<$BlogRSDUrl$>

domenica, settembre 28, 2003

Ég fór í ammæli til Önnu Guðrúnar í gær (hún átti samt ammæli 11. ágúst) og það var mjög fínt fyrir utan það þegar mér tókst að hrynja niður stigann hjá henni :/ Klaufinn ég.. Ég var hjá Önnu til 2, fór síðust, reyndar aðeins nokkrum sekúndum á eftir Sölva og nokkrum mínútum á eftir Örnu.
Í dag var ég að passa Guðjón Ara, litla frænda minn, ég passaði hann frá tvö til hálf sex og lærði bara á meðan. Hann sat á rassinum og lék sér í bíló og pleimó allan tíman! Afhverju geta öll börn ekki verið þannig? Hann reyndar bannaði mér að æfa mig á píanóið og ég mátti helst ekki læra, en ég bara sagði við hann að ég ætlaði víst að læra, þá horfði hann bara á mig stórum augum og hélt svo áfram að leika sér. Svo þegar mömmur okkar komu til baka vildi hann alls ekki segja bless og ég sem var búin að vera svo góð við hann, fór í sjóræningjaleik í pleimó og setti hatta, hár og skíði á kallana og náði í allt dótið sem hann svo dreifði úr yfir allt stofugólfið! Á morgun er ég að fara í 1. samsöngstíman minn :) Ég átti að fara í síðustu viku en komst ekki vegna þess að ég var í blessaða ökuskólanum. Rosalega er ég fegin að þurfa aldrei aftur að fara í Ö1! Kennarinn
Ég vil óska Salóme til hamingju með það að hafa verið fyrsta manneskjan til að skrifa í gestabókina mína :) Til hamingju Salóme!!! :D Endilega kíkið líka á síðuna hennar :) Ég hef eiginlega ekki mikið að segja núna, ég er bara að reyna að standa við loforð mitt um að vera virkur bloggari :P Svo þegar ég hef tíma þá ætla ég að skrifa mikla ferðasögu um Finnland og kannski setja inn einhverjar myndir þaðan, en hún Sigrún var búin að skrifa langa sögu þannig að þið getið lesið hana þar :)

giovedì, settembre 25, 2003

Sko.. nú er ég búin að vera síðan eftir kvöldmat að fikta í þessari síðu og loksins er ég búin að koma inn öllum linkunum eftir 5 tilraunir!! (allt síðunni hans Sindra að kenna, því þegar ég var að reyna að komast inn á síðuna hennar Krissu frá Sindra síðu opnaðist hún í glugganum sem ég var að vinna með og það seivaðist ekki!!) Ég var að verða brjáluð! En núna er ég sem sagt búin að setja inn einhverja linka og gestabók, og tek fram að ég gerði það alveg sjálf! (Það telst sko gott því ég er ekki mikill tölvunördi, en maður kemst langt á fiktinu:P) Og í tilefni þess að ég gat sett gestabókina sjálf inn verði þið nú að skrifa í hana ;) Ég er samt ekki að fatta afherju þessir svörtu punktar eru þarna hjá linkunum, en Sölvi hlítur að redda því.. Hann er að byrja að hanna síðuna :)
Ég var í Njáluferð í dag. Slapp við skólan og sat í rútubíl frá rúmlega 8 til hálf 5. Það var ágætt, sofnaði á leiðinni nokkru sinnum í góðum höndum, eða örmum réttara sagt.... :) Við stoppuðum á mörgum merkum stöðum og á einum þeirra tóku Auður og Dísa sig til og rúlluðu sér niður brekkuna og fóru í kollhnís og eitthvað í þá áttina, þannig að fólk skemmti sér vel þrátt fyrir kuldan :)
En ég nenni ekki að skrifa meira núna.. En eitt að lokum.. Hvort var það Sasú eða Skari frændi sem sagði lífið er nöturlegt? Sísa segir Skari, en ég og Sindri Sasú (en ég er ekkert 100% viss :/ ) Þið megið kjósa í kommentinu...

