martedì, febbraio 24, 2004
Ég borðaði svo saltkjöt og baunir hjá ömm og ég actually BORÐAÐI það! Mér hefur fundist saltkjöt mjög vont og baunasúpan enn verri, en mér fannst súpan bara fín! En ég gat nú samt ekki borðað mikið og innst inni er ég nú soldið ánægð með að þurfa ekki að borða þetta fyrr en eftir 2 ár ;) Eftir þetta var skelltsér á smá gospelæfingu sem var nú bara heví skemmtilegt :) (ekki veit ég hvaðan þessi orðaforði er.. ) En já.. vá hvað það var bara gaman! Ég keypti svo disk og tónlistin dunar hérna í herberginu mínu klukkan 10 mínútur í 12. Það fyndnasta við þetta var samt að hinn skemmtilegi og góðkunni söngur Gleði, gleði, gleði, gleði líf mitt er o.s.fr. var sunginn! Við sem sagt sungum hann í 3 röddum og ég ég var sífellt að ruglast á laginu og svo 2 rödd.. Kannski að maður bara taki með sér nóturnar á Gettu Betur ;) En ég þarf að vakna snemma á morgun til að fara á námskeið um ítalíu svo góða nótt! :)
lunedì, febbraio 23, 2004
En í annað.. Ég var að syngja á tóneikum í gær, það gekk bara vel, fyrir utan að okkur tókst að klúðra Vorlaufinu tvisvar :) Við vorum að syngja frá korter í tvö til hálfsjö, sem sagt 4 tíma og 3 korter. Svo
í dag þá var ópera og undirleikur og sönglist og svo er söngtími á morgun um morguninn og svo eru tónleikar eftir skóla og svo kóræfing í Digraneskirkju í tvo tíma svo ef að ég verð ekki raddlaus á lagningardögunum þá veit ég ekki hvað... En allavega þá nenni ég þessu ekki og ætla að fara að gera það sem söngkennarinn sagði mér að gera.. Sem sagt fara snemma að sofa og ekki syngja tónelikalögin mín heldur skoða þau...
Góða nótt :*
sabato, febbraio 21, 2004

You are too innocent and sweet for your own good.
Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla
Þá vitiði það ;)
martedì, febbraio 17, 2004
(æjj ég ætla að fara að sofa... góða nótt.. )
Ég verð samt að segja frá því að ég fór upp á cís fyrir ofan háa c í söngtíma í morgun! :)
lunedì, febbraio 16, 2004
Ha una penna?
Mi hanno rubato il passaporto!
Cin cin!
Che ora è?
Mi scusi... :)
giovedì, febbraio 12, 2004
Svo rann það upp fyrir mér að ég gæti nú ekki verið að æða til Taiwan ein! Það væri hrein martröð!! Svo ég tók mig til og hringdi í eitthvað af fólkinu sem ég umgengst. Eftir að hafa hringt í 20 manns var ég komin nokkra sem höfðu áhuga á að skella ser með í sólarlandaferð til Taiwans með milli lendingu í Argentínu og Kasistan. Dísa sagði hreint já! Váá.. Mig hefur alltaf langað til Taiwan, en Kristrún sagði að hún væri að fara til Ástrálíu til að gera líffræðitilraun. Salóme ákvað samt að sleppa líffræðitilrauninni og koma heldur með okkur til Taiwan, en hún ætlaði að millilenda í Danmörku til að heimsækja vin sinn, í staðin fyrir að millilenda í Kasistan. Sísu leist ekki á að fara til Taiwan, sagði að það væri svo dýrt þar og hún þurfti að fara til Jan Mayen til að læra portúgölsku. Sölvi vildi koma með og Fannsi. Auður sagðist líka geta farið, en þurfti fyrst að fara smá til Færeyja til að hitta gamla frænku þar, en það var hægt að fá beint flug frá Feryjum til Taiwan þannig að það reddðist alveg, þurfti ekki einu sinni að millilenda á Suðurpólnum! Eftir nokkrar vikur vorum við komin með dág góðan hóp af fólki.
Ég, Dísa, Sölvi, Fannsi, Einsi, Auður, Anna Guðrún, Bryndís, Unnur, Salóme og líka Arna.
Víst við vorum að fara tiol Taiwan urðum við að læra portúgalskt táknmál so we went to Kúala Lúmpúr og lærðum undirstðöðuatriðin í Portúgölsku táknmáli. Ég, Dísa og Bryndís flugum í gegnum námskeiðið enda kunnum við allar fuglasöng.
En þetta var ekki nóg, því það þýðir alls ekki að fara til Taiwan án þess að kunna Króatísku! Nú, það var ekkert að gera nema sð skella sér á 2 vikna strangt námskið í króatísku í smárabíói. Loksins vorum við svo tilbúin til að fara til Taiwan.
Ferðin gekk vel þótt að millilendingin í Argentínu varð aðeins lengri en búast átti við því það var verið að gefa ókeypis tölvuskjái í höfuðborginni og vuið þurftum að skipta um flugvél í Kasistan því það átti að nota þessa til þess að klessa á skakka turnin í Písa til að rétta hann af. En loksins vorum við komin til Taiwan og þá
(verð að fara á kóræfingu)
mercoledì, febbraio 11, 2004
domenica, febbraio 08, 2004
Litla frænka mín er búin að vera hjá mér alla helgina og ég hef ekkert geta lært og á eftir að lesa heila bók í dönsku og klára Sjálfstætt Fólk. Mér hefur samt tekist að setja saman myndaalbúm fyrir verðandi fóstrufjölskyldu mína, á bara eftir að skreyta smá.. :)
Heimurinn er lítill. Mjög lítill, dæmi um það að ég skildi detta inn á bloggsíðu efnafræðikennarans míns. En í gær ætlaði ég að fara með litlu frænku minni í bíó og mamma sagðist eiga frímiða á Love Actually. Þegar við vorum svo að fara ákvað hún að skella sér bara með okkur. í hléinu fórum ég og frænka mín á klósettið og þegar við vorum að komnar framhjá mömmu sagði konan í bekknum næst við okkur Hæ. Ég sneri mér við því ég kannaðist við röddina og sagði Hæ við konuna því þetta var frönskukennarinn minn hún Sigríður Anna og ég hélt hún hafði verið að segja Hæ við mig. Þá varð hún mjög hissa og sagði: Edda, þú hér? Og þá fattaði ég að hún hafði ekki verið að segja hæ við mig heldur mömmu mína. Ég leit á mömmu og aftur á kennaran. Þetta var svo skrítið.. Þær eru víst saman í leikfimi 2x í viku og akkurat þær höfðu talað saman þar. Þessi kennari er svona uppáhaldskennarinn minn í MH, og hefur kennt mér 3 annir af 4 þar. Hún er líka kennarinn sem hefur verið að gefa mér ummæli og þannig fyrir AFS. Skondið...
Jæja.. Ég ætla að fara að velja land.. Bless í bili :)
giovedì, febbraio 05, 2004
Það eru alltaf að koma göt á sokkabuxurnar mínar á sömu tánni svo ég ákvað að klippa tánöglina og það endaði þannig að ég missti naglaklippurnar í klósettið....
mercoledì, febbraio 04, 2004
En allavega þá ætla ég að fara að lesa um Bjart og kindurnar hans eða drattast heim.. get náð 112 ef ég fer NÚNA!!!!!!
1 Salóme 80
2 Anna Guðrún 80
3 Dísa:) 80
4 Sísa 70
5 Sölvi 70
6 solla 70
7 Hjalti 70
8 Kristján 60
9 Sigurborg 60
10 Agli 60
11 arna 50
12 Marta 40
13 Sedda:) 30
domenica, febbraio 01, 2004
Kvissið sem ég gerði var greinilega erfitt.. Enginn nema Salóme hefur komist yfir 70%, en samt koma sumir einstaklingar á óvart sem ég átti ekki von á að kæmu svona sterkt inn..
Ég bjóst ekki við að Solla mundi fá 70% á meðan Arna fékk bara 50% og svo fékk Sedda bara 30%! iss.. Sedda þó! ;) Svo er fólk eins og Egill! Fékk einu færri en Sísa og ég hitti þann dreng ekki nema svona einstaka sinnum og ætíð fullan ;) og Sigurborg og Kristján stóðu sig mjög vel, en Salóme þó best!! :)
1 sæti: Salóme 80
2-4 sæti: Sísa, Sölvi, solla 70
5-7 sæti: Kristján, Sigurborg, Agli 60
8 sæti: arna 50
9 sæti: Marta 40
10 sæti: Sedda:) 30