<$BlogRSDUrl$>

mercoledì, agosto 18, 2004

Nýtt blogg og e-mail 

Í tilefni þess að ég er að fara út eftir 16 daga þá er ég búin að skipta um blogg og ímeil, sem mun einnig vera MSN ímeilið mitt, sem ég ætla að nota úti. hér finniði það...


blogg: http://eddaitali.blogspot.com

e-mail: eddaitali@hotmail.com

hér með segi ég þessu bloggi lokað næstu 10 mánuðina og ég ætla að biðja ykkur um að vera dugleg að senda mér e-mail á meðan ég er úti, en svo er náttúrulega enn betra að fá bréf með venjulegum pósti og heimilisfangið mitt er að finna á nýju blogg síðunni :)

Grazie bene, ciao tutti!!! :)

domenica, agosto 15, 2004

Ivrea 

Mig langaði að setja inn nokkrar myndir af bænum mínum.. hér sjáiði þær:) :

















Hér koma nokkrar myndir frá hinu fræga karnivali Ivreabæjar, Appelsínu slagsmálin!












Langar þig á Ísland - Ítalía? Hafðu samband... 

jæja.. ætli maður verði ekki að blogga eikkað, búin að fá skammir fyrir bloggletina. hef reyndar ekkert að blogga um.

Ég efast um að það hafi farið framhjá neinum að það sé hitabylgja hér á fróni sem er bara frábært!! Veðrið er yndislegt og Íslendingar verða svo glaðir og kátir í sólinni! Sólin á víst líka að hafa einhver sálræn áhrif á fólk svo það verður glatt sem útskýrir hvað allir sunnar í heiminum eru opnir og skemmtilegir á meðan Íslendingar eru lokaðir og feimnir! Í svona yndislegu veðri er ég mjög þakklát fyrir vinnuna mína og ég er komin með þvílíkt hlýrabolafar á bakið og orðin kaffibrún á bakinu eins og mamma mín orðaði það og svo brann ég á bringunni og fékk far eftir krossinn minn :/ ég hef alrei orðið svona brún áður og öll þessi brúnka kom bara á Íslandi!! mér finnst þetta mjög sniðugt því ég hef alltaf haldið því fram að ég gæti ekki oðrið brún. ég á svo örugglega eftir að koma heim frá Ítalíu eins og svertingi! ;) talandi um Ítalíu þá eru 19 dagar þangað til ég fer og svo er ítalska fótboltalandsliðið að koma hingað til Íslands og ég auglýsi hér með eftir einhverjum til þess að fara með mér!!! Systir mín átti svo afmæli í gær! varð 23 ára :) ítalska systir mín sko.. :P Familían á að koma heim úr ferðalaginu á morgun svo þá fer að styttast í langa bréfið frá mömmu sem danski skiptineminn lofaði mér :P en já, fleiri fréttir. ég fékk e-mail frá manneskjunni sem er yfir AFS á svæðinu sem ég verð á og þar stóð að það munu vera 6 skiptinemar þarna. Ég og krakkar frá Ungverjalandi, USA, Noregi, Japan og Hong Kong! Þetta hljómar spennandi, en enginn er frá S-Americu :( Til að halda áfram að tala um AFS þá erum við allar sem eru að fara til Ítalíu búnar að fá familíu! En ég er sú eina sem er á Norðvestur Ítalíu :(
ég ætla að láta þetta gott heita í bili og fara að heimsækja hana Írisi..

Ciao tutti!

Edda Ósk :)

domenica, agosto 08, 2004

Síðasta kvöld endaði svo á því að við vorum stoppaðar af löggunni sem spurði okkur hvort við höfðum unnið 40 milljónir í lottóinu, en sleppti okkur við sekt. Síðan komu týndir Ítalar sem fundu ekki hótelið sitt og spurðu okkur til vegar og það var ákveðið að keyra bara á undan þeim og þeir eltu. þeir voru rosa næs og sögðu að við værum svo góðar og töluðu náttla flotta ítölsku!! ég skildi smá :P Svo var keyptur snúningur í aktu taktu og þá vorum við eltar af krípí bíl með strákum í! :( svo var farið í Gravarvoginn og holtið og svo restin keyrð heim... þetta var skemmtilegt kvöld og gaman að stelpurnar að austan gátu komið! :)

ég er að fara í vinnuna eftir klukkutíma og ég er sko EKKI að nenna því! það var svo hundleiðinlegt í gær! Það var nákvæmlega ekkert að gera og ég hélt að tíminn ætlaði ALDREI að líða! Þannig að allir eiga að koma í 11-11 í drafnarfelli á milli 4 og 11 í dag!!!!!!!!!!!!!!! Fjölskyldan úti er enn í fríi og ég er ekkert búin að heyra frá henni :( Kemur ekki heim fyrr en eftir viku 10 daga :( bæjarvinnan tekur svo við á mánudaginn. hvernig gat ég valið svona leiðinlegar vinnur? :/ bæjarvinnan er reyndar ágæt því fólkið er mjög skemmtilegt, og í 11-11 eru viðskiptavinirnir mjög skrautlegir.. en samt, vildi að ég ætti heima í reykjavík. þar er meira úrval á vinnum og MIKIÐ betur borgað fyrir sömu vinnuna og í bæjarvinnunni!!

en allaveg.. ég þarf að fara að fara að fara í vinnuna... :(

Edda

sabato, agosto 07, 2004

Í dag seldi ég í fyrsta sinn smokka, heyrði sögu um skóburstara í seinni heimsstyrjöldinni sem fékk 2. kr í aukasekt fyrir að tala dónalega við dómarann las örugglega öll tímaritin í vinnunni, gleymdi lessbókinni hjá Mogganum, stal nammi úr nammibarnum, seldi óvenju lítið af sígarettum en mjög mikið af bönunum og fór með næstum alla kassana okkar í bílinn hjá einhverri konu. Viðburðarríkur dagur ekki satt? Hann endar svo á ítalska veitingastaðnum með öllum O-unum á Laugarveginum.
Ciao tutti!

Edda

This page is powered by Blogger. Isn't yours?