<$BlogRSDUrl$>

martedì, giugno 08, 2004

200 póstar !! 

Þetta er 200aðasti pósturinn og ég ætla að halda upp á það afmæli með því að hætta að blogga !

Veriði sæl!

EDDA
Það er komið trampólín í götuna mína sem allir eiga, þannig að ef þið viljið koma í trambólín partý látið mig vita ! það stendur samt að það megi ekki vera á því ef maður er undir áhrifum? ;)

lunedì, giugno 07, 2004

ég ætla að hætta að blogga...

venerdì, giugno 04, 2004

Raunveruleikinn er súr 

ég var að átta mig á því að ég er að fara. ég er að fara frá íslandi eftir 90 daga! í kvöld ég var á undirbúningsnámskeiði og þegar við vorum að spjalla saman, við sem förum til Ítalíu þá kom yfir mig svona, "hvað er ég búin að hafa mig út í? á ég ekki bara að hætta við?" en eftir því sem leið á fundinn fannst mér þetta betra.. æjj ég get eiginlega ekki útskýrt þessa tilfinningu sem ég fékk... þetta er.. æjj, sleppi þessu bara. en allavega þá hitti ég hluta af krökkum sem eru að fara út í haust fullt af EmmHáIngum, ég, auður, gígja, ingimar, gaur sem ég man ekki hvað heitir, stelpa sem var með mér í leikfimi, kamma, halla, védís, gaur sem situr uppi (tómas að ég held), stelpan sem tók við mig viðtal hekla eða eitthvað í þá áttina, stelpa sem var í Þýskalandi sem ég er búin að gleyma hvað heitir, tveir gaurar í MH hljómsvetinni Sound of Music og svo örugglega fleiri.. Svo var Elín Arna þarna líka, en ég talaði frekar lítið við hana. þetta var samt bara alveg ágætt sko.. fyrst var svona fyrirlestradæmi svo var skipt í foreldra og krakka og farið í leik og svo tókum við svona "viðtöl" við hvort annað og fluttum fyrir framan alla hina. svo var skriflegt verkefni og svo smá kaffi og svo var skipt í hópa eftir löndum. Auður Sauður var þarna sem sjálfboðaliði og hún var náttla mjög kúl þarna! ;) feministinn ég á ekki von á góðu þar sem mikið karlaveldi ríkir á ítalíu og ítalía og s-ameríku löndin eru erfiðust. þaðan koma flestir heim en ég ætla mér sko ekki að koma heim fyrr en í júlí svo þið skuluð ekki eiga von á mér fyrr en þá!! ;) ég held að þessir undanfarnir postar hafa verið frekar leiðinlegir, ég verð að taka mig til að skrifa eitthvað skemmtó (þetta orð er sett inn sérstaklega fyrir sölva) !!

ég er MJÖG sólbrunnin! hægri öxlinn er öll rauð og ég er byrjuð að flagna smá.. ég held ég hafi líka sofnað smá í heita pottinum í dag þegar ég fór í hann eftir vinnuna, fékk meira að segja smá far þannig að nú er ég bæði með hlírabolafar og svona kross á bakinu eftir bikiníið !! þegar ég vaknaði svo upp frá rotinu í pottinum var ég með hálsríg, mér fannst það fyndið!
Góða nótt!

martedì, giugno 01, 2004

mömmur ! 

úff, ég var að komast að því að mamma mín er ekki ENN búin að sætta sig við að ég sé að fara út.. :/ mömmur... hún heldur því grimmt fram að ég muni lenda hjá nauðgara eða barnanýðing. milljónir krakka á mínum aldri, og þá flestir yngir en ég, hafa farið á vegum AFS í gegnum árin. bróðir minn fór út til þýskalands á sama aldri og ég er núna og þá vissi hún ekkert hvað hann var að fara út í, en hún veit nákvæmlega hvað ég er að fara að gera. úff.. ég nenni ekki að blogga um þetta, ég bara veit ekki alveg hvað ég á að segja um þetta, hún bara sér málið ekki frá sama sjónarhorni og ég og pabbi minn sem finnst þetta bara gott hjá mér, okkur tvem langar líka að fá skiptinema þegar ég kem heim því ég held að það verði gaman, en hún er samt ekkert alveg á því.. rosalega geta mömmur verið óþolandi stundum.. :(

This page is powered by Blogger. Isn't yours?