærdóminn !! :D

martedì, maggio 11, 2004

Meiri vinna!!!! 

Vá maður... ég var farin að sjá fram á að eyða sumrinu í það að telja niður til ítalíuferðarinnar með litla sem enga vinnu, en núna er ég komin með tvær! fékk vinnu hjá bænum frá átta til hálffimm á mánudögum og átta til fjögur á föstudögum... úff... sumar gleði, djamms, útilega, heimsókna og hangs með vinum virðist ætla að breytast í EITT STÓT vinnuálag.. en ég ætla að vera dugleg að hitta ykkur samt þótt það verði bara á nóttunni ;)

lunedì, maggio 10, 2004

Vinna!!! 

Jahá! Þá er ég komin með vinnu í sumar! :D ég sótti um í öllum matvöruverslunum sem mér datt í hug í gærkvöldi og strax í dag fékk ég svar frá 11/11. þar er ég sem sagt komin með kvöld og helgarvinnu, svo er bara að vona að kópavogsbær fari eitthvað að láta mann vita hvort maður hafi fengið vinnu hjá þeim!! urr.. annars get ég víst fengið vinnu á elliheimilinu eir, en það er svo langt í burtu að ég þyrfti örugglega að vakna klukkan 6 ef ég ætti að vera mætt 8 og þyrfti að tala fyrsta strætó. en já, gleymdi að segja hvar ég verð að vinna, en það mun vera í breiðholtinu. drafnareitthvað (drafnarfell?)... maður virðist þá ætla að verða ríkur og geta keypt sér hundraðogþrjátíu skópör í ítalíunni ;)

hva, bara nýtt lúkk á bloggerinn!?!?! 

jæja.. þa er ég búin að sitja hérna síðan klukkan rúmlega 9 í morgun og klukkan er 14:17 að skrifa ritgerð. ritgerðin sem átti að vera 3 blaðsíður varð af 8 blaðsíðum skrifað mál og þá meina ég fyrir utan forsíðu og heimildaskrá. ég er bara mjög ánægð með hana. án efa besta ritgerði á þessari önn hled ég. ég náði meira segja að skammast smá út í heiminn svo að ég er mjög sátt :) nún ætla ég að prenta út og skrifa spurningarnar af dönskuverkefninu fyrir hana dísu, svo tekur við matartími því ég er ekkert búin að borða síðan klukkan rúmlega 8 í morgun og svo meiri lærdómur.. skemmtilegt líf ekki satt? ;)

domenica, maggio 09, 2004

Hryðjuverk 

Í fréttunum var sagt frá meintum hryðjuverkamönnum sem voru handteknir á Ítalíu í dag. við þetta fékk ég svona smá augnaráð frá mömmu minni, en það er allt notað gegn manni yfir brottförinni. mamma mín kvartar oft yfir drasli í herberginu mínu og segir að ég geti nú ekki boðið útlenskuforeldrum mínum upp á þetta !! ég hugsa að hún mundi örugglega senda mig á einhvern svona mannasiða-umgengis-hreinlætis-tiltektarkúrs ef hún finndi hann. en það er ekki það að ég sé laus við alla mannasiði, góða umgengni, hreinlæti eða góða tiltekt, ég bara sé ekki svo mikla þörf fyrir því að vera alltaf að taka til í herberginu mínu og sérstaklega þar sem mér líður alveg ágætlega í öllu draslinu mínu, er bara ekki málið að fá sér ríkan kall og ráða húshjálp? ;)

en að hryðjuverkunum aftur. úff.. þar sem ég nenni ekki að skrifa langan pistil um hryðjuverk þá ætla ég bara að klippa og líma fréttina hingað.