martedì, settembre 23, 2003

ÚÚÚÚÚ.. Ég var að koma úr ammæli hjá bróðir hennar mömmu, og elsti sonur hans, hann Jón, var að kaupa sér svona mótorhjól, og hann varð nátla að sýn mér það :P Ég var kurteis og gerði það, en svo spurði hann mig hvort ég vildi að hann mundi reiða mig heim til mín, og ég var svona soldið hikandi, því ég er frekar hrædd við að keyra mjög hratt, en sagði já, bara til að hann mundi nú ekki halda að ég væri einhver hræðslupúki, en svo þegar við vorum farin af stað var þetta ógeðslega gaman!!!! Þetta var samt bara mjög stuttur túr, því hann á heima í götunni fyrir neðan, en hann er sko pottþétt uppáhaldsfrændinn núna!!!! ;) Hann spurði mig svo hvernig mér fannst og ég sagði honum að þetta hafði verið rosa gaman og þá bauðst hann til að bjóða mér aftur þegar hann væri búinn að kaupa hjálm! :) Mig hlakkar mjög mikið til!! :P
En fyrir utan þetta þá var ég í ökuskólanum í dag og í gær og svo aftur á morgun. Ég get alveg sagt það að það er margt skemmtilegra en að sitja þarna í einhverja 3 tíma og hlusta á kennarann segja að það megi ekki aka undir áhrifum áfengis, ég meina, ég er sko búin að ná því og var búin að ná því áður en ég fór í ökuskólann og áður en ég byrjaði í ökutímum, og ég ætla ekki að aka undir áhrifum!!
Á morgun er ég bara að faraí einn tíma!!!!! Gaman, gaman.. En það er saga. Ég sleppi við stærðfræði í 1. tíma því ég er að fara á spítalann í myndatöku og eitthvað vesen, og svo er saga í 2. tíma, svo ef ég verð lengi á spítalanum sleppi ég kannski við hann líka ;) En svo er franksa í 3. tíma, en þá er skólafundur svo að sá tími fellur niður, og svo fellur íslenska niður einhverra hluta vegna... Á fimmtudaginn er svo Njáluferð þannig að ég verð ekkert í skólanum og svo er ég bara í 3 tímum á föstudeginum minnir mig, svo þetta verður stutt skólavika, svo sleppi ég við allt tónlistarbrölt út af ökuskólanum, nema söngtíma sem átti að vera í morgun, en ég var með hálsbólgu svo mikla að ég gat ekki farið :( En ég ætti að geta farið á kóræfingu á fimmtudeginum, en er samt búin að fá frí, þannig að það er spurning hvort maður fari eða ekki...
Núna ætla ég að hætta að bulla í ykkur og fara að tala við fólkið sem er að tjá sig eikkað við mig á MSN, en svo þarf ég að fara að lúlla því ég þarf að vera komin klukkan 8 niðrá spítala á morgun, svo góða nótt...

domenica, settembre 21, 2003

Hæ!!
Hah!! Ég er SVO klár, mér tókst að setja inn svona komment ALVEG sjálf!!! Þannig að nú verðiði sko að kommenta eitthvað hjá mér!! ;)
Sölvi ætlar nú að hanna síðuna fyrir mig, hann er algjör tölvunördi og er ógisslega klár á svona internetdót :)
Helgin er núna búin og við tekur skólalífið.. Ekkert SVO slæmt, en ég vildi óska að helgin væri einum degi lengri, maður er varla kominn heim úr skólanum á föstudegi fyrr en að maður er að stilla vekjaraklukkuna til að vakna á mánudeginum. Reyndar þurfum við MH-ingar ekki að mæta í skólann fyrr en korter í 9, og fyrsti tíminn minn er táknmál, svo ég hef yfir engu að hvarta svo sem.. En þó að ég þurfi að mæta seinna í skólann, þá fer ég bara seinna að sofa, svo þetta er í sjálfu sér ekkert svo sniðugt :/

