<$BlogRSDUrl$>

venerdì, dicembre 19, 2003

Jæja, núna loksins vill tölvan leyfa mér að opna explorer þannig að nú get ég svalað blogg þörf minni.
Á miðvikudaginn fór ég og sótti einkunnirnar, mig kveið ekkert smá fyrir :/ ég er ekki búin að standa mig vel í náminu á þessari önn vegna annríkis í öðru. En einkunnirnar voru bara ágætar, mest 8 og 9. Ég er alveg sátt en ekkert í skýunum. Svo var jólaballið um kvöldið. Jeij! Ég hitti jólasveininn þar og hann vildi bara gefa mér mandarínu í skóinn! Lélegur jólasveinn!!! ;) En það var bara mjög gaman á ballinu! Skemmti mér vel.. Það var samt MJÖG mikill troðningur og aumingja Anna þurfti að standa í röð eftir yfirhöfnum í klukkutíma og mér skilst að Arna hafi týnst í troðningnum. En á meðan stóð ég úti í kuldanum MJÖG illa klædd og var að deyja úr kulda (það er löng saga afhverju og ég ætla ekki að segja hana hér) ég fékk reyndar að skríða inn í kápurnar hjá Bryndísi og Dísu við og við :)
Það er SVO gaman að vera komin í jólafrí! Sofa út, borða smákökur og á eftir er ég að fara að gera laufabrauð! Jeij!
Í gær fór ég á tónleika og ég held að ég hafi beðið í röð í 20 mínútur ef ekki meira!!!!! Tónleikarnir voru hins vegar FRÁBÆRIR! :D Ég er svo að fara að syngja á tónleikum í kvöld, á morgun og hinn! Við erum að fara að syngja eitthvað lag sem ég kann ekkert í! Einhver jólasyrpa. Kann ekkert í henni því ég mætti eila ekkert á kóræfingar í síðutu vikum.
Ég á enn eftir að klára að kaupa jólagjafir!!! Hvað langar ykkur eila í? Ég er reyndar búin að ákveða sumar, en ég er alltaf eitthvað á síðustu stundu.. týbíst ég.. 8-) (þetta er svona kall sem rúllar augunum sko ;P )
Jæja, nú hef ég ekkert meira að segja svo bless, bless! :)

lunedì, dicembre 15, 2003

Ég var í strætó áðan á leiðinni heim til mín í 112, og var þá mamma hans Jóa ekki í strætónum! Hún er nú mjög fín og allt það, en ég varð ekkert smá vandræðaleg! Ég hef nefnilega ekkert farið heim til Jóa síðan við hættum saman og þar af leiðandi ekkert séð hana. Ég þekkti hana samt ekki um leið, en hún sá mig og gerði sætið við hliðina á sér autt þannig að ég gjörsamlega varð að setjast hjá henni!! :/ Hún talaði við mig alla leiðina heim til mín. Spurði hvernig gengi í skólanum og prófunum og kórnum og söngnáminu, hún var nefnilega einu sinni í Kór Langholtskirkju. Svo á svona miðri leið sagði hún að það væri nú gott að við Jóhannes værum góðir vinir þó að við værum nú ekki saman og spurði hvort það væri ekki satt. Ég nátla bara svaraði játandi (samt spurning hvort ég hafi verið að ljúga þar eða ekki :0.. :/.. ) og allt það, mér leið enn þá svona að reyna að láta hana líka við mig af einhverjum ástæðum, en allavega, svo þegar ég var að fara sagði hún mér bara að skemmta mér í kvöld. Ég svona spáði í það hvort ég ætti að biðja að heilsa þeim þarna í Þverárselinu, en ákvað bara að sleppa því! Þegar ég var komin út úr strætónum lá við að ég sprakk úr hlátri! En núna er ég að fara í undirleiktíma svo bless, bless :)

venerdì, dicembre 12, 2003

Jæja já.. Þá er maður kominn aftur að bloggast. Prófstressið er næstum búið, mig kvíður samt smá fyrir einkunnunum.. :S Ég þoli ekki einkunnir nefnilega. Þær eru eitthvað svo asnalegar finnst mér..
Ég verð samt að segja frá frönskuprófinu! Það var hreint út sagt hræðilega erfitt! Ég var í sjokki í prófinu!! Ég er samt með svona 9 í skólaeinkunn og það er 50% þannig að bara ef ég næ þá fæ ég svona 7 allavega :/
Ég ætlaði að tjá mig eitthvað voðalega mikið en ég bara man ekkert hvað það var núna...
Já og 29 maí nálgast líka óðfluga og þá á Egill ammæli :)
En núna ætla ég að horfa á Idol og skrifa smá í þessu bréfi, en svo ætla ég bara að fara að sofa því lítið hef ég sofið þessar 2 vikur fyrir stressi og lærdóm!
Góða nótt :)

giovedì, dicembre 04, 2003

Afhverju er svona erfitt að lýsa sjálfum sér? Ætti maður ekki að þekkja sjálfan sig best? (það er farið að fara í taugarnar á mér hvað ég segi oft maður :/... ) Ég er sem sagt að skrifa bréf um sjálfa mig, og ég finn það freekar erfitt.. Ég er ekki nógu góð í að sálgreina sjálfa mig, verð að fara gera það frekar en einhverjar persónur í bókum, en ég sékk samt 9 fyrir sálgreininguna á Hayden Í Catcher in the Rye! ;)