"Fimm handteknir á Ítalíu vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi
Lögreglan í Róm greindi frá því í morgun að fimm menn, grunaðir um að vera íslamskir hryðjuverkamenn, hefðu verið handteknir þegar þeir ætluðu að fara frá Ítalíu til þess að standa fyrir hryðjuverkum í Írak. Mennirnir eru frá Alsír og Túnis og voru handteknir í Flórens og nágrenni í aðgerðum lögreglu snemma í morgun.
Að sögn lögreglu eru mennirnir í samtökum Ansar al Islam og í nánum tengslum við Al-Qaeda. Foringi mannanna fimm er sagður vera Mahamri Rashid, 34 ára gamall imam eða prestur við moskuna í Flórens."

tekið af vef morgunblaðsins.

sem sagt að landið þar sem foreldrar mínir voru nokkuð viss um að væri mjög öruggt er það kannski ekki, skipti engu máli þótt ég hefði farið til mexíkó eða perú. en eins og heimurinn er í dag þá er hvergi öruggt að búa held ég. ekki einu sinni á íslandi (!!), þótt að það séu kannski ekki miklar líkur á hryðjuverkum hér.

en jæja.. farin að læra aftur.... :(

sabato, maggio 08, 2004

jæja.. búin að breyta linkunum. ákvað að hafa fyrsta skírnarnafn hjá öllum (nema dísu þar sem ég yrði ekki vel liðin ef hún héti bara ásdís) og ég ákvað að vera góð við ykkur og sundurgreina allar sigrúnirnar með næsta staf í nöfnum þeirra og líka kristrúnanna ;) búin að breyta svoldið til líka og bæta einhverju inn, þið ættuð að geta séð þetta...

farin að læra

EDDA
niðurtalningin er hafin

venerdì, maggio 07, 2004

stutt blogg 

mér leiðist. ég blogga. ein vika í að prófin klárist hjá mér í mh. pabbi kemur heim frá sauðarkrók í dag. mamma fer í borgarfjörð á morgun. fór í smáralind. með mörtu og dísu. hitti þorgerði og margréti. þorgerður er vinkona mömmu. 17 dagar í söngprófið mitt. farin að ná í pabba. ég fæ að keyra.

giovedì, maggio 06, 2004

Dáleiðsla í gegn um netið! 

http://www.rabailkal.com/

Þetta er bara kúl!!! :D
ATH. þið verðið að hafa kveikt á hljóðinu til að þetta virki :)

vitleysingurinn hún edda  

úff... ég bara hreinlega get ekki fengið mig til þess að skrifa þessa ritgerð. kannski út af því að ég er stopp með efnið, sem sagt veit ekki hvað ég get skrifað meira.. mig vantar eina og hálfa blaðisíðu í viðbót. ég er reyndar búin að vera dugleg að æfa mig á píanóið í dag. það er alveg merkilegt hvað ég verð rugluð í prófunum. í fyrsta lagi þá lifi ég á nammi, gleymdi að ég átti að fara í tónlistarskólann í gær (sem er ekki gott því það fer að styttast í próf þar) setti smjörið í vaskinn og ætlaði að koma smjörhnífnum fyrir í ískápnum þegar mér var bent á vitleysuna og einn daginn ætlaði ég að setja kók inn í örbylgjuofnin. toppur vitleysunar. ég á það líka til að vera að fara kannski niður á miðhæðina og svo er ég allt í einu komin á neðstu hæðina :/ úff..

ég hugsa að ég bara æfi mig í að borða ítalska pítsu og byrja að lesa einhverja efnafræði sem er próf í eftir viku plús einn dag og síðasta prófið mitt... :) eða nei, síðasta prófið mitt verður 24. maí :(

EDDA

p.s. Gangi ykkur öllum vel í prófunum ykkar og gangi þér vel í píanóprófinu á morgun anna mín :)

