sabato, luglio 31, 2004
Þið byrjið í skólanum eftir þrjár vikur, en ég byrja ekki í skólanum fyrr en eftir sex vikur!!!!
lunedì, luglio 26, 2004
Edda Ósk Campajola
Ég mun búa í bænum Ivrea sem er þekktur fyrir appelsínuslagsmál! ;) Bærinn er nokkurn veginn á milli Milano og Torino, ekkert langt frá Ölpunum. Ég bý eiginlega alveg í miðbænum með pabba, mömmu og þrem systkinum!
Valentina er erlst, stelpa sem er 23 ára sem býr reyndar ekki heima, en kemur oft heim. Hún vinnur sem talmennafræðingur (speech therapist) og býr alein. svo er strákur sem er 21 og annar sem er 13. Mamman er kennari og pabbinn starfar sem sound engineer sem er svona upptökustjóri virðist mér á myndinni sem ég fékk.
Þetta virðist vera fínasta fólk og ég er rosalega ánægð með þau og eru með alveg sömu áhugamál og ég, en ég hefði nú ekki viljað vera svona nálægt ölpunum :/
Ég veit fullt meira og er komin með myndir, þannig að þið verið bara að koma í heimsókn og sjá ;)
En allavega, ciao, ciao..
domenica, luglio 25, 2004
sumar
ég er farin að stunda kaffihúsamenninguna með nokkrum útvöldum einstaklingum og mun vonandi og að öllum líkindum fá bílpróf í lok sumarsins :) og svo verður kannski kveðjupartý áður en ég fer.. það er búið að bjóða mér húsnæði til þess, en ég ætla að reyna að blíðka yfirvaldið tils að fá að halda það hér..
Ciao, ciao e a presto, miei amici!!
p.s. ef einhver er ekki búin að sjá spider man 2, er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við mig.. ;)
martedì, luglio 20, 2004
Gæludýr í viku!
A presto
Edda :)
ATH: nei ég á ekki fiskinn..
domenica, luglio 18, 2004
Óhappagrísinn snúinn aftur !!
Misskilningur virðist hafa farið um, að óförum mínum í Baunalandinu svo hér kemur rétt lýsing á því sem gerðist!
Á sunnudeginum eftir að ég kom út, þann 4. júlí, vorum ég og samferðamenn mínir í bíltúr um svæðið í kring. Þennan dag fórum við til Randers sem er stór bær rétt hjá bróður mínum. Við ætluðum að athuga hvort kastali sem var á leiðinni heim væri opin en svo var nú ekki svo að við héldum heim á leið en vorum ekkert að flýta okkur. Á leiðinni heim er svo hringtorg þar sem við beygjum í átt að Ebeltoft og við þetta hringtorg er bensínstöð. Við þessa bensínstöð er svo svona hoppubelgur. Þetta er ekki svona hoppukastali eins og er á Íslandi og heldur ekki trampólín. Heldur lítur hann svona ( http://www.campingland.dk/vurdering/billund/galleri/hoppepuder.jpg ) út. Nema þessi belgur var mikið hærri! Andreu og Þóri langaði að hoppa á þessum belg og Þórir suðaði líka um það í fyrra. Þar sem við vorum svo ekkert að flýta okkur ákváðu mamma og Íris að stoppa og leyfa þeim að hoppa. Þegar við komum svo inn hjá bensínstöðinni stóð á belgnum að það þyrfti að fara úr skónum. Ekkert annað stóð. Ég hef séð fullorðna hoppa á þessum belg áður (og þegar við vorum í Jesperhus voru tveir fullorðnir kallar að hoppa á svona belg ásamt 20 krökkum) svo ég ákvað að prufa líka og svo belgurinn svo hár, stærri en ég, og ég hafði aldrei séð svona stóran belg. Ég ákvað að hoppa smá með þeim þá þar sem mér finnst gaman að hoppa á svona trampólíni og þau voru að segja mér að koma líka! Ég var reyndar í pilsi þannig að það var frekar erfitt en ég lét mig hafa það og hélt í pilsið allan tíman. Svo þegar við vorum búin að vera að hoppa í smá stund komu tveir krakkar til viðbótar. Ég