sabato, settembre 20, 2003

Jæja.. Nú er bara komin helgi, laugardagur :) Helgin verður ekkert spennandi hugsa ég, bara læra, læra, læra, læra, sumir reyndar gefa bara skít í lærdóminn en aðrir ætla að vera duglegir, eða reyna ;) Ég komst að því áðan að ég er ekkert ein um það að vera svona löt um helgar, Iðunn tjáði mér það á MSN að hún væri svona líka stundum, en Fannsi sagði mér það að hann og fleiri hefðu byrjað daginn á því að fara í fjallgöngu! En á meðan þau þrömmuðu í Heiðmörk svaf ég á mínu græna eyra undir hlýrri sænginni :) Afhverju skildi maður segja græna eyra? Fólk er ekki með græn eyru, bara geimverur :P Sigrún benti mér á það að það var Skari frændi sem sagði Lífið er nöturlegt, takk fyrir það Sísa :) Ég þarf greinilega að fara að horfa á Lion King aftur, það er reyndar ekki svo langt síðan ég horfði á hana, svona 2 mánuðir kannski, horfði á hana með Jóa og pabbi hans var soldið hneigslaður á okkur :P Endilega kíkið í blaðið og lesið greinina um mun á MH-ingum og Verzlingum, gaman að lesa :P Svo er mynd af einhverju fóki sem ég þekki víst, það sést reyndar aðeins í mig, er í bleikri peysu :P Á mánudaginn er ég svo að fara í ökuskólann, hlakkar ekki til.. er víst leiðinlegt að vera einn :( Sedda er víst hætt að hanna síður svo ég er að spá í að biðja Sölva um að hjálpa mér með útlitið á þessari blessuðu síðu... En ef það er einhver þarna úti sem finnst gaman að hanna svona blogg síður hafðu þá samband við mig á eddosk_86@hotmail.com :) En núna ætla ég að fara að vinna í söguverfkefninu sem ég á að skila á mánudaginn :(

mercoledì, settembre 17, 2003

Í dag var ég í stærðfræðiprófi og í sannleika sagt þá gekk mér hörmulega :/ Skildi ekki nema svona helmingin og próið var bara tekið af manni þegar tíminn var búinn, í 103 fengum við allavega að vera í frímínútunum.. EN lífið er ekki eintóm stærðfræði svo það gerir ekkert til þó ég fái lélega einkunn á 1. kaflaprófinu í þessum blessaða áfanga stæ 203, þar sem engin virðist skilja hvað er verið að gera.. Ég verð bara að leggja meira á mig í næstu prófum til að fá alla vega svona 8 í lokaeinkunn :P Já, svo er ensku tímaritgerð á morgun og það var íslensku tímaritgerð í gær, ég skrifaði heilar 6 blaðsíður í henni, allt eintóm steypa að mínu mati, en hlít að fá eitthvað fyrir hana :/ En nú þarf ég að hætta þar sem ég er að fara í ökutíma klukkan 5 og ég þarf að æfa mig á píanóið því ég er að fara í píanó tíma og líka tónheyrn þar á eftir, og svo að skúra og svo kemst ég loks heim, en þá tekur undirbúiningur fyrir ensku tímaritgerð við!! Lífið er nöturlegt eins og Sasú segir (var það kannski einhver annar sem sagði það?)
Bless í bili..

lunedì, settembre 15, 2003

Hæ, hæ!
Nú er ég komin með nýja bloggsíðu þar sem pentagon liggur niðri og svo að Bryndís geti lesið bloggið í símanum sínum ;) Nú er bara að reyna að læra eitthvað á HTML og gera eitthvert listaverk úr þessu öllu saman :) En því miður hef ég engan tíma til þess að vera að pæla eitthvað í þessu þar sem ég er að drukkna í heimavinnu og svo er það kórinn og tónlistarskólinn og það tekur líka tímana tvenna... Þar af leiðandi ætla ég að vera skynsöm og hætta að tölvunördast og fara að læra fyrir tímaritgerðina í íslensku..

This page is powered by Blogger. Isn't yours?