Ég er ekki alveg að fatta tölvurnar núna.. E-mailið mitt er eitthvað skrítið, eða sko það er svona nýtízkulegt og líka þetta sem ég er að skrifa á núna.. Er þetta kannski að breytast alls staðar?? :/

Ég var í söguprófi í dag, það gekk ágætlega, en sko ég skil EKKERT í kennurunum að hafa svona langs próf þar sem próftími er bara klukkutími! Það var sem sagt 9 blaðsíður, 2 bls krossar og 1 svona tengidæmi (sem mér gekk reyndar hörmulega í) og svo var allt hitt ritgerðir!!!!!! 3 og 3 á fyrstu tvem blaðsíðunum svo 3 heilsíðu ritgerðir!!! Og svo strax eftir hálftíma var ég að drepast í hendinni því ég þurfti að skrifa svo hratt og vonandi skilja kennararnir skriftina... Svo eftir prófið hitti ég Eddu sögukennara þegar ég var að ná í íslensku glósur og þá spurði hún hvernig hafði gengið og ég kvartaði yfir stuttum tíma og hún bara jájá, við tökum samt alvegtillit til þess, þið eruð líka svo klárar! Þessi kennari er svo skondinn eitthvað. Þegar ég tilkinnti henni að ég væri að stinga af til Finnlands í tvær vikur spurði hvað ég héti og þegar ég sagðist heita Edda, þá sagði hún: Nú já, svo þú ert nafna mín, ja nú er ég búin að læra eitt nafn. Svo er hún líka stundum soldið dofin, tveir strákar löbbuðu út úr tíma og hún tók ekki eftir því!! Ég og anna gerðum líka tímaásinn okkar saman og hún tók ekki eftir því! (held ég allavega) Svo voru krakkar sem gerðu tímaásinn saman og skiluðu bara einum og það stóð á blaðinu undirstrikað og feitletrað að þetta væri einstaklingsverkefni!

Veit einhver hvort að það sé hægt að breyta valinu sínu? Mig langar nefnilega að setja einn áfanga inn í staðinn fyrir sögu.. En ég veit ekki hvort það sé hægt, en þessi áfangi verður líklega ekki kenndur aftur, held ég alla vega... :/

Já hún Arna afmæli í dag og til hamingju með ammælið Arna!!! Orðin 17, alveg eins og ég! ;) Og svo varð Einsi 18 í gær, til hamingju með það líka! Svo á Sedda ammæli þann 8. og Kristján líka einhvern tíman í desember, held 10, en er ekki viss svona til ég segi ekki eitthvað vitlaust.. :/


martedì, dicembre 02, 2003

Ég er búin að komast að því að söngennaranum mínum finnst gaman að pína mig. Henni finnst alveg rosalega gaman að láta mig syngja háu tónana.. Ég hef reyndar mjög gott að þessu þar sem ég er ekkert klár að syngja þar :/ En allavega þá helf ég að hún hafi látið mig syngja upp á svona g (fyrir neðan háa c :P) í upphitunaræfingunum og það svona snemma morguns og maður að drepast úr prófkvíða. Svo er ég heldur enginn sópran, í mesta lagi 2. sópran, en allavega þá eru háutónarnir smám saman að koma :) Svo sagði hún mér að hún væri mjög ánægð með mig ( :D )og að ég æfði mig mjög vel heima sem ég geri ekki reyndar, þannig að ég ætla æfa mig alveg voðalega rosalega mikið eftir áramót og þá fæ ég kannski að taka stigspróf eða eitthvað próf.. Reyndar held ég að það séu ekki lengur stigspróf heldur bara svona grunnstig, miðstig og framhaldsstig eða eitthvað þannig þannig að þegar ég ætti að vera að fara taka 3. stig þá mun ég taka grunnstig eða eitthvað þannig...
Hvort finnst ykkur meira spennandi að fara til Nýja-Sjálands, Bandaríkjanna, Ungverjalands eða Belgíu, eða kannski bara Taílands?

lunedì, dicembre 01, 2003

hey, þú, já þú þarna!! Skrifaðu í gestabókina! ;) Núna eða strax!!! :P
"Jólin, jólin, jólin koma brátt, jólasnjórinn fellur smátt og smátt" Eða fer eila frekar því það er rigning og vont veður!! Brrr... Já en jólin eru samt að koma og þeim fylgja jólagjafir og jólakort og þess háttar og ég verð að fara að gera jólakortalista.. svo eru það líka jólagjafirnar.. Ég hef enga hugmynd um hverjum ég á að gefa jólagjöf :s það er fullt af fólki sem mig langar alveg að gefa jólagjöf, en bara veit ekki hvort að ég það fólk þekkjumst nógu mikið eða erum nógu góðir vinir til þess að gefa jólagjöf.. svo þetta er algjört vesen.. Ég er samt búin að ákveða hvað ég mun gefa þessu fólki sem ég á eftir að gefa á endanum.. :) Svo eru það jólakortin.. hverjum á ég að gefa og á ég að gera þau sjálf eða í tölvu eða bara svona hefbundin kort? Þetta er svo mikið vesen og ég ætla ekki að reikna mig út úr þessu núna, en í staðin ætla ég að fara að reikna stærðfræði því ég er að fara í stæ. próf á miðvikudaginn....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?