mercoledì, maggio 05, 2004

tómasarhagi 

já. í dag þurfti ég að hanga í tómasarhaganum í 3 korter alein að gera ekki neitt. þá rann upp fyrir mér hvað það verður fáránlega gott að verða komin með bílpróf... það var sem sagt þannig að pabbi var að fara á sauðarkrók í dag og átti að hitta samferðamenn sína í tómasarhaganum og áætlunin var að ná í mömmu í laugar þar sem hún var með einhverjum blindingjum og þar sem ég er loksins farin að geta keyrt aftur þá langaði mig náttúrulega að fara með og keyra! svo þegar við feðginin vorum nýkomin á kringlumýrarbrautina þá hringdi síminn hans pabba og mamma sagðist ekki verða búinn fyrr en klukkan 5. pabbi sagði mér þá að við færum bara í smá bíltúr og svo þyrfti ég bara að bíða í svona korter eftir henni. við fórum í bíltúr sem var alveg ógurlegur. ég var náttla svo vitlaus að treysta leiðbeiningum föður míns og ætlaði hann að láta mig keyra inn einstefnu tils að athuga hvort ég tæki eftir merkinu. ég gerði það nú ekki og þurfti að snúa við og það versta var að það var bíll á eftir mér.. úff.. svo gerðist líka fleira. ég keyrði inn um fullt af þröngum götum og bíllinn er svona í breiðari kanntinum þannig að það var soldið erfitt. svo ætlaði ég að beygja á eftir strætó en nei nei. stoppaði þá ekki fjarkinn bara þarna á miri götunni þannig að ég gat ekki beygt inn og bílar komu úr báðum áttum, svo pabbi sagði mér að bakka og þá flautaði bíllinn fyrir aftan mig. úff... ég var nú ekki í góðu skapi yfir þessu því í byrjuninni gekk mér svo vel þangað til ég fór að villast eitthvað þarna hjá kirkjugarðinum og vesurbæ rvk. svo lagði ég í tómasarhaganum og kortersbiðin varð að þrem korterum. á þessum tíma fikktaði ég eins mikið í bílnum og ég gat. hækkaði og lækkaði sætið, færði það fram og aftur, opnaði rúðurnar og lokaði, fiktaði í útvarpinu, reyndi að hvíla mig, gekk ekki alveg svo ég fór að skoða mannlífið þarna í haganum auk þess að naga soldið neglurnar. ekkert merkilegt fólk var á ferli þarna, sá reyndar einn mh-ing koma á rauðum bíl sem var með límmiða aftan á rúðunni sem stóð á stussy, gaurinn hvarf inn í húsið í nokkrar mín. kom svo út aftur og fór. stuttu seinna komu littlir strákar á hljólabretti, þeir fóru inn í þetta sama hús og komu svo út með fótbolta, svo kom gömul kona og hún fór inn í húsið líka. mikið að gera í þessu húsi. þetta var nú ævintýrið í tómasarhaganum, afhverju getur ekki eitthvað af ykkur átt heima þarna? þá hefði mér ekki þurft að leiðast svona mikið!! urrr....
í dag eru minna er fjórir mánuðir þangað til ég yfirgef ísland í ár :)

martedì, maggio 04, 2004

1/2 af prófunum búinn! 

jæja.. þá er maður bara hálfnaður í prófunum :P franskan gekk bara ágætlega.. ég spái 8 í lokaeinkunn. Næsta próf er 14. maí sem er í þokkabót síðastiprófdagur, en þá er efnafræði. ég hef alveg 10 daga til þess að læra, en ég þarf að skila einni ritgerð og verkefni í dönsku til að 9jan sé tryggð þar ;)