fór af en fór svo aftur upp til að Íris gæti tekið mynd af okkur öllum þarna uppi. Stuttu eftir þetta heyrðist rifhljóð og bæng!! Belgurinn rifnaði í tvennt, endana á milli, eða réttara sagt hann rifnaði á milli staðana þar sem skórbannaðir búturinn var. Við öll 5 hrundum svo niður um 1,70 m hæð! Ég og Andrea vorum efst uppi, Þórir og strákurinn aðeins neðar og stelpan var enn neðar, því hún var á leiðinni upp aftur, eftir að hafa hoppað soldið niður. Þórir lenti á hausnum og fékk sár auk þess brákaði hann á sér úlnliðinn. Andrea missti andann. Strákurinn gat ekki stigið í ökklan. Ég lenti á mjöðminni og gat ekki staðið upp né stigið í löppina. Svo voru allir í sjokki. og svo kom enginn út frá sjoppunni sem var með þennan belg! Mig verkjaði í löppina alveg niðrí kálfa og upp í bak en var ekki viss um hvort ég þyrfti að fara á "skadestuen" (slysó fyrir ykkur dönskutossa;). En Svo fórum við þangað á endanum því Íris sá að ég var að drepast úr sársauka! Þar fór ég í myndatöku og kom í ljós að ég er tvímjaðmagrindarbrotin, jafnvel þrí því Íris er geislafræðingur og var að skoða myndirnar og fannst sjá þriðja brotið og svo hef ég verið að kvarta undan verkjum í bakinu, ekki brotinu sjálfu! Ég þarf svo að vera á hækjum í mánuð og má ekki stíga í vinstri löppina allan tíman. Ég ætti að losna við þær í byrjun ágúst sem þýðir engin þjóhátið þetta árið!!! :'( og engin vinna heldur :'( :'( En trúið mér þetta er ekki eins alvarlegt og þetta hljómar! í Augnablikinu sit ég meira að segja á vinstri löppinni! En ég get náttla ekki mikið labbað niður LAugarvegin eða verið í Kringlunni mikið á meðan. Þá þarf hjólastól. Við þetta komst ég líka að að fólk horfir ótrúlega mikið á fólk í hjólastól og ég meina ótrúlega mikið, það er með störu!! Ég er svo þakklát fyrir að þurfa ekki að vera föst í hjólastól!! Þetta er ótrúlega pirrandi! Stundum ullaði ég á krakkana sem voru að horfa á mig! :P Þeim fannst það ekkert sérlega fyndið! Svo potaði ég líka í fólk með hækjunum ;) Annað tengt hjólastólum og fólki á hækjum. Fólk ber enga virðingu fyrir fólki í hjólastól eða á hækjum. Ef ég var hoppandi um í görððunum átti ég stundum í erfðileikum með það að reyna að vera standandi því fólk var hreinlega bara að labba mig niður!! Fólk var líka oft að labba fyrir hjólastólinn og svo færði það sig aldrei fyrr en við vorum búin að segja svona 5 sinnum "unskyld" - fyrirgefðu. Og svo hrinti ég einum krakkanum frá því hann ætlaði bara EKKI að færa sig! Ég var reyndar í soldið vondu skapi þá því ég var í skemmtigarð og var föst í hjólastól og frændsystkini mín þrjú (Hjalti Stefán kom með Sigga (bróðir minn sem var á landsmóti á Hellu) út nokkrum dögum seinna) vorum hlaupandi um á milli tækja og við alltaf týnandi þeim! Ég fékk þó að fara í einn vatnsrússíbana :) En ég skil betur samstarfsfélaga hans Hjalta eftir þetta. Fólk er bara ekki að fatta þetta!! Vonandi á þetta eftir að breytast í samfélaginu með hjálp sumarvinnu Hjalta og vona ég að þeim gangi sem best með þetta og ég ætla perónulega að taka mig á og hvet ykkur til að gera það sama! Hvernig væri að skella Davíði Oddsyni í hjólastól og láta hann lifa á örorkubætum í nokkurn tíma? Haldiði að hann mundi meika það??
Annars óska ég bara eftir heimsóknum næstu tvær vikurnar, en boðið komu yðar með símtali áður!!
Edda Ó(happagrí)sk