þar sem ég er í prófum fór ég aðeins að pæla í þessum prófum, eða sko próf, svona hugtakið, hluturinn próf. tökum mh sem dæmi. öllum nemendum í mh í ákveðnu fagi er troðið inn í stóran sal. þar eru borð bak við borð í mörgum röðum og snúa öll í átt að sviðinu á miklagarði. þegar þú kemur inn finnuru þér sæti og það fyrsta sem þú þarft að gera er að merkja miða með nafni, kennitölu, fagi og kennara og vorpróf/ haustpróf og dagskóli/öldungadeild. síðan þarftu að tjékka hvort þú hafir ekki örugglega sett skilríkin þín í pennaveskið og taka þau upp úr. svo safna kennararnir þessum miðum saman rétt eftir að þú ert byrjaður í prófinu. þá er það prófið. fólk sem er á völtum borðum, skrjáfandi nammibréf, gos að gjósa, svalaferna að klárast, risastór klukka á veggnum fyrir ofan sviðið sem telur niður klukkutímann, mínúturnar og sekúndurnar sem þú hefur til þess að ná þessum einingum sem þú þarft til þess að komast í næsta áfanga og taka erfiðara próf. fólk yðar í sætum sínum, stólar færast til, blíantar detta á gólfið, manneskjan fyrir framan þig getur ekki setið kjurr og manneskjan fyrir aftan þig er að rembast við að stroka vitlaust svar út... er þetta stressandi eða hvað?????? allavega að mínu mati er það og það er ekki bara þessi prófkvíði sem ég á víst að þjást af sem veldur því held ég... próf eru bara ekki rétta leiðin finnst mér. ég hef ekkert á móti svona litlum kaflaprófum (og þá sérstaklega þau sem má nota bókina í ;) en þessar aðstæður sem við menntskjælingarnir í mh erum setir í við svona lokapróf í enda hverrar annar eru bara ekki að gera sig finnst mér. í grunnskóla fannst mér ekkert að svona prófum þar sem við vorum öll bara í einni stofu og þá stofu sem kennt var í og allt mjög heimilislegt. í samræmduprófunum var öllum árgangnum skellt í stærstu stofuna á unglingastiginu sem var jafnframt "heimastofa" bekkjarins og stærðfræðistofan. mér leið ágætlega í samræmduprófunum. þar átti ég mitt eigið sæti (allir sátu bara í sama sæti og í 1 prófinu) en í mh er þvílíkt kapp um það að ná sæti, og þegar það eru fleiri áfangar en þinn eigin þá geturur lent í því að setjast og byrja á öðru prófi en þínu eigin. eins og í morgun í frönskunni þá kom ég inn frá kennarastofunni "að ofan" og svo þurftum við 303 stelpurnar að labba allaleið yfir salinn hinum megin því það voru eintóm 103 of 203 próf þar sem við komum inn.. úff... sem betur fer hef ég þó ekki lent í því að byrja á vitlausu prófi, en það hafa sumir gert ;) ég er núna sko alvarlega farin að spá í að leggja ísland að fótum mér (ekki bókstaflega) og verða bara næsti forsetisráðherra, jafnframt fyrsti kvennforsætisráðherrann sem væri náttla bar kúl sko ;) eg ég kemst að völdum ætla ég að leggja niður svona lokapróf og hafa alltaf svona símat og hafa þá stærri verkefni. svo ætla ég líka að leggja niður þessi tilgangslausu asnalega samræmdustúdentspróf (kommon, hver er eiginlega tilgangurinn?? enginn!! bendi fólki á grein á blaðsíðu 31 í mogganum síðan á sunnudaginn; bréf til blaðsins, en þar hafa stúlkur tvær góð rök til málefnanna að leggja). ég ætla mér líka að gera út um launamisrétti kynjanna og stoppa öll umhverfisspjöll og alla leiðinlega og fúla kalla. svo ætla ég líka að koma upp um spillingar á vegum fyrri stafsmanna(/s) og stoppa öll stríð gegn mannkyninu!!! fyrst er bara að finna sér flokk, eða enn betra, stofna sinn eiginn flokk! hver vill vera með? dísa, þú mátt vera landbúnaðarráðherra ;)



ath. ég ætla mér ekki að taka neina ábyrgð á því sem stendur þarna!

ath. 2 það eru fleiri málefni sem ég ætla að berjast fyrir líka en ég bara man þau ekki alveg núna.. heh.. :/


lunedì, maggio 03, 2004

jæja.. nú er bara allt búið og prófin taka við :( síðasta óperusýningin var að klárast.. ég hugsa til þess núna að þetta var jafn vel í síðasta sinn sem ég hitti suma krakkana allavega skilst mér að Unnar klári næsta vor og Ragnheiður er á 6. eða 7. stigi.. :/ þetta er búið að vera mjög gaman og það er skrítið að þurfa ekki að hafa áhyggjur á að koma rétt inn í "she will be dancing..." og fleira og ég þarf aldrei að syngja þetta langa "a ball, a ball, a ball, a ball, a ball, a ball, a ball" :P þetta er samt búið að vera mjög gaman og ég er hætt við að skipta um skóla þegar ég kem heim frá ítalíu :) en allavega nú tekur alvaran við, ljótu prófin. ég er nú samt svo heppin að vera bara í tvem prófum en ég er búin að slora mjög mikið þessa helgi svo ég er ekki alveg að meika 10 í frönskuprófinu, held ég þurfi samt bara að fá 6,8 tils að ná 8 þannig að takmarkið er að ná allavega 7 í prófinu, en miðað við hvað mér gekk hörmulega (og ég meina hörmulega, ég var alveg viss um að ég væri fallin og forðaðist frönskukennarann) í prófinu í 203 og ég fékk samt slétt 7 en hefði prófið verið auðveldara (ég var sko ekki ein um að það hafi verið erfitt) þá hefði ég getað fengið 9 vegna mjög góðrar kennaraeinkunnar :/ en lífið er ekki sanngjarnt, ég spái því ekki að verða prófessor í frönsku samt þarf ég væntanlega að taka upp í 503 en ég hugsa að ég muni bara tala ensku ef ég skildi villast til frakklands eða bara ítölsku! ég vil samt að ítalska verði 3. mál og kennd upp í 503!!! eruði ekki sammála mér?!?! (ef ekki þá fáiði að kenna á því!) ég ákvað að fara til ítalíu en ekki perú, argentínu eða mexíkó út af því að ítalskan er mikið flottari en spænskan, ég meina, hver vill ekki kunna að tala verulega flott tungumál?? vilja allir ekki hafa þennan "fína" breska hreim? ;) en já.. ég ætlaði að segja eitthvað merkilegt fleira en er búin að gleyma því... best að vopna sig frönskum sögnum og imparfait blöðum...

já.. mér finnst unnar geir (sá sem lék "husbandinn" í óperunni) fyndin manneskja :P

með frægðinni fylgja vandamál 

já.. aðdáendurnir eru strax farnir að kvarta. systir hennar mömmu átti að skila því til mín að ég ætti að fara í klippingu til þess að það sæist í þetta fallega andlit (orðrétt sko;). jáá.. frægðin er strax farin að taka sinn skerf. en klippingu fer ég ekki í, þarf reyndar að klippa toppinn og særa hárendana, en ég ætla ekki að klippa mig stutt, foreldrar mínir eru endalaust að segja mér að ég eigi að losa mig við allt þetta hár. svo vilja þau líka að ég hafi engan topp svo það sjáist í ennið á mér, en ég komst að því í dag þegar ég var að spenna toppinn minn upp tils að ég gæti lesið frönsku að ég er með gífurlega stórt enni. á þeirri stundu ákvað ég að það væri bara best að hafa toppinn.

domenica, maggio 02, 2004

frægð og frami !! 

þar sem ég get ekki sofið ætla ég að blogga smá.

ég er bara orðin fræg. er í sjónvarpinu og dagblöðunum dag eftir dag!! á miðvikudaginn var ég í ísland í dag að syngja með graduale útaf tónleikunum sem voru á föstudaginn, daginn eftir vorum við á stöð eitt út af þessum tónleikum svo aftur. á miðvukudaginn (minnir mig) var svo hálfrarmilljónar heilsíðu mynd af mér (og náttla öðrum líka, en þeir eru nú ekki eins merkilegir og ég ;) bæði í mogganum og fréttablaðinu, veit ekki með dv því ég les það ekki. svo á fimmtudaginn var mynd af mér í mogganum út af óperunni sem ég er í. við dísa tókum upp á því að bjóða fólki eiginhandaráritanir, en það tók nú ekki vel í það, en það er þeirra missir, við erum nefnilega stóru stjörnur framtíðarinnar !! þann 1. apríl 2004 (ef ég skildi jónsa rétt þ.e.a.s. eða einhverntíman um næstu páska) þá verð ég svo aftur í sjónvarpinu.

frumsýning óperunnar amelía fer á ball var á fimmtudaginn. það gekk bara vel. kórinn var mjög góður (út af því að ég er í honum náttla;) en sitt hvað fór úrskeiðis annað sem lagað verður bara á mánudaginn. þannig að þið sem komið þá fáið betri sýningu ;) eftir sýningu var svo aðeins farið fram og hitt fólið. anna kom baksviðs en svo fórum við saman fram. það fyrsta sem var svo sagt við mig (af ömmu minni eddu) hvað ég væri í flottum kjól. ókei. sko. það voru reyndar allir að segja þetta við mig, en þetta er kannski ekki ALVEG það fyrsta sem þú villt heyra eftir að þú varst að frumsýna þína fyrstu óperu. en svo fékk ég að heyra að þetta hefði verið flott. amma mín edda minnstist líka á leikarahæfileika mína, þannig að kannski er ég orðin leikarinn í fjölskyldunni. talandi um leiklist. ég er farin að heyra það æ oftar að ég sé góður leikari. ég er náttla mjög stolt af því, því fyrir utan að mér finnst alveg ógeðslega gaman að leika þá er ég bara nýbyrjuð. að mínu mati gekk mér samt ekki mjög vel í sönglistarsýningunni, en ég virðist alveg vera að gera góða hluti í óperunni. leiklistin er nýjasta áhugamálið mitt og ég ætla að reyna að fara á leiklistar eitthvað úti í ítalíu og kannski í leiklistarfélagið í mh þegar ég kem heim, og ég hefði pottþétt ekkert á móti því að verða leikari en maður þyrfti að hafa mjög góðan "tallent" til að geta verið að lifa á því og það sama um sönginn, þannig að ætli maður plani ekki eitthvað langt háskólanám.. samkvæmt spákonu sem hún móðir mín fór til þá á ég nefnilega eftir að læra mikið, verð örugglega með master eða jafnvel doktorsgráðu í einhverju. ég þoli samt ekki að hugsa um framtíðina, hvað ég ætli að læra og þannig. margir í kringum mig eru búinir að ákveða sig, en ég hef ekki minnstu hugmynd um það. ég gæti alveg hugsað mér að vera líffræðingur eða efnafræðingur, sálfræðingur, félagsfræðingur, rithöfundur, lögfræðingur en bara ekki kennari. það er það eina sem ég er búin að ákveða og það að ég ætla að ferðast til ástralíu, nýja-sjálands, suður-afríku og fara sem sjálfnoðaliði til mið og suður-ameríku og heimsækja löndin þar og svo stefni ég líka á interail, en er ekkert farin að spá í með hverjum eða hvenær, svo hver vill koma með ??

en að óperunni aftur. eftir óperuna fórum við pabbi að ná í mömmu mína. við erum semsagt búin að kaupa okkur nýjan bíl (amerískan jeep fyrir ykkur bílanördana). ég hef lítið sem ekkert verið að keyra (ég er ekki komin með bílpróf, nei en er með æfingarleyfi) og mig var farið verulega að langa til þess. æfingarleyfið mitt var enurnýjað í vikunni áður en bíllinn okkar eyðilagðist og ég var bara búin að fá að keyra tvisvar síðan svo þann 31. desember. en því miður þá varð skiltið eftir í gamlabílnum og frændi minn með hitt í láni svo við vorum ekki með neitt skilti. svo vildi líka til að ökunámsbókin var heima. og ég fékk að keyra. við skiptum þegar við vorum í hafnafirðinum og égar ég var búin að keyra í svona 3 mínútur tók ég eftir því að löggan var á eftir mér. sjitt.. vá hvað ég varð stressuð. ég lækkaði hraðan því ég var aðeins yfirl hámagshraða, var samt erfitt að segja þar sem bílinn sínir mílurnar og svo km þar fyrir neðan með svona littlum rauðum stöfum og með 20 km millibili. svo fóru bláu ljósin á og ég hélt að löggan væri að fara að stoppa mig og var farin að undirbúa engla/sakleysis svipinn minn, en þá fór löggan fram úr mér og keyrði svo á fullu áfram. vá hvað mér var létt. þá hafði bíllinn sem var nýbúinn að taka fram úr mér keyrt of hratt og ég slapp þarna eins ólögleg og hugsast getur að keyra. ég keyrði svo framhjá þeim í rólegheitum. ég tók líka í fyrsta sinn framúr bíl. hef aldrei gert það áður, en ég bara neyddist til að taka fram úr hónum þar sem hann var að keyra á 60 og ég á var búin að vera á rúmt 90. það voru nú samt alveg fullt af bílum búnir að taka fram úr mér en undir lokin féldu þeir sig samt bara fyrir aftan mig þar sem ég var farin að keyra hraðar. svo fórum við inn og ég fékk fullt af skrítnum augnaráðum frá fólkinu í kring þar sem ég var sjúkt mikið máluð síðan úr óperunni. var með svona leikhúsmálningu sem þýðir helmingji meira en venjulegt er. ég ákvað að keyra ekki heim, þar sem mamma mín var í för og vinkona hennar.

nú er ég búin að gleyma hvað ég ætlaði að segja meira... já.. dönskuprófið!!

það var munnlegt dönskupróf á föstudagsmorgninum klukkan hálf 10. ég mætti klukkan 8 því ég var ekki búin að hafa neinn tíma til þessa ð undirbúa mig fyrir það og þegar ég var að reyna það á meðan ég var að bíða eftir að minn hluti í óperunni kæmi var ég trufluð með fyrirlestrum um það ég ég skyldi ekki hafa átt að hætta í skólahljómsveit kópavogs og hvað þá að hætta á klarinettinu (ekki spurja). vopnuð klarinetti og efnafræðibókum fór ég í strætó og gerði eiginlega ekkert að viti fyrr en dísa kom einhverju korteri seinn. dísa var búin að vera mjög dugleg með að finna upplýsingar um það sem við áttum að tala um Carl Nielsen svo hún reddaði okkur alveg. við rendum svo yfir lagið sem við ætluðum að spila og héldum svo niður í stofu 45. þar þurftum við að bíða smá og þegar guðrún dönskukennari kom út til að hleypa næsta hóp inn varð hún alveg feykji ánægð þegar hún sá hljóðfærin. stuttu seinna var haldið á vit stúdentsprófið í dönsku. og það gekk nú bara glymrandi vel. þegar við dísa kláruðum lagið okkar byrjuðu hrósin að rigna yfir okkur. guðrún gjörsamlega dýrkaði okkur og sagðist vera snortinn yfir laginu (sem hefði náttlega verið enn meiri snilld ef sindri hefði ekki gleymt textanum af laginu sem hann átti að lesa;) vá hvað hún er mikið yndi!! hún sagði að við værum svo góður hópur og það væri synd að við hefðum ekki fengið að vinna meira saman og við værum svo frumleg, við nefnilega komum með æggesnaps og æbleskiver og gáfum krökkunum þegar við héldum fyrirlestur um danskan mat og æggesnapsið varð fyrir valinu þar sem við vorum tiltölulega nýbúin að lesa smásögu sem hét einmitt æggesnaps. hún tjáði okku líka það að einkunnirnar okkar liggja hátt, vildi ekki segja hve hátt, en hátt eru þær þannig að það er víst að það er komin allavega ein 9 á einkunnablaðið ;)

þennan sama föstudag var svo veisla í hádeginu þar sem þetta var í rauninni síðasti skóladagurinn minn þar til á haustönn 2005. þegar ég gekk svo út úr efnafræði tíma fékk ég skrýtna tilfinningu í magan þar sem ég hugsaði til þess að ég eigi ekki eftir að gera þetta fyrr en eftir eitt ár og þrjá mánuði. vá. ég á eftir að sakna mh L ég var líka kannski að kveðja lóu því hún verður kannski í skóla í noregi á næsta ári. en ég ætla sko pottþétt að kíkja í heimsókn í mh áður en ég fer út! svo er líka öllum boðið í kveðjupartýið mitt sem verður kannski bara svona matarboð. er að spá í að elda ítalskan mat og hafa ítalska tónlist J allt voða gaman J nú ætla ég hins vegar að fara að sofa þar sem ég þarf að vakna á morgun og fara að læra frönsku og svo er ég líka komin með rúmar 3 blaðsíður í word í times new roman stærð 12 og eitt línubil og efast um að þið nennið að lesa meira...
góða nótt dúllurnar mínar !! :*

sabato, maggio 01, 2004

ojj.... :/

This page is powered by Blogger. Isn